Tíminn - 04.01.1994, Blaðsíða 19
19
Þribjudagur 4. janúar 1994
Einvígi
Évgení Ónegín
TONLIST
Évgení Ónegín eftir Tsjækovskí,
25. verkefni Islensku óperunnar
frá stofnun 1979, var frumsýnt
30. desember viö mikla hrifn-
ingu áhorfenda. Enda var ekkert
til sparaö fremur en fyrri daginn
aö gera sýninguna sem best úr
garöi. Aö þessu sinni sá hópur
gamalla vina og samstarfs-
manna frá Covent Garden-
óperunni í Lundúnum um
hljómsveitarstjóm (Robin
Stapleton), leikstjóm (John
Copley), dansa (Terry Giibert)
og búninga (Michael Stennett),
en leikmyndina gerði Robin
Don; hún er aö hluta til byggö á
mynd úr sýningu sem Rostróp-
óvitsj stjómaði og hlaut gull-
verölaun í Prag árið 1980. Allir
leystu þessir menn sitt verk vel
af hendi, og ekki síöur bera þeir
íslensku óperunni vel söguna
fyrir kunnáttu blandna eld-
móöi. Eftir leikstjóranum Copl-
ey er þaö haft, en hann stjómar
ekki ópemm annars staöar en I
heldri húsum — London, New
York, Berlín, San Francisco,
Sydney, Reykjavík — að hér sé
þaö m.a. óvenjulegt hve prýöi-
legir leikarar söngmenn ís- .
lensku ópemnnar em. Hér kann
aö gæta áhrifa stálhanska Þór-
hildar Þorleifsdóttur frá liðnum
ámm.
Óperan Évgení Ónegín er
byggö á samnefndum kvæða-
bálki Púshkíns, sem í rússnesk-
um bókmenntum skipar svipað-
an sess og Njáluhöfundur og
Jónas Hallgrímsson til samans.
Bálkurinn, sem er um 800 blaö-
síöur, er harðrímaður meö sér-
stökum hætti, skyldum son-
nettunni. Ópemtextinn er að
sjálfsögöu miklu styttri, en í
sumum atriöum er kvæöið
óbreytt. Þennan texta þýddi
Þorsteinn Gylfason á einum
mánuði 1 sumar, trúr þeirri
stefnu ab halda bragarhættin-
um, en þó þannig aö sönghæft
væri og fyllílega skiljanlegt. Þor-
steinn hefur unnið þama
merkilegt hagleiksverk, sem
prentaö er í heild sinni í veg-
legri leikskrá. Því miöur er þaö
auðvitað svo, að talsvert af text-
anum fer fyrir ofan garð og neð-
an hjá áheyrendum, því sung-
inn texti viíl vera torskilinn. Þó
em sumir söngvaramir mjög
skýrmæltir og ber sannarlega að
lofa þaö. í leikskrána skrifa að
vanda margir kunnáttumenn
læröar ritgeröir um Púshkín,
Tsjækovskí og Ónegín, sem of-
langt yröi upp að telja.
Söguþráöur ópemnnar er svo
einfaldur, aö sumum þykir
hann ómerkilegur. En þrátt fyrir
þaö hafa bæöi kvæöi og ópera
reynst óbrotgjörn vegna snilli-
gáfu skálds og tónskálds. Rúss-
nesk kona, sem ég hitti á sýn-
ingunni, sagðist hafa veriö látin
læra allar 800 blaðsíðumar ut-
anbókar í skóla. í stuttu máli
segir óperan, meö orðum Áma
Bergmann í leikskránni, frá
ungum tískusnáp, Ónegín, lífs-
leiðum fyrir aldur fram, sem
lætur þaö fara svo í taugamar á
sér aö Tatjana, ung og saklaus
sveitadama, játar honum í sak-
leysi ást sína, aö hann spillir ást-
um vinar síns, skáldsins róman-
tíska, Lenskís, og Olgu, systur
Tatjönu. Og verður skáldinu að
bana í heimskulegu einvígi.
Hittir svo Tatjönu nokkmm ár-
um síöar og hrífst af henni yfir-
máta og ofurheitt, en er vísað
frá, því hún er öömm manni
gefin og ætlar sér aö vera hon-
um trú.
