Tíminn - 06.11.1993, Page 6
6 Tíminn
Laugardagur 6. nóvember 1993
Texti og
myndir:
Þórgnýr
Dýrfjörð
Helgarviðtal
við Viðar
Eggertsson,
leikhús-
stjóra hjá
Leikfélagi
Akureyrar
„Gerðist leikhúsrotta
í öllum látunum“
Þaö var nú í vor að auglýst var staða leikhússtjóra
fyrir Leikfélag Akureyrar. Einn af þeim sem sótti
um var Viðar Eggertsson leikari og sem kunnugt er
hreppti hann hnossið. Hann hefur komið víða við og
leikið í um eða yfír 40 hlutverkum, leikstýrt fjöl-
mörgum sýningum á sviði, í útvarpi og sjónvarpi,
auk þess að skrifa um leiklist í blöð og tímarit.
Nú er starfsárið komið vel af stað
hjá leikfélaginu en það á tuttugu ára
afmæli sem atvinnuleikhús á þessu
ári. Blaðamaður Tímans heimsótti
Viðar og kom að máli við hann um
þetta og fleira. Viðar kom til starfa í
maí og segir að ekki hafi mátt seinna
vera: „Þegar ég kom þá voru hin at-
vinnuleikhúsin fyrir löngu komin af
stað með að tryggja sér leikverk,
mannskap og fleira fyrir starfsárið
svo að ég varð að láta hendur standa
fram úr ermum og var reyndar rogg-
inn yfir því að mér skyldi takast að
ljúka mínum undirbúningi um það
leyti sem hinir voru að Ijúka sínum.
• Þannig að þú hefur ekki komið of
seint?
„Nei, ekki þannig, en þetta er svo
sem ekkert eftirsóknarvert að vera í
svona þröngri aðstöðu, en það hafði
sínar skemmtilegu og spennandi
hliðar. Þetta var kannski svolítið sér-
kennilegt fyrir mig því ég hef ekki
verið mikið í því að velja verkefni
fyrir aðra, þar sem ég var leikhús-
stjóri í mjög sérstöku leikhúsi þar
sem ég valdi nær einungis verk
handa sjálfum mér. En í vor var ég
að velja eingöngu handa öðrum, því