Tíminn - 06.11.1993, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.11.1993, Blaðsíða 8
8 Tlminn Laugardagur 6. nóvember 1993 Englendingar aö taka Québecborg I sept. 1759: endurminningar úr sögunni eiga sinn þátt íaö halda viö þykkju milli þjóöerna í Kanada, sem víöar. Hrun gamalgróins flokkakerfis Söguleg úrslit kanadísku þingkosninganna skömmu fyrir mánaðamótin virðast gefa tvíræða vísbendingu. Annars vegar kom þar fram ósk eftir stöðugleika og ótti við upplausn ásamt með vissri fortíðarþrá. Hins vegar afneitun á gamla flokkakerfinu, hingað til ríkjandi hefðum í stjómmálum landsins og jafnvel Kanada sjálfu í þeirri mynd sem landsmenn og aðrir þekkja það. Hefðbundið flokkakerfí Kanadamanna, sem hrundi í kosningunum, var byggt upp eftir breskri fyrirmynd. Það var kerfí með tveimur stórum stjómmálaflokkum sem skiptust á um að stjóma. í Kanada kenndi annar þessara stóm flokka sig við íhaldsstefnu og hinn við frjálslyndi, eins og var hjá Bretum áður en Verkamannaflokkurinn þar mddi frjálslyndum til hliðar og kom í stað hans. Fijálslyndi flokkurinn breski hefur síðan verið „litli flokkurinn á milli hinna“ og má þar með segja að tveggja flokka kerflð hafí orðið að þriggja flokka kerfl. Þannig varð það einnig í Kanada, því að eins og áður í Bretlandi upphófst þar eins- konar sósíaldemókratískur flokkur (er nefnist Nýi lýðræðisflokkurinn). Honum tókst ekki, eins og breska bróðurflokknum, að verða annar af tveimur stómm flokkum og hefur þannig í kanadískum stjómmálum haft að nokkm hliðstætt hlutverk og frjáls- lyndir í Bretlandi lengst af aldarinnar, sem þriðji og minnsti „kerfísflokkurinn“. KOSNING- ARNARí KANADA Þurrkuðust nærfellt út íhaldsflokkur, frjálslyndi flokkur og jafnaðarmannailokkur Kanada- manna eiga siimeiginleg þau grunn- atriði að þeir teljast hafa hefð- bundna strauma í vestrænum stjómmálum sem grundvöll og vilja að Kanada verði áfram til sem sam- bandsríki með allsterkri miðstjóm. Flokkakerfið, sem þessir þrír flokk- ar stóðu vörð um sameiginlega, fór svo illa út úr kosningunum að í bráðina verður vart séð að það eigi sér viðreisnar von. Frjálslyndi flokk- urinn (Liberal Party) vann að vísu stórsigur og fékk hreinan meiri- hluta í neðri deild sambandsþings. Hinir tveir gömlu „og virðulegu" flokkamir fóm á hinn bóginn slíkar hrakfarir að þeir þurrkuðust nær- fellt út Ósigur íhaldsflokks Kanada- manna, sem heldur eftir tveimur þingsætum af 155 er hann hafði fyr- ir kosningar, er slíkur að leitun er í sögu þingræðisins á öðmm eins hrakfömm gamalgróins kerfisflokks í einum og sömu kosningunum. Nýi lýðræðisflokkurinn tapaði 45 þing- sætum og heldur eftir átta. Frjálslyndir bættu við sig næstum hundrað þingmönnum og hafa nú 178 af 295 alls í neðri deild. Um af- ganginn er það að segja að hann skiptist að mestu á milli tveggja ílokka, sem eiga það sameiginlegt að vera í uppreisn gegn gamla tví- eða þríflokkakerfinu, kærulausir um „fomar" og virðulegar hefðir þess og kæmlitlir um eða í andstöðu við einingu Kanada. Þeir em Bloc Qué- becois (skammst. BQ) og Umbóta- flokkurinn (Reform Party, til hægri verka gjaman kallaður Reform). Hvor þeirra um sig hefur yfir 50 þingsæti á hinu nýja Kanadaþingi. „Fransmennimir mega missa sig“ BQ bauð aðeins fram í fylkinu Qué- bec, þar sem meirihluti íbúa er af frönskum ættum og frönskumæl- andi. Flokkur þessi beitir sér fyrir því að fylkið segi skilið við Kanada og verði sjálfstætt ríki. Hann er eftir kosningarnar næststærsti flokkur- inn á sambandsþingi og má mikið vera ef frönskumælandi menn hafa nokkm sinni haft sterkari stöðu í stjómmálunum þarlendis frá því að Bretar tóku Kanadanýlendu Frakka af þeim skömmu eftir miðja 18. öld. Umdeilt er að vísu, hversu mikil al- vara Québecmönnum sé með skiln- aðaráform sín. Hefur því oft verið haldið fram að tilgangur þeirra með hótunum um skiinað sé miklu frem- ur sá að herja fríðindi út úr sam- bandsstjóminni í Ottawa. í kosn- ingabaráttunni kom BQ öðrum þræði fram sem „óánægjuflokkur" almennt og meðal fréttaskýrenda er sagt að út á það muni hann hafa laðað til sín marga kjósendur sem lítinn eða engan áhuga hafi á skiln- aði. Reform er einnig í fréttaskeytum gjarnan skilgreindur sem „óánægju- flokkur" og mikið til svæðisbund- inn. Hann beitir sér fyrir hagsmun- um vesturfylkjanna og þar er fylgi hans mest. Margra mál þar er að Ontario og Québec — þau fjölmenn- ustu og ríkustu af eldri fýlkjunum þar sem valdið í stjóm- og efnahags- málum hefur jafnan verið saman- komið — hafi lengi hundsað hags- muni vesturfylkjanna. Ennfremur telja menn þar vestra að sambands- stjómin hafi kostað til alltof miklu af fyrirhöfn og fjármagni til að hafa Campbell: mesti hrakfallabálkur þingræöissögunnar? Fransmennina í Québec góða og hafi það verið á kostnað vesturfylkj- anna. Telur Reform ekki ná neinni átt að láta meira eftir Québecmönn- um er þegar hefur verið gert. Stefnu flokksins gagnvart Québec er að sögn eins fréttamannsins best lýst með eftirfarandi orðum: „Vilji frönskumælandi Kanadamenn ekki vera í Kanada með núgildandi skil- yrðum, mega þeir fara sína leið!“ í efnahagsmálum beitir Reform sér fyrir allharðri hægrifrjálshyggju og vill ráðstafanir til takmörkunar á innflutningi fólks, en í þeim efnum er Kanada meðal örlátustu ríkja.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.