Tíminn - 06.11.1993, Síða 13
Laugardagur 6. nóvember 1993
Tíminn 13
„Kannomushi‘ (Æöiskastið) eftir Kazuichi Hanawa. I Japan er ekki gerður
hefðbundinn greinarmunur á góðum og slæmum bókmenntum, en jafnhliöa
sölublöðunum eru gerðar tilraunir með m.a. listrænar sögur. I þeim er oft að
finna tilvísanir til vestrænna bókmennta og menningar.
Frægasta framúrstefnublaðið er Garo, sem birti sögu Kazuichi Hanawas,
Kannomushi, um æskuár hans. Hanawa er með hringhugasýki.
í þessu dæmi hefur móðir hans látið hann I hendur nálastungulækni, sem á
að lækna hann af æðiskastinu.
Hanawa: Slðasta nálin, sú f hnakkanum, var verst. Ég hataöi þetta virkilega.
hundruð síðna blað kostar 250
krónur og kiljubók á bilinu 200 til
300 krónur.
Bestum árangri á myndablaða-
markaði Japans hefur 400 síðna
blaðið Shukan Shonen Janpu náð,
sem þýðir u.þ.b. „Stökk — viku-
blað fyrir drengi", en það er selt í
5 milljónum eintaka.
Auður og frami
f Japan eru meira en 3 þúsund
starfandi myndasöguteiknarar.
Höfundarétturinn í Japan felur
þeim full og ótakmörkuð ráð í
hendur um sköpun sagna sinna.
Unnt er að afla ógrynnis fjár á svo
stórum markaði. Stóru stjörnurn-
ar verða milljónamæringar og
standa jafnfætis popp- og kvik-
myndastjörnum í augum táning-
anna.
Margir japanskir unglingar láta
sig dreyma um að verða mynda-
söguteiknarar til þess að verða
ríkir og frægir, rétt eins og aðrir
láta sig dreyma um að verða kvik-
myndastjörnur. Nokkrum heppn-
ast það. Sér í lagi kvenfólk, sem
ræðst í starfið, hefur feril sinn á
unglingsárunum.
Þess eru einnig mörg dæmi, að
teiknarar búi einungis til eina at-
hyglisverða sögu, en hverfi síðan
af sjónarsviðinu, þegar þeir kikna
undan kröfum lesenda um afköst
og nýsköpun.
„Chinmoku no Kantai“ (Hinn þögli floti) eftir Kawaguchi Kaiji. Myndasagan hefur hlotiö mikla athygli I Japan og
meira aö segja valdið deilum á þinginu. Um er að ræða pólitíska spennusögu um uppreisn á fyrsta kjarnorku-
vopnaöa kafbát Japans, og þegar hann beinir vopnum slnum gegn öörum stórveldum heims.
Myndasagan gerir Iftið úr japönskum stjórnmálamönnum. Hún vekur spurningar um hernaðarlegt hlutverk Jap-
ans og Bandaríkjanna og er sérstaklega vinsæl meðal hermanna og — því miður — ungra hægrisinnaðra öfga-
manna.
Dæmið er framtíðarspá Lloyds tryggingafélagsins, sem telur að Atlantshafsflota Bandaríkjanna verði sökkt og
Hudsonfljót umbreytist I eldsvlti.
Sumir halda...
En rétt er...
...að mikil veisla bíði íslendinga
ef óheftur innflutningur á erlendum
landbúnaðarafurðum verður heimilaður.
...að þúsundir íslendinga sem starfa við
landbúnað og þjónustu í tengslum við hann munu
missa atvinnu sína og erlendar landbúnaðarafurðir munu
kosta þjóðina milljarða króna í erlendum gjaldeyri
- höfum við ráð á því?
ÍSLENSKUR
LANDBÚNAÐUR