Tíminn - 06.11.1993, Page 14
14 Tíminn
Laugardagur 6. nóvember 1993
Italski boltinn, 11. umferó íiimbbiiim^
Nágrannaslagur í Mílanó
Á morgun fer fram 11. umferð í ítalska boltanum. Stórleikur
umferðarinnar fer fram á San Siro þar sem að Inter og AC
Milan mætast í beinni útsendingu á Stöð 2, en einnig er stór-
leikur í Parma þar sem heimamenn taka á móti Juventus. Sl.
þriðjudag opnaði markaðurinn fyrir leikmannaskipti að nýju á
Italíu og eru miklar breytingar í vændum hjá flestum liðun-
um, sérstaklega þeim sem hefur gengið illa það sem af er
tímabilinu.
Inter getur þakkað Fontolan fyrlr áframhaldandi veru f Evrópukeppninnl, en
hann átti stórieik þegar Inter náöl jafntefii gegn Pollon Limassol f vlkunni.
Hvað gerir hann gegn grönnunum f AC Milan á morgun.
SJónvarpsleikur
INTER - AC MILAN
Intemazionale átti í miklum erfiðleikum með Pollon Limassol frá
Kýpur á miðvikudaginn og náði aðeins 3-3 jafntefli. Liðið komst þó
áfram í næstu umferð þar sem liðið sigraði í fyrri leiknum San Siro, 1-
0. Liðið getur þakkað Davide Fontolan fyrir jafnteflið en hann átti
stórleik, lagði upp fyrsta markið og skoraði það þriðja. Hann hefur
leikið ýmist sem vinstri bakvörður eða sem framherji á þessu tímabili
og ávallt verið meðal bestu manna liðsins. Ekki er búist við að það
verði gerðar miklar breytingar á leikmannahóp Inter en þó er næsta
víst að framherjinn Darko Pancev verði lánaður til Marseille til loka
tímabilsins.
Lfldegt byrjunarlið: Zenga, Bergomi, Orlando, Jonk, APaganin, Batt-
istini, Bianchi, Manicone, Fontolan, Bergkamp, Sosa.
AC Milan fékk FC Kaupmannahöfn í heimsókn á miðvikudaginn og
sigraði 1-0 í slökum leik þar sem margir fastamenn voru hvíldir.
Markvörðurinn Sebastiano Rossi, var á bekknum og fyrirliðinn
Franco Baresi, var hvíldur ásamt Roberto Donadoni sem á við smá-
vægileg meiðsli að stríða. Þá var Króatinn Zvonomir Boban, einnig
hvfldur en hann hefur átt fast sæti í liðinu á þessu tímabili og er næsta
víst að hann og Jean-Pierre Papin taki tvö að þremur sætum fyrir út-
lendinga í liðinu. Daninn Brian Laudrup, og Svartíjöllungurinn Dejan
Savicevic, léku báðir á miðvikudaginn og þótti Savicevic eiga skínandi
leik á meðan Laudrup hafði hægt um sig. Miðvörðurinn sterki, Aless-
andro Costacurta, missir af leiknum á morgun vegna leikbanns.
Líklegt byrjunarlið: Rossi, Panucci, Maldini, Albertini, Nava, Baresi,
Eranio, Boban, Papin, Savicevic, Simone.
ATALANTA - PIACENZA
Mikill órói hefur verið í herbúðum
Atalanta að undanfömu. Eftir 1-5
tap gegn neðsta liðinu, Lecce, um
síðustu helgi var þjálfarinn, Franc-
esco Giudolin, rekinn. Cesare
Prandelli og Andrea Valdinoci hafa
tekið við liðinu en Prandelli hefur
stjómað unglingaliði félagsins með
miklum ágætum síðustu ár. Talið er
ömggt að Brasilíumaðurinn Ri-
cardo Alemao sé á förum frá liðinu
en ósætti er milli hans og nýrra
stjómenda liðsins. Hann æfir ekki
lengur með aðalliðinu og hefúr nú
beðið samtök leikmanna að aðstoða
sig í deilunni. f hans stað kemur
Argentínumaðurinn Leo Rodriguez,
inn í liðið á morgun. Liðið hefur
áhuga á nokkmm leikmönnum til
að styrkja hópinn og efstur á óska-
listanum er Luciano De Paola frá
Lazio. Einnig hafa þeir áhuga á
Andrea Poggi, 27 ára bakverði frá
Venezia, Stefano Nava frá AC Milan,
Matteo Villa frá Cagliari, Fabio Ros-
sitto frá Udinese og Silvano Bene-
detti frá Roma.
Lfldegt byrjunarlið: Ferron, Valent-
ini, Minaudo, Pavan, Montero, Mag-
oni, Orlandini, Sauzée, Ganz, Perr-
one, Rodriguez.
Piacenza gerði jafntefli við Napoli
um síðustu helgi og virðist nú vera
að komast í gang. Óvíst er hvort
framherjinn Marco Ferrante, verði
með á morgun en hann er meiddur
á vinstra hné og hefur verið á séræf-
ingum í vikunni. Félagið hyggur
ekki á miklar breytingar en Fulvio
Simonini, 32 ára framherji, er
sennilega á fömm.
Lfldegt byijunarlið: Táibi, Polonia,
Brioschi, Suppa, Chiti, Lucci, Turr-
ini, Papais, Iacobelli, Moretti, Pio-
vani.
CREMONESE - LECCE
Cremonese leikur á morgun án arg-
entíska framherjans Gustavo Dez-
otti, en hann meiddist á hné á æf-
ingu á miðvikudaginn. Andrea Ten-
toni sem var meiddur um síðustu
helgi kemur inn í liðið í hans stað.
Líklegt byrjunarlið: Turci, Gualco,
Pedroni, De Agostini, Colonnese,
Verdelli, Giandebiaggi, Nicolini,
Tentoni, Maspero, Florjancic.
Lecce virðist loksins vera komið í
gang og um síðustu helgi vann liðið
stórsigur, 5-1, á Atalanta. Liðið hef-
ur nú keypt framherjann Kwame
Ayew, frá Metz sem átti samning
hans að hálfu á móti bróður hans,
Abedi Ayew (sem betur er þekktur
undir nafninu Abedi Pelé). Liðið
hefur einnig áhuga á að fá bakvörð-
inn Gabriele Grossi, frá Roma en
hann var hjá Lecce á síðasta tímabili
sem lánsmaður og stóð sig mjög vel.
í staðinn hefur liðið látið Alessandro
Morello fara til Acireale og leyst
Brasilíumanninn Claudio Toffoli,
SÆVAR
HREKMRSSON
SKRIFAR UM
ÍTALSKA
BOLTANN
undan samningi.
Lfldegt byrjunarlið: Gatta, Biondo,
TVichera, Padalino, Verga, Notari-
stefano, Gazzani, Melchiori, Russo,
Gerson, Baldieri.
NAPOLI - LAZIO
Diego Maradona mætir sennilega
sínum gömlu félögum í Napoli und-
ir lok ársins en félag hans, Newell’s
Old Boys, hefur boðið Napoli til Arg-
entínu í desember til að leika tvo æf-
ingaleiki. Á morgun leikur liðið án
fríherjans sterka, Giovanni Bia, sem
skoraði mark liðsins gegn Piacenza
um síðustu helgi, en hann er í leik-
banni. Liðið hyggur ekki á miklar
breytingar á markaðnum en er þó
tilbúið að láta miðjumennina Luca
Altomare, Mario Massimo Caruso og
Fausto Pari af hendi og vitað er að
Genua hefur mikinn áhuga á Car-
uso.
Lfldegt byrjunarlið: Táglialatela,
Ferrara, Francini, Gambaro, Canna-
varo, Nela, Di Canio, Bordin,
Fonseca, Buso, Pecchia.
Lazio teflir fram Króatanum Alen
Boksic, í fyrsta skipti á morgun en
hann var keyptur frá Marseille fyrir
skömmu. Liðinu hefur gengið vel í
deiidinni að undanfömu en á
fimmtudag tapaði liðið fyrir Boa-
vista í Portúgal, 2-0, og er þar með
úr leik í Evrópukeppni félagsliða.
Paul Gascoigne hefur ekki leikið
með liðinu að undanfömu og er nú í
Englandi að láta huga að meiðslum
sínum. Áhugavert verður að sjá
hvaða stöðu Alen Boksic tekur í lið-
inu og óvíst er hvort honum verður
stillt upp í fremstu víglínu eða að-
eins fyrir aftan fremstu menn.
Lfldegt byrjunarlið: Marchegiani,
Bergodi, Favalli, Winter, Luzardi, Di
Matteo, Fuser, Doll, Casiraghi,
Boksic, Signori.
PARMA - JUVENTUS
Parma varð fyrir mikilli blóðtöku
um síðustu helgi þegar belgíski
landsliðsmaðurinn Georges Gmn,
meiddist í leik gegn Inter. Hann
leikur ekkert næstu fjóra mánuði og
Parma hefur áhuga á að fá annað-
hvort Basile Boli eða Marcel Desailly
frá Marseille til að fylla í skarð hans.
Á miðvikudaginn lék Parma gegn
ísraelska liðinu Maccabi Haifa í Evr-
ópukeppni bikarhafa og náði að
merja sigur eftir vítaspymukeppni.
Markvörðurinn Luca Bucci, var
hetja liðsins þegar hann varði tvær
vítaspyrnur. Arrigo Sacchi landsliðs-
þjálfari íhugar nú að velja hann í
landsliðshóp sinn.
Lfldegt byrjunarlið: Bucci, Benarri-
vo, Di Chiara, Minotti, Apolloni,
Matrecano, Brolin, Zoratto, Crippa,
Zola, Asprilla.
Juventus lék á þriðjudaginn gegn
norska liðinu Kongsvinger, á Delle
Alpi og sigraði 2-0. Liðið varð þó fyr-
ir því áfalli að brasilíski miðvörður-
inn Julio Cesar, meiddist og verður
ekki með liðinu næstu tvo mánuði
en auk hans em Angelo Peruzzi,
Massimo Carrera og Gianluca Vialli
á sjúkralista. Juventus hefur selt
vamarmanninn Antonio De Marchi,
til Bologna og Roberto Galia er
sennilega á fömm einnig.
Lfldegt byrjunarlið: Rampulla,
Torricelli, A.Fortunato, D.Baggio,
Kohler, Porrini, Di Livio, Conte, Ra-
vanelli, R.Baggio, Möller.
ROMA - FOGGIA
Roma hefur keypt Massimiliano
Cappioli frá Cagliari til að styrkja
liðið á miðjunni og ekki er ólíklegt
að hann leiki fyrsta leik sinn fyrir
liðið á morgun þar sem bæði Gius-
eppe Giannini og Sinisa Mihajlovic
em í leikbanni. Nokkrir leikmanna
liðsins hafa verið orðaðir við önnur
félög og ber þar hæst að markvörð-
urinn, Fabrizio Lorieri, er hugsan-
lega á fömm til Udinese. Hann hefur
staðið sig mjög vel á tímabilinu en
var tekinn úr liðinu um síðustu
helgi vegna ósættis við Carlo Mazz-
one þjálfara. Þá er Alessio Scarchilli
einnig orðaður við Udinese, Roberto
Muzzi við Lecce, Antonio Comi við
Reggiana og Silvano Benedetti við
Atalanta.
Lfldegt byrjunarlið: Cervone,
Garzya, Benedetti, Bonacina, Lanna,
Carboni, Hassler, Piacentini, Balbo,
Cappioli, Rizzitelli.
Ekki er gert ráð fyrir að Foggia geri
miklar breytingar á leikmannahóp
sínum. Félagið hefur selt varnar-
manninn Gianluca Grassadonia, til
Salernitana og Giuseppe Fornaciari
og Paolo Mandelli eru sennilega á
fömm frá félaginu. í staðinn hefur
hann áhuga á að fá unglingana Lee
og de Waal frá Haarlem í Hollandi. A
morgun leikur liðið án vamar-
mannsins Giovanni Bucaro sem er í
leikbanni.
Lfldegt byrjunarlið: Mancini,
Chamot, Nicoli, Sciacca, Di Bari, Bi-
anchini, Cappellini, Di Biagio, Koli-
vanov, Stroppa, Roy.
SAMPDORIA - CAGLIARI
Sampdoria sigraði frækilegan sigur
á AC Milan um síðustu helgi og ætti
ekki að eiga í erfiðleikum með
Cagliari. Á morgun leikur liðið þó
án bakvarðarins Marco Rossi, sem
hefur legið veikur í rúminu þessa
viku. Þá hefur Alberigo Evani einnig
átt í meiðslum en vonast er til að
hann verði tilbúinn í slaginn á
morgun. Sampdoria hefur áhuga á
að fá til liðsins Stefano Desideri frá
Udinese en er tilbúið að láta Mauro
Bertarelli, Giovanni Invemizzi og
Ivano Bonetti fara frá félaginu.
Lfldegt byrjunarlið: Pagliuca,
Mannini, DallTgna, Gullit, Vierc-
howod, Sacchetti, Lombardo, Kat-
anec, Platt, Mancini, Evani.
