Tíminn - 04.01.1994, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 4. janúar 1994
wtmmm
13
Lœkkun matarskattsins:
Verö á matvöru
undir smásjána
„Ég treysti kaupmönnum til að
standa með okkur launamönn-
um, eins og þeir gerðu svo vel
hér um árið. En ef þeir bregðast
okkur þá munum við svo sann-
arlega láta í okkur heyra," segir
Leifur Guöjónsson hjá verðlags-
eftirliti Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar.
Að frumkvæði ASÍ stóð Sam-
keppnisstofnun fyrir könnun á
verði matvæla í hátt í 200 versl-
unum í nóvember sl. ábur en
áhrifa frá jólatilboðum kaup-
manna fór að gæta í verðlagn-
ingunni. En sameiginleg neftid
ASI, BSRB og Neytendasamtak-
anna, ásamt Samkeppnisstofn-
un, fýlgist með því að lækkun
matarskattsins skili sér til neyt-
enda.
„Matvömverð í verslunum um
land allt verður kannað á nýjan
leik fljótlega og þá mun það
koma í ljós hvemig lækkun
matarskattsins hefur skilað sér
til hins almenna neytanda og
heimilanna í landinu," segir Jó-
hannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna.
Meðal samtaka launafólks og
Neytendasamtakanna hefur
ekki verið tekin ákvörbun um
frekari skref, s.s. að koma á fót
kvörtunarþjónustu eða al-
mennri auglýsingaherferð. Jó-
hannes segir að það sé hinsveg-
ar ekkert útilokað í þeim efn-
um.
„Þab er stefna þessara aðila að
reyna ab tryggja þab með að-
haldi að lækkun matarskattsins
skili sér. En það má ekki gleyma
mikilvægasta aðhaldinu í þessu
efnum sem er almenningur
sjálfur. Ef neytendur fylgjast vel
meb vömverði og láta vita í
sinni verslun og hjá sínu félagi,
þá hef trú á því að þaö verði
hægt ab tryggja ab lækkunin
skili sér. En til aö svo verði þarf
góða aðstoð almennings," segir
formaður Neytendasamtak-
anna. -grh
Stjom SVR fær ekki
nyja skrifstofu
Ekkert verður af áformum meiri-
hluta borgarstjómar Reykjavíkur
um að innrétta skrifstofu fyrir
stjómamefnd SVR hf. í Mjódd.
Kostnaöur við innréttingamar
var áætlaður um 20 milljónir
króna. Sigrún Magnúsdóttir borg-
arfulltrúi gagnrýndi þessi áform
harðlega og sagði fráleitt að
breyta SVR í hlutafélag til þess
eins aö auka vib yfirbyggingu í
fyrirtækinu.
Stjómamefnd SVR hf. mun eftir
sem áður fá eigin skrifstofu. Skrif-
stofan veröur í gamla Morgun-
blaðshúsinu við Aðalstræti. -EÓ
A fyrsta vinnudegi afmælisárs lýöveldisins var Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands, Davíb Oddssyni for-
sœtisráöherra, og Salome Þorkelsdóttur, forseta Alþingis, afhent merki Þjóöhátíöarársins 1994 í viöhafnarútgáfu.
Merkiö er hannaö af jóni Ágústi Pálmasyni teiknara. Formaöur Þjóöhátíöamefndar, Matthías Á. Mathiesen, af-
henti þeim merkiö. Tímamynd cs
Róleg áramót
í Reykjavík
Hátíðarhöld um áramót í
Reykjavík fóm vel fram og fóm
menn almennt rólega í sakimar
við ab skemmta sér að sögn lög-
reglu. Tilvik þar sem lögregla
þurfti að hafa afskipti af fólki
vegna ölvunar vom þó nokkuð
fleiri en um síðustu áramót.
Tvö útköll bámst vegna bmna
á gamlárskvöld. Tilkynnt var
um eld í sinu á þaki húss við Sil-
ungakvísl um miðnætti, en
skemmdir reyndust óvemlegar.
Þá kviknaði í garðhúsi við
Bleikjukvísl og skemmdist hús-
ið talsvert. Talið er að kviknað
hafi í út frá rakettu sem farið
hafi undir þakskegg garðhúss-
ins. Veður var mun betra nú í
Reykjavík á gamlársdag og ný-
ársnótt heldur en í fyrra, sem
m.a. sýndi sig í því að hafa
þurfti afskipti af 25 ökumönn-
um fyrir of hraöan akstur á
móti einum um áramótin
1992/1993. -ÁG
Tvö börn létust
Tvö böm létust þegar íbúð-
arhús brann á bænum
Stöllum í Biskupstungum á
nýársnótt. Þau hétu Pétur
Steinn Freysson og ísabella
Diljá Hafsteinsdóttir. Pémr
Steinn var átta ára og ísa-
bella Diljá fjögurra ára.
Ekki hefur verið skorið úr
um hvað olli eldsupptök-
unum en lögreglan á Sel-
fossi ásamt slökkviliði og
rafmagnseftirliti vinna að
rannsókn málsins. Húsið
er talið gerónýtt eftir bmn-
ann.
-AG
Sumir halda • • •
En rétt er...
...að mikil veisla bíði íslendinga
ef óheftur innflutningur á erlendum
landbúnaðarafurðum verður heimilaður.
...að þúsundir íslendinga sem starfa við
landbúnað og þjónustu í tengslum við hann munu
missa atvinnu sína og erlendar landbúnaðarafurðir munu
kosta þjóðina milljarða króna í erlendum gjaldeyri
- höfum við ráð á því?
ISLENSKUR
LANDBUNAÐUR