Tíminn - 06.11.1993, Síða 9
Laugardagur 6. nóvember 1993
Tíminn 9
Gegn atvinnuleysi
Frjálslyndi flokkurinn beitti sér í
kosningabaráttunni fyrir einingu
Kanada áfram, eins og hinir tveir
„kerfisflokkamir". Að öðru leyti
lögðu frjálslyndir í kosningaáróðri
sínum mesta áherslu á efnahags- og
kjaramál, sérstaklega ráðstafanir
gegn miklu og vaxandi atvinnuleysi
(sem nú er 11.2%). Flokkurinn hét
endurskoðun á vissum atriðum fri-
verslunarsamningsins við Bandarík-
in og Mexíkó (NAFTA), sem almenn
óánægja er með vegna þess að óttast
er að hann dragi störf frá Kanada til
láglaunalandsins Mexíkó og auki tök
risans í suðri, Bandaríkjanna, á
efnahagslífi Iandsins, sem mörgum
þykja fullmikil fyrir (um 80% út-
flutnings Kanada fara til Bandarikj-
anna). Frjálslyndir láta og f Ijós um-
hyggju fyrir velferðarkerfinu, sem
þykir komið á undanhald fyrir
hægrifrjálshyggju sem verið hefur
nokkuð í tísku í níu ára valdatíð
íhaldsflokksins.
Nýi lýðræðisflokkurinn, jafnaðar-
menn Kanada, hafa átt góðu gengi
að fagna í kosningum til fylkisþinga
síðustu ár og stjóma nú þremur
fylkjum (þar á meðal Ontario, því
þeir séu til þess að gera trúverðugar
ímyndir flokka sinna.
Preston Manning, leiðtogi Reform,
er upprunninn í olíufylkinu Alberta,
hann er rúmlega fimmtugur hag-
fræðingur og kaupsýslumaður og
trúaður mótmælandi með „útgeisl-
un“ (eins og skandinavískur blaða-
maður orðar það). Með því er átt að
hann sé laginn við að ná til almenn-
ings.
Lucien Bouchard, leiðtogi BQ, er
hálfsextugur lögfræðingur og einn
forkólfa um alþjóðlega samstöðu
frönskumælandi manna „gegn ofur-
valdi enskunnar og þeirra sem hana
tala“. Hann hefur jafriframt þjónað
landi sínu sem sendiherra þess f
París og sem ráðherra í „sambands-
sinnuðum“ stjómum. Ýmsir hafa og
þóst lesa úr ummælum hans að
hann sé ekki alveg eindregið á bandi
skilnaðarsinna í Québec. En flokkur
hans er líklegur til að vinna fylkis-
þingkosningar þar næsta ár og hefur
lofað að fylgja sigri í þeim eftir með
því að láta árið þar á eftir fara fram
almenna atkvæðagreiðslu um hvort
Quebéc verði áfram í Kanada eður
ei.
Kim (skírð Avril Phaedra) Camp-
bell, Ieiðtogi íhaldsflokksins og frá-
Maður gærdagsins
Jafnframt því sem íhaldsflokkurinn
auglýsti Kim sem manneskju nútíð-
ar og ffamtíðar, reyndu hann og aðr-
ir andstæðingar Frjálslynda flokks-
ins að klekkja á Chrétien með því að
lýsa hann „mann gærdagsins". Það
má að nokkru til sanns vegar færa,
en gagnstætt því sem margir munu
hafa búist við virðist sá stimpill hafa
dregið fylgi að Chrétien og flokki
hans. Hann er þar að auki andstæða
Campbells að því leyti að erfitt er að
búa til úr honum velheppnaða aug-
lýsingaglansmynd, sem mikill siður
er orðinn að gera af stjómmála-
mönnum, en einnig það virðist hafa
dregið að honum fylgi fremur en
hitt
Jean Chrétien, sem nú tekur for-
ustuna fyrir Kanadamönnum, er
tæplega sextugur franskættaður og
kaþólskur lögfræðingur frá Shawin-
igan, borg í Québec þar sem at-
vinnulífið snerist í bemsku hans
mest um pappírsiðjuver. Faðir hans
var vélamaður þar. Foreldrar Jeans
áttu 19 böm og er hann það átjánda
í röðinni. Hann reykir ekki, drekkur
Iítið og hefur síðan 1957 verið
kvæntur æskuvinkonu sinni. Sem
Chrétien: vonlaus sem auglýsingaglansmynd.
fjölmennasta), þar sem um helm-
ingur af 27 milljónum landsmanna
býr. Flokkurinn hefur haldið því
fram að hann beri meiri umhyggju
fyrir þeim efinaminni en íhaldsmenn
og frjálslyndir og sé að nokkm f
uppreisn gegn þeim. En honum hef-
ur þótt takast miður vel til með
stjómun fylkjanna þriggja, sem
hann ræður, með þeim afleiðingum
að almennt er farið að.líta svo á að
hann sé sama tóbakið og hinir „kerf-
isflokkamir" tveir. Þar sem frjáls-
lyndir hafa verið aðalstjómarand-
stöðuflokkurinn síðan 1984, em
þeir ekki orðnir eins mikill „kerfis-
flokkur" í augum margra kjósenda
og þar að auki var kosningabarátta
þeirra (gegn atvinnuleysi, með vel-
ferðarkerfi) þesskonar að þeir gátu
sótt að jafnaðarmönnum frá vinstri.
Um hmn íhaldsflokksins má segja
að þar virðist margt hafa borið að
sama bmnni. Lífskjör margra hafa
versnað á stjómarámm hans, sér-
staklega vegna vaxandi atvinnuleys-
is, og þar við bætist víðtæk óánægja
með NAFTA-samning, af fyrrgreind-
um ástæðum. í augum hægrisinn-
aðra kjósenda varð flokkurinn
stefnulítill og tvístfgandi miðju-
flokkur og ofan á annað mistókst
honum gersamlega — þrátt fyrir
miklar tilraunir — að leiða til Iykta
„eilífðarvandamál" kanadískra
stjómmála, sem er nánast jafngam-
alt byggð hvítra manna þar, þ.e.a.s.
deilur ensku- og frönskumælandi
landsmanna.
ímyndir flokka,
manneskja framtíðar
Að sjálfsögðu hefiir athyglin í þessu
samhengi mjög beinst að leiðtogum
kanadísku stjómmálaflokkanna. Á
leiðtogum „óánægjuflokkanna"
tveggja er helst að sjá og heyra að
farandi forsætisráðherra, sem með
kosningunum komst á blað sem ein-
hver mesti hrakfallabálkurinn í sögu
þingræðisins, var ólíkt þeim Mann-
ing og Bouchard einna helst tilraun
flokks síns til að koma sér upp nýju
andliti. Hún er rúmlega hálffimm-
tugur lögfræðingur frá Vancouver
með sæmilegan árangur að baki,
galvösk og dugnaðarleg, tvífráskilin.
Hún var kynnt sem þróttmikil
manneskja nýs tíma, er áttaði sig á
framtíðinni og væri líkleg til að láta
hana skila árangri. Ekki síst mun
flokkur hennar hafa gert sér vonir
um að hún drægi að honum atkvæði
hægrifrjálshyggjusinna og kvenna.
En sjaldan ef nokkumtíma hefiir
einum stjómmálaflokki mistekist
jafn herfilega að snúa vöm í sókn.
Kim þótti, þegar á reyndi, bráðlynd
og hrokafull og svör hennar við
spumingum um stefnu hennar í
fjárlaga- og velferðarmálum virtust
tvíræð og óljós. Flokkur hennar
hæddist þar á ofan að Jean Chrétien,
leiðtoga frjálslyndra, fyrir andlitslýti
hans og málhelti sem stafa af andlit-
slömun í frumbemsku. Fjölmörg-
um ofbauð svo subbulegt athæfi og
er einhverra fréttamanna mál að
með þri hafi Kim og flokkur hennar
endanlega skotið sig sjálf í kaf.
stjómmálamaður hefur hann að
baki drjúga reynslu, þar eð hann var
fyrst kosinn á þing fyrir 30 ámm og
var í 20 ár ráðherra í hinum ýmsu
ráðuneytum frjálslyndra. M.a. hefur
hann verið fjármála-, orku-, dóms-
og indíánamálaráðherra og að sögn
fróðra manna gegnt 19 ráðherra-
embættum alls.
