Tíminn - 04.01.1994, Síða 21
Þriöjudagur 4. janúar 1994
21
Endurhæfingarhappdrætti
))M Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra 1993.
Dregið var 24. desember 1993.
Vinningaskrá:
Bifreið Nissan Primera 2.0 SLX
kr. 1.775.000: 18082
Bifreið Nissan Micra 1.3 LX kr. 985.000:
22893 47191 69454 71196 80758
Vöruúttekt hjá Heimilistækjum hf.
kr. 160.000:
2334 13935 41314 48304 69545 74553
6769 37763 43737 57835 73939 89342
3-5 daga ferðir fyrir tvo til heimsborga
Flugleiða kr. 100.000:
66 10091 40451 50362 76690 79305
5400 12692 41918 51993 77066 80717
5882 21704 42099 55770 77758 82156
9434 24747 45325 62587
Helgarferðir fyrir kr. 30.000: tvo með Flugleiðum
847 20148 30418 42559 52329 69291
5094 20442 31865 43273 53921 70057
5212 22135 35937 44834 57235 72027
7277 23870 37224 45465 59137 72223
8122 26222 37637 45520 60112 73657
16235 26253 40103 45581 65291 85045
17489 29986 42239 51539 Birt án ábyrgðar.
Þjóðhátíðarsjóður
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 1994.
Samkvaemt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361, 30. september 1977,
er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra aðila,
er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verð-
mæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Frið-
lýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruverndarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til varð-
veislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menningarverð-
mæta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni i
samræmi við megintilgang hans, og komi þar einnig til álita viðbót-
arstyrkir til þarfa, sem getið er í liðum a) og b).
Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag
til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka
önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra
við þau."
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Umsóknarfrestur
er til og með 25. febrúar 1994. Eldri umsóknir ber að endurnýja.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðs-
stjórnar, Sveinbjörn Hafliðason, I síma (91) 699600.
Reykjavík, 29. desember 1993.
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS^
Ferðamenn, athugið
Með gildistöku EES-samningsins um áramótin geta
þeir sem eiga lögheimili á Islandi átt rétt á aðstoð
vegna skyndilegra veikinda eða slysa í öðru EES-
landi, i samræmi við reglur í viðkomandi landi.
Þeir sem ætla að ferðast til EES-lands snúi sér til
Tryggingastofnunar ríkisins eða umboða hennar áður
en lagt er af stað og fái þar sérstaka staðfestingu á
að þeir séu sjúkratryggðir. Framvísun á staðfesting-
unni tryggir framangreinda aðstoð.
Eyðublöð vegna staðfestingarinnar munu liggja
frammi á ferðaskrifstofum og á söluskrifstofum Flug-
leiða.
Eftirfarandi lönd eru aðilar að EES-samningnum:
Belgía, Danmörk, Þýskaland, Grikkland, Spánn,
Frakkland, Irland, Italía, Lúxemborg, Holland, Port-
úgal, Bretland, Austurríki, Finnland, Island, Liechten-
stein, Noregur og Svíþjóð.
Staðfestingin er óþörf sé ferðast til Norðurlanda og
Bretlands.
Frekari upplýsingarfást hjá Tryggingastofnun ríkisins
í síma 604526 og 604547.
Þaö fór vel á meö Gorbatsjov- hjónunum og jámfrúnni Margréti Thatcher, sem þótti styðja umbótastefnu hans dyggilega
á sínum tíma.
Gorbatsjov lætur
Ijós sitt skína
Það hefur farið frekar lítið fyrir
Mikhaíl Gorbatsjov frá því að
hanrt lét af embætti forseta Sovét-
ríkjanna og fáir landa hans virðast
sakna hans.
Hann hefur þó alltaf verið vin-
sæll á Vesturlöndum og það virðist
ekkert hafa breyst, því þar er harrn
mjög eftirsóttur fyrirlesari.
Nýlega var hann ásamt Raísu
konu sinni á fyrirlestraferð í Bret-
landi og hélt m.a. erindi í Edin-
borg, Oxford og Lundúnum. Þar
viðraði hann skoðanir sínar á
stjórnmálaaðstæðum heima fyrir
sem og á heimsvísu.
Gorbatsjov var umkringdur
fylgdarliði, en fremst í flokki og sú, .
sem vekur jafnan mesta athygli, er
eiginkonan Raísa.
Hún handleggsbrotnaði nýlega,
en lét það þó ekki aftra sér frá að
ferðast með eiginmanni sínum.
Áður en þau hjón lögðu af stað,
krafðist hún þess að gifsumbúðir
um brotið yrðu fjarlægðar og vart
var hægt að greina á fasi hennar
að hún hefði átt við meiðsli að
stríða.
í viðtali, sem þau hjón veittu í
ferðinni, vakti athygli hversu um-
hyggjusamur Gorbatsjov var.
Hann var stöðugt að inna konu
sína eftir líðan hennar og óttaðist
greinilega að stíf ferðaáætlun ylli
henni óþægindum. Þess má og
geta að Raísa er sögð hafa fengið
vægt hjartaáfall skömmu eftir
sögulegt, en stutt valdarán harð-
línuaflanna í ágústmánuði 1991.
Svo virðist sem Raísa hafi jafnað
sig fullkomlega eftir þessi áföll og
þar fór kona greinilega hvergi
bangin.
Gorbatsjov-hjónin hafa verið gift
í 40 ár og hjónabandið virðist
traust. Þau kynntust í ríkisháskól-
anum í Moskvu árið 1953, en þar
voru þau bæði við nám. Raísa er
doktor í heimspeki og hlaut nafn-
bótina eftir að hafa lagt stund á fé-
lagslegar rannsóknir á samyrkju-
búum. Það voru fyrstu rannsóknir
sem voru gerðar á félagslegum
vandamálum sveitafólks. Það var
fleira sem gerði Raísu sérstæðari
en eiginkonur annarra Sovétleið-
toga. Hún var sú fyrsta sem tók
virkan þátt í heimsóknum eigin-
manns síns til útlanda, og vakti
aðdáun leiðtoga fyrir þekkingu og
hæfni. Hún lét eigin frama víkja
fyrir frama eiginmanns síns, sem
hún helgaði alla sína krafta.
í viðtali við Gorbatsjov segist
hann aðspurður ekki hafa neinar
áætlanir um að hrinda af stað
þingkosningum á nýjan leik, en
orðrómur hefur verið á kreiki um
það. Þá kemur fram að nú helgar
Gorbatsjov alla krafta sína stofnun
sem ber nafn hans, og þá vinnur
hann einnig að endurminningum
sínum. Þau hjón segjast aðspurð
hafa engu
minna að gera
en þegar Gor-
batsjov var for-
seti, því þessu
til viðbótar eru
þau tíðum er-
lendis í fyrir-
lestraferðum.
Forsetinn
fyrrverandi er
inntur eftir því
hvort hann
telji sig hafa
verið svikinn, í
kjölfar valda-
ránsins, í við-
leitni sinni til
að bæta líf al-
múgans. Hann
játar því að
það sé hægt að
kalla það svik
þegar nánir
samstarfsmenn
fóru að vinna
gegn honum í
valdaránstil-
r a u n i n n i.
Hann segir þá
hafa komið í
veg fyrir und-
irritun á sam-
bandssamningi
Sovétríkjanna,
sem og að
hægt væri að
hrinda í fram-
kvæmd að-
gerðum til að
koma í veg fyrir efnahagskreppu.
Hann óttast ekki um framtíð
Rússlands og telur að líf almúgans
muni batna. Þá telur hann að
breytingar muni eiga sér stað á
stjórnmálasviðinu og menn muni
draga lærdóm af reynslu síðustu
tveggja ára.
f þessari ferð hittu Gorbatsjov-
hjónin gamlan vin, sem varla er
hægt að telja með skoðanabræðr-
um Gorbatsjovs, en það er engin
önnur en fyrrum forsætisráðherra
Breta, sjálf járnfrúin Margrét
Thatcher, sem bauð þeim til há-
degisverðar.
Þaö var létt yfir Gorbatsjov-hjónum, sem heimsóttu nýlega
Bretland, en þar hélt Gorbatsjov fynