Tíminn - 04.01.1994, Side 17
Þri&judagur 4. janúar 1994
sjávarafurðadeild Sambandsins í
Reykjavík frá 1958 til 1964.
Sumarið 1964 fluttist Guðjón til
Lundúna og gerðist fram-
kvæmdastjóri skrifstofu Sam-
bandsins þar í borg. Þá og lengi
síðan var skrifstofan með bland-
aðan rekstur í þeim skilningi að
hún sinnti annars vegar sölu á
íslenskum afurðum, en hins
vegar innkaupum fyrir deildir
Sambandsins og fleiri aðila á ís-
landi. Á fyrri hluta árs 1968
fluttist Guðjón aftur heim til ís-
lands með fjölskyldu sína og
gerðist framkvæmdastjóri Sjáv-
arafuröadeildar Sambandsins í
Reykjavík. Því starfi sinnti hann
í sjö ár, en á vordögum 1975
varð hann við þeirri eindregnu
ósk forsvarsmanna Sambands-
ins og framleiðenda í frystiiðn-
aði að flytja vestur um haf til að
taka við yfirumsjón Iceland
Products Inc., sem þá átti við
mikla erfiðleika að stríða. Talað
var um að Guðjón yrði tvö ár
vestra, en liðið var langt á tólfta
árið þegar hann og fjölskylda
hans fluttust heim til íslands á
ný. Hann tók við forstjórastarfi í
Sambandinu 1. september 1986
og gegndi því til ársloka 1992, er
hann lét af störfum af heilsufars-
ástæðum.
Þetta er í örstuttu máli starfs-
saga Guðjóns hjá Sambandinu
og fyrirtækjum þess. Þá em ótal-
in stjómunarstörf í fjölmörgum
fyrirtækjum, utan lands og inn-
an, þar sem Guöjón átti hags-
muna að gæta, en í langflestum
þessara fyrirtækja var hann
st j ómarformaður.
Þegar Guðjón tók við stjórn
Sjávarafurðadeildar árið 1968
voru miklir erfiðleikatímar, en
hann var einstaklega vel í stakk
búinn til að takast á við þaö erf-
iba verkefni sem þarna beið
hans. Hann þekkti deildina,
framleiðendur hennar og afurð-
ir þeirra frá fyrri störfum og þótt
ungur væri að árum flutti hann
með sér reynslu af markaðsmál-
um, bæöi austan um haf og vest-
an. Hér varð líka árangurinn svo
sem efni stóðu til. Deildin efld-
ist mjög undir stjórn Guðjóns
og snemma á framkvæmda-
stjómarferli hans var endanlega
gengiö frá starfsfyrirkomulagi
viö framleiðendur, sem átti eftir
að verða mjög farsælt. Þeir
stofnuðu með sér Félag Sam-
bandsfiskframleiðenda, skamm-
stafaö SAFF, en það félag gerði
samning viö Sambandiö um
50% rekstraraðild að Sjávaraf-
urðadeild. Þetta ágæta fyrir-
komulag var við lýði frá 1. janú-
ar 1969 til ársloka 1990, er fyrir-
tækiö íslenskar sjávarafurðir hf.
var sett á stofn.
Árin, sem Guðjón var fram-
kvæmdastjóri í Sjávarafurða-
deild, 1968 til 1975, sátum við
fyrst saman í framkvæmdastjóm
Sambandsins. Fékk ég þá góða
hugmynd um störf hans að
framleiðslu- og markabsmálum,
en Gubjón var einstaklega dug-
legur við að halda okkur félög-
um sínum upplýstum um það
sem efst var á baugi í starfsvett-
vangi hans. Þama kynntist ég
fyrst að marki þeirri lifandi frá-
sagnargáfu sem hann var gædd-
ur. Líflegur fundur á Húsavík,
tvísýnir loðnusamningar í To-
kyo eða jafnvel hersýning á
Rauða torginu, meban beðið var
eftir því að Prodintorg boðaði til
næsta samningafundar — allt
varö þetta ljóslifandi fyrir okkur
í litríkri frásögn Guðjóns.