Cagliari gerði markalaust jafntefli
við Trabzonspor á miðvikudaginn í
Evrópukeppni félagsliða og komst
áfram á mörkum skoruðum á úti-
velli. Liðið seldi í vikunni Massimili-
ano Cappioli til Roma fyrir um 240
milljónir ísl. króna. í staðinn hefur
félagið áhuga á að fá Dario Marcolin
frá Lazio og De Cresci frá Empoli.
Einnig hefur verið nefndur sá
möguleiki að láta Max Allegri fara til
Udinese og fá annaðhvort Stefano
Desideri eða Nestor Sensini í stað-
inn.
Lfldegt byijunarlið: Fiori, Villa,
Pusceddu, Napoli, Bellucci, Firic-
ano, Moriero, Bisoli, Valdes, Matte-
oli, Oliveira.
TORINO - REGGIANA
Torino getur þakkað hinum smá-
vaxna framherja, Benito Carbone,
fyrir sigurinn gegn Aberdeen í Evr-
ópukeppni bikarhafa á miðvikudag-
inn. Hann stóð sig frábærlega og
lagði upp bæði mörk Iiðsins í 2-1
sigri. Torino er ekki sagt hafa áhuga
á að kaupa sér nýja menn en líklegt
þykir að framherjinn Carlos Aguil-
era, verði seldur aftur til Genoa. Þá
er einnig líklegt að Paolo Poggi,
Marco Sinigaglia og Marcelo Sara-
legui séu á fömm.
Lfldegt byrjunarlið: Galli, Mussi,
Sergio, Annoni, Delli Carri, Fusi,
Francescoli, Fortunato, Silenzi,
Carbone, Venturin.
Reggiana hefur áhuga á að fá sér
nýjan framherja til að leysa Johnny
Ekström af hólmi. Efstir á óskalist-
anum em Portúgalinn Toni frá
Porto og Kólumbíumaðurinn
Freddie Rincon, sem er í eigu Parma
en er í láni hjá Palmeiras í Brasilíu.
Þá hefur Reggiana einnig áhuga á
vamarmanninum Antonio Comi frá
Roma. Á morgun leikur liðið án
vamarmannsins Michele Zanutta en
Stefano Torrisi tekur sæti hans.
Lfldegt byijunarlið: Taffarel, Parl-
ato, Torrisi, Chembini, Sgarbossa,
Accardi, Esposito, Scienza, Pado-
vano, Picasso, Morello.
UDINESE - GENOA
Udinese hyggur á miklar breytingar
á liði sínu á næstunni. Liðið hefur
þegar fengið til sín Danann Thomas
Helveg, frá Odense og selt Luca
Mattei til Pisa. Helveg er 22ja ára
hægri bakvörður sem hefur staðið
sig mjög vel í dönsku knattspym-
unni og var í ólympíulandsliðinu í
Barcelona á síðasta ári. Udinese
hafði einnig áhuga á Tony Daley en
vildi fá hann að láni til að byrja með
og það var óásættanlegt fyrir Aston
Villa þannig að ekkert verður af
samningum. Frá Cagliari vill liðið fá
Max Allegri, frá Genúa Eduardo
Bortolazzi, Marco Nappi og John
Van’t Schip og frá Udinese Fabrizio
Lorieri og Alessio Scarchilli. í stað-
inn er liðið tilbúið að láta Fabio Ros-
sitto, Stefano Desideri og Nestor
Sensini.
Lfldegt bytjunarlið: Caniato, Pelle-
grini, Montalbano, Sensini, Rossini,
Desideri, Rossitto, Kozminski,
Branca, Biagioni, Pittana.
Genoa tapaði enn einum leiknum
um síðustu helgi, 0-4, gegn Juvent-
us og reynir nú hvað það getur að fá
til sín nýja menn til að styrkja liðið.
Liðið reyndi að fá Dejan Savicevic
frá AC Milan en því hafnaði Milan al-
farið. Næstir á óskalistanum em
framherjinn Carlos Aguilera frá Tor-
ino og Francesco Dell’Anno frá Inter
og öllu líklegra er að þeir gangi til
liðs við félagið. Á morgun leikur lið-
ið án fyrirliðans Gianluca Signorini,
og framherjans Roberto Murgita,
sem báðir em meiddir. Þá er Vinc-
enzo Torrente, varnarmaðurinn
sterki, í leikbanni.
Líklegt byrjunarlið: Berti, Petrescu,
Lorenzini, Cavallo, Caricola, Gal-
ante, Ruotolo, Bortolazzi, Skuhravy,
Vink, Ciocci.