Best tókst Chrétien að ná til kjós-
enda í Ontario, sem hefur öðmm
fylkjum fremur verið fomstufylki
Kanada sem sambandsríkis, og í
austurstrandarfylkjunum fjórum
(Nýja Skotlandi, Nýju Brúnsvík, Ný-
frindnalandi, Játvarðsey), þar sem
atvinnuástand er með verra móti og
allþungar áhyggjur um hvað verða
muni um fylki þessi ef Québec klýf-
ur sig frá. Áfallalaust slapp Chrétien
þó ekki úr kosningunum. Vegna
þess að hann er eindregið á móti
skilnaðartilhneigingum Québec-
manna er hann miðlungi vinsæll í
heimafylki sínu og beið þar lægri
hlut fyrir BQ.
Nokkrar líkur em á að kanadísku
kosningaúrslitin verði byrjunin á
því að Kanada klofni í tvö ríki (ef
ekki fleiri) ensku- og frönskumæl-
andi manna. Úrslit þessi em líka síð-
asta hættumerkið af mörgum — og
líklega það ískyggilegasta til þessa
— fyrir gamalgróna flokka í stjóm-
málum Vesturlanda. Nefna má til
dæmis að í síðustu þingkosningum í
Frakklandi kaus aðeins um helm-
ingur kjósenda „gömlu og virðu-
legu" flokkana, hinir annaðhvort
kusu nýrri og „óábyrgari" flokka eða
sátu heima. Og fyrst svona fór fyrir
kanadíska íhaldsflokknum, hvað
tryggir þá t.d. bróðurflokk hans í
Bretlandi, sem hingað til hefur talið
sig ömggan í skjóli svipaðs flokka-
og kosningakerfis og Kanada hefur,
fyrir sömu örlögum?
IVIeð sínii nefi
í þættinum í dag verður enn einu sinni farið í smiðju til Savanna TVíós-
ins og gefnir hljómar við lag sem þeir hafa sungið inn á plötu. Að þessu
sinni verður fyrra lag þáttarins lagið „Svona er lífið — hvað um það“, en
það er höfðinginn á Kópareykjum, Jónas Ámason, sem gert hefrir texta
við hið heimskunna lag Bobs Dylan „Don’t think twice". Eflaust em ein-
hverjir sem vilja halda sig við ensku útgáfuna og verða þeir þá bara að
finna textann í söngbókum. Seinna lag þáttarins er ekki síður þekkt
meðal söngelskra íslendinga, en það er hið sívinsæla Iag „Gunna var í
sinni sveit".
Góða söngskemmtunl
SVONA ER LÍFIÐ — HVAÐ UM ÞAÐ
C G Am
Það tjóar ekki að sitja og gmfla gæskan,
F G
— útí hvemig komið er.
C G Am
Það tjóar ekki að sitja og gmfla gæskan,
F G
— upp frá þessu fer sem fer.
C C7
Mig varðar ei lengur um tryggð né trú
F C
og ástæðan til þess er einfaldlega sú,
C Am F
að ég er eins og ég er, og þú eins og þú,
C G C
en svona er lífið — hvað um það.
Það tjóar ekki að hrópa á mig, elskan,
ég hef heyrt þig hrópa nóg.
Það tjóar ekki að hrópa á mig, elskan,
mín er heill í hosiló.
Á öxl mér hangir aftur gamli sjópokinn,
í vestur út til strandar liggur vegur minn.
Þú vildir ekki gefa mér kveðjukoss á kinn.
En svona er lífið — hvað um það.
GUNNA VAR í SINNI SVEIT
C G
Gunna var í sinni sveit
Am F
saklaus, prúð og undirleit,
C G
hláturmild, en helst til feit, i
C G C
en hvað er að fóst um það.
Svo eitt haust kom mærin með
mjólkurbíl um leið og féð,
henni var það hálft um geð,
en hvað er að fóst um það.
E
Svo ieigði hún sér kvistherbergi
Am
upp við Óðinstorg
D7
og úti fyrir blasti við
G G7
hin syndumspillta borg.
c
o
o
< »
X 2 0 1 0 G
< »
o o
2 0 0 0 3 Am iT !
brr-j-
X 0 2 3 1 0
F
i > o
i
< » 4 >
X 3 4 2 1 1
E
n n i
i > 4 L i
J
0 2 3 10 0
D7
G7
3 2 0 0 0 1
Engum bauð hún upp til sín
og aldrei hafði hún bragðað vín,
horfði bara á heimsins grín,
en hvað er að fóst um það.