Árib 1975, þegar Guöjón hvarf
vestur um haf til að taka vib
stjórn þess fyrirtækis sem hann
nokkm síðar gaf nafniö Iceland-
ic Seafood Corporation, varö að
ráði að ég tæki viö starfi hans í
Sjávarafuröadeild. Qg nú fóm í
hönd ár mikilla ævintýra; þau ár
uröu ekki tvö, eins og upphaf-
lega var fyrirhugaö, heldur tólf.
Það er ekki of sterklega til oröa
tekiö að Guðjón hafi tekið við
þungu skipi er hann settist viö
stjórnvölinn hjá Iceland
Products Inc. á vordögum 1975.
Fyrirtækiö haföi oröið fyrir
miklum áföllum og var nú svo
komið aö allt eigið fé var til
þurrðar gengið og höfuðstóll
orðinn neikvæður. Bandaríkja-
markaður var þá ráðandi í mark-
aðssetningunni og viðbúið að
sölukerfi samvinnumanna
myndi hrynja, ef ekki tækist að
bjarga Iceland Products frá yfir-
vofandi rekstrarstöðvun. Á ótrú-
lega skömmum tíma tókst Guð-
jóni að snúa þessu þunga skipi
til réttrar stefnu. Fyrirtækið skil-
aöi góðum hagnaöi strax á fyrsta
heila árinu hjá Guöjóni og síðan
á hverju ári á meðan hann var
vestra. Þegar ég árum síðar
minntist þessara tvísýnu tíma-
móta varð mér á að vitna til
orða, sem fyrir margt löngu vom
viðhöfð um atburði sem einnig
urðu í Vesturheimi: „Hér kom
íslenskt afl og það hóf úr jörðu
steininn." Svo sannarlega var
hér Grettistaki lyft, til hagsbóta
fyrir alla aðstandendur fyrirtæk-
isins.
Iceland Seafood Corporation,
eins og fyrirtækið heitir nú,
sinnir ekki aðeins markaðs- og
sölustarfi, heldur starfrækir fyr-
irtækið einnig stóra fiskrétta-
verksmiðju. Þessi tvíþætta starf-
semi á sér langa sögu. Góðan ár-
angur Guðjóns má tvímælalaust
rekja til þess að hann náði strax
afburðagóðum tökum á þessum
þáttum báðum. í stjórnunartíð
hans vestra efldist sölustarfið
mjög; í vaxandi magni jókst sal-
an í margfeldinu 2 til 3, en í
verðmætum um 4 til 5. Fram-
leiðslu- og geymslurými var
stækkað mikiö og eldri húsa-
kostur endurnýjaður. Reist var
vel búin þróunarstöð er gegndi
lykilhlutverki við þróun nýrra
afurða. Guðjón haföi mikinn
áhuga á nýjungum í fram-
leiðsluháttum og hafði vakandi
auga með nýjum framleiöslu-
tækjum sem á markaðinn komu.
Það gat ekki farið fram hjá okk-
ur, sem áttum samleib með
Guðjóni, hverrar virðingar og
trausts hann naut hjá öllum
þeim sem skipti áttu vib Iceland
Seafood Corporation. Þetta átti
jafnt viö um þá, sem afurðir
keyptu af fyrirtækinu, og hina
sem lánuðu því rekstrarfé; og
ekki skulu kollegar á markaös-
torginu heldur undan skildir,
þeir sem stýrðu fyrirtækjum í
hliðstæöum viðskiptum. Guð-
jón var eftirsóttur fyTirlesari á
ráðstefnum þar sem fjallað var
um frystiafurbir. Hjá honum fór
saman yfirburðaþekking á við-
fangsefninu og afburðagóður
flutningur. Hann var stjórnar-
maður frá 1981 til 1986 í Na-
tional Frozen Food Association,
bandarískum samtökum fyrir-
tækja sem framleiða fryst mat-
væli og versla með þau, og frá
1984 til 1989 var hann stjómar-
formaður í NASA (North Átlant-
ic Seafood Association), en það
em samtök fiskveiðiþjóða við
Norbur-Atlantshaf sem selja af-
urðir sínar á Bandaríkjamarkaöi.