Ólöf Kolbrún Haröardóttir
syngur Tatjönu og vinnur mjög
eftirminnilegan sigur. Ýmsir
höfðu taliö aö hlutverkið sómdi
sér betur í höndum yngri söng-
konu, vegna þess að Tatjana er
ung stúlka í fyrri hluta óper-
unnar. En gegn því vom mörg
rök: í fyrsta lagi er Tatjana full-
þroska kona í þriðja þætti, í
ööm lagi ræður engin ung söng-
kona við þetta hlutverk, allra
síst „bréfsönginn" í fyrsta þætti,
og í þriðja lagi er Ólöf ótrúlega
ungleg í æskugervi Tatjönu. Nú
um stundir henta Ólöfu best
dramatísk hlutverk sem þetta,
enda vom bæði leikur hennar
og söngur mjög glæsileg.
Bergþór Pálsson er Ónegín.
Hann sómir sér sömuleiðis vel í
sínu hlutverki, er prýbilegur
leikari með mjög skýran texta-
framburð. Hið dramatíska loka-
atriði ópemnnar er samt full-
öfgakennt hjá þeim Ólöfu og
Bergþóri, sönglega séð, og
sömuleibis var kvartett þeirra
Tatjönu, Ónegíns, Lenskís og
Olgu í fyrsta þætti mjög mis-
heppnaður, líkastur því sem Ga-
lína Vishnjefskæja lýsir söngn-
um í Scala- ópemnni þar sem
hver beljar sem mest hann má
án tillits til heildarsvips. Þar
þyrfti söngstjórinn að taka til
hendi.
Besti einsöngvarinn í ópemnni
er vafalaust Gunnar Guðbjöms-
son í hlutverki Lenskís; sannur
atvinnumaður og sómi hvers
ópemhúss.
Olgu, yngri systur Tatjönu og
unnustu Lenskís, syngur Ing-
veldur Ýr Jónsdóttir, ung söng-
kona sem starfar í Vínarborg.
íngveldur er lífleg söngkona og
hæfir hlutverkinu vel.
Gubjón Óskarsson uppfyllir nú
þær vonir, sem margir festu við
hann þegar hann fyrst kom
fram í smáhlutverki í Toscu fyrir
nokkmm ámm. Nú syngur
hann Gremín fursta, fremur lít-
ib hlutverk, en með einni fræg-
ustu bassaaríu rússneskra tón-
bókmennta, og gerir þar afar
vel.
í minni hlutverkum em m.a.
Hrönn Haflibadóttir (Fi-
lipévna), Sieglinde Kahmann
(Larína), Sigurður Bjömsson
(Monsieur Triquet) og Bjami
Thor Kristinsson (Zeretskí). Öll
skapa þau eftirminnilegar per-
sónur í leik og söng; hin þrjú
fyrstnefndu em kunn af fyrri af-
rekum, en Bjami Thor er vafalít-
ið meðal efnilegustu bassa-
söngvara vona.
Kórinn frægi, kór íslensku
ópemnnar, bætir hér ennþá
einni fjöður í hatt sinn með því
ab skapa íslenska dansflokkn-
um harða samkeppni auk mjög
fallegra söngatriða. Dansahöf-
undurinn Terry Gilbert hefur
vafalaust unnið afrek í sínu
starfi; þó hefur þessum pistla-
höfundi jafnan verib ofarlega í
minni þokkafullur ballettdans
ópemsöngvaranna Guðmundar
Jónssonar og Más Magnússonar
í forsýningu íslensku ópemnnar
árið 1978 eða svo, þannig að
lengi skal manninn reyna.
Þess var ábur getib að leik-
myndin vann gullverðlaun
1980, og þarf vart að fara fleiri
orðum um hana. Búningamir
em sömuleiðis fallegir og
smekklegir; Hulda Kristín
Magnúsdóttir var aðalhönnubi
til aðstoöar. Vel heppnað var
veisluatriðið í síðasta þætti, þar
sem allir vom í samlitum fötum
aðrir en furstahjónin Tatjana og
Gremín, til aö undirstrika abal-
og aukapersónur. Hugsanlega
hefði mátt gera eitthvað svipaö
í fyrsta atriði ópemnnar.
Jóhann B. Pálmason er ljósa-
meistari, en Zbigniew Dubik
leiðir hljómsveitina. Meðal
ósýnilegra aðstandenda sýning-
arinnar em hins vegar Kristín S.
Kristjánsdóttir sýningarstjóri,
Iwona Jagla æfingastjóri og
Garðar Cortes kórstjóri, auk
fjölda annarra.
„Svo sem þér sjáið, svo munuð
þér uppskera," sagbi Frelsarinn,
og eins er það meb þessa sýn-
ingu íslensku ópemnnar. ís-
lendingum henta víst jafnan
best harðar tangarsóknir, og hér
hefur verib unnið af miklum
krafti og alúð í allt haust, frá því
þýðandinn lauk sínu verki í
byrjun september og menn fóm
að læra hlutverkin, og allt til
fmmsýningar fjómm mánub-
um seinna. Útlendir ópem-
merin, sem vissu hvað til stób
þegar byrjaö var aö þýða text-
ann í ágúst, héldu að fmmsýn-
ingin ætti að verða árib 1995
eba ‘96. Hér hefur íslenska óper-
an sannlega lyft ennþá einu
Grettistaki með glæsibrag.
Sig. St.
Stjörnuspá
Stefngeitin 22. des. - 19. jan.
Þú skalt ekki geyma þab til morg-
uns sem þú getur gert í dag. Gam-
all kunningi mun reyna að ná
sambandi við þig en þú græðir
ekkert á því þótt honum tákist
þab.
Vatnsberinn 20. jan. -18. febr.
Þetta getur orbið útlátasamur
dagur, en óþarfi er ab örvænta
því fjármálin munu komast í lag
þótt síðar verði. Tlminn er þér
hagstæöur ef þú kannt að not-
færa þér tækifærin sem bjóðast.
Fiskamir 19. febr. - 20. mars
Best er að láta sem minnst á sér
bera í dag og hefja engin meiri
háttar verk. Það þýðir samt ekki
að framtíðin sé ekki björt því
margt kann að breytast á skömm-
um tíma.
h.
Hrúturinn 21. mars -19. apríl
Vinátta sem er þér mikils virbi
getur bebið hnekki ef ekki er var-
lega farib. Ákvarðanataka er erfið
en samt verbur ab standa við gef-
in heit.
Nautib 20. apríl - 20. maí
Þetta er góður dagur til ferðalaga
og til ab sletta úr klaufunum.
Samt er réttast ab ganga hægt um
gleðinnar dyr því skammt kann
ab vera milli hláturs og gráturs.
Tvíburamir 21. maí - 21. júní
Rækta ber fjölskyldutengsl betur
en gert hefur veriö undanfarib.
Erfiðleikar í sambúð eru ekki ný-
lega til komnir en þá má bæta
meb góðum vilja ef allir leggjast á
eitt.
HSt
Krabbinn 22. júní - 22. júlí
Þú hefur áhyggjur af vinnunni og
ættir ab einbeita þér meira ab
vinum þínum en daglegu striti.
Ef þú ert heppinn hlýturðu
óvæntan glaöning næstu daga.
Ljónib 23. júlí - 22. ágúst
Hafa ber í huga að misstíga sig
ekki í fjármálum því margar
hættur eru á sveimi. Hins vegar
eru tækifærin góð en vandinn er
sá ab velja og hafna. Ef rétt er val-
ið er framtíbin björt.
Meyjan 23. ágúst - 22. sept.
Mikið reynir á dómgreind þína í
dag. Trúðu ekki öllu sem sagt er
og farðu ekki að rábum annarra
nema ab vel athuguðu máli.
tl
Vogin 23. sept - 23. okt.
Þú færb tiiboð sem erfitt er ab
hafna og láttu bjartsýni rába
gjörðum þínum. Ef einhver býð-
ur þér út skaltu þiggja þab.
Sporbdrekinn 24. okt.-21. nóv.
Góður vinur kemur á óvart og er
það undir þér komið hvort þab
verbur til góðs eða ills. Varast ber
ferðalög eða afdrifarikar ákvarð-
anir.
Bogmaburinn 22. nóv.-21. des.
Þetta er góður dagur fyrir þá sem
eru bjartsýnir en getur verið vara-
samur fyrir abra. En bjartsýni og
skyndiákvarðanir geta leitt þig á
villigötur