Forvígismenn International Se-
afood Conference, alþjóðlegrar
rábstefnu um sjávarfurðir sem
haldin er víða um lönd, sæmdu
Guöjón sérstakri heiðursnafn-
bót fyrir störf hans að markaös-
málum sjávarafurða og sæmdur
var hann Riddarakrossi hinnar
íslensku Fálkaorðu.
Sá var háttur Guðjóns að halda
einn stjómarfund á ári vestra og
var hann haldinn að hausti til.
Mér eru þessir fundir minnis-
stæðir fyrir góðan faglegan und-
WfSWfWil
irbúning Guðjóns og samstarfs-
manna hans; aubvitab jók það á
ánægju okkar fundarmanna ab
fréttirnar vom jafnan góðar og
svo sannarlega nutum viö þess
að sjá fyrirtækið eflast frá ári til
árs. Og þá vil ég ekki síður
minnast firábærrar gestrisni sem
þau hjónin, Lúlú og Guðjón,
auösýndu okkur við þessi tæki-
færi. í því efni spöruðu þau
hvorki sjálf sig né heimili sitt og
var jafnan svo til hagað aö
mannfagnaður yrði ekki einasta
til gleði heldur og til gagns í því
efni að skapa tengsl við þýðing-
armikla kaupendur.
Eins og fram hefur komið,
gerðist Gubjón forstjóri Sam-
bandsins 1. september 1986.
Næstu árin urbu ár mikilla erfið-
leika og mikilla átaka, sem víst
er aö enginn gat séð fyrir þegar
Guðjón hvarf frá því blómlega
búi sem hann hafði skapað
starfsfólki og eigendum Iceland
Seafood Corporation. Fljótlega
eftir forstjóraskiptin upphófust
umræður um skipulagsmál Sam-
bandsins og komu þegar fram af
hálfu stjómarmanna hugmynd-
ir um að breyta aöaldeildum
þess í sérstök fyrirtæki. Þessar
hugmyndir voru Guöjóni ekki
að skapi og hygg ég að framtíð-
arsýn hans hafi snúist um stórt
deildaskipt fyrirtæki, þar sem
hver aðaldeild byggi við mikið
sjálfstæöi, stjórnunarlega sem
fjárhagslega. Undir mitt ár 1990
komust stjórn Sambandsins og
aðalfundur aö þeirri niðurstöðu
að ráðlegast væri að breyta öll-
um aðaldeildum Sambandsins í
hlutafélög. Guöjón lýsti því þá
yfir að hann mundi vinna heils
hugar að framgangi skipulags-
breytingar í þessa veru, enda
væri hún byggö á lýðræöislegri
ákvörðun stjórnar og aðalfund-
ar. Við þetta fyrirheit stóð hann
og sparaöi sig hvergi við það
starf sem framundan var.
Svo minnisstæður sem Guðjón
er mér frá þeim tíma, er hann
stóð á hátindi frama síns, þá
mun mér og heldur aldrei úr
minni líða hetjuleg barátta hans
við erfiðan sjúkdóm. Með því
hugrekki, sem þar gat að líta,
mundi hver maöur vilja mæta
örlögum sínum, en eins víst er
hitt að það mun fáum gefib.
Á kveðjustund minnist stjórn
Sambandsins með þökk og virb-
ingu starfa Gubjóns B. Ólafsson-
ar fyrir Sambandið og fyrirtæki
þess, bæði utan lands og innan.
Fyrir hönd stjómarinnar og okk-
ar Ingu votta ég Lúlú, börnum
hennar og allri fjölskyldunni
dýpstu samúð. Með miklum
trega minnumst við hjónin þess
tíma, sem liðinn er og aldrei
verður endurheimtur. Guð
blessi minningu Guöjóns B. Ól-
afssonar.
Siguröur Markússon
Dagvist barna
Greiðslur til foreldra
vegna bama á aldrinum tveggja og hálfs árs til
fjögurra og hálfs árs, sem ekki nýta leikskólaþjón-
ustu á vegum Reykjavíkurborgar eöa aðra dagvist-
arþjónustu styrkta af Reykjavíkurborg.
Áfundi borgarstjórnar hinn 16. des. s.l. voru samþykkt-
ar eftirfarandi reglur;
1. Greiðsluár skiptist í fjögur þriggja mánaða tímabil.
Útborganir fara fram mánuði síðar en hverju tímabili
lýkur, í fyrsta sinn 1. maí 1994.
2. Samkvæmt reglum þessum hafa þeir foreldrar rétt á
greiðslum sem eiga börn sem verða tveggja og hálfs
árs á viðkomandi tímabili og skulu greiðslurnar standa
að óbreyttum forsendum þar til börnin ná fjögurra og
hálfs árs aldri.
3. Greiðslur með hverju barni skulu nema þeirri upp-
hæð, sem ákveðin er í fjárhagsáætlun hverju sinni sem
rekstrarstyrkur fyrir hvert barn á einkaleikskóla og
nemur nú kr. 6.000 á mánuði.
4. Sækja þarf sérstaklega um greiðslur fyrir hvert tíma-
bil á þar til gerðum eyðublöðum. Umsókn verður að
berast eigi síðar en viku eftir að greiðslutímabili lýkur.
Til þess að auðvelda væntanlegum umsækjendum að
staðfesta vilja sinn til þess að gerast aðilar að þessu
nýja fyrirkomulagi hefur verið ákveðið að taka við pönt-
unum á upplýsingum og umsóknareyðublöðum í síma
Dagvistar barna 27277. Eyðublöð verða síðan send út,
en þeim ber að skila eigi síðar en viku eftir að greiðslu-
tímabili lýkur, þ.e. fýrir 7. apríl 1994, fyrir fyrsta tímabil-
ið. ■ *
Hringið í síma 27277 og óskið eftir að fá frekari
upplýsingar og/eða umsóknareyðublað. Vinsam-
legast gefið upp nafn og heimilisfang ásamt kenni-
tölu umsækjanda og barns eða barna sem sækja á
um greiðslu fyrir.
Dagvist barna.
Umhverfisráðuneytið
LAUS STAÐA
Umhverfisráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar stöðu
skrifstofustjóra umhverfisskrifstofu ráðuneytisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi, hlotið haldgóða
stjórnunarreynslu og hafa gott vald á íslensku og
erlendum tungumálum, þ.á.m. ensku.
Æskilegt er að viðkomandi hafi starfsreynslu úr opinberri
stjórnsýslu, þekki til alþjóðasamstarfs eða hafi
menntun/starfsreynslu á sviði umhverfismála.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf,
sendist umhverfisráðuneytinu fyrir 22. janúar 1994.
Happdrætti
Styrktarfélags
vangefinna
Vinningsnúmer
1. vinningur: Corolla hatchback XLi kr. 1.200.000
nr. 29730.
2.-5. vinningur: Bifreiðar að eigin vali á kr. 450.000
nr. 7135 - 9297 - 17295 - 25691.
Félagið þakkar veittan stuðning.
Gleðilegt nýár.
Styrktarfélag vangefinna
RMTTU^vt RAUTT]
tiós r* &r/V«l wfe UMFERÐAR ^ Uráð L/ÓS/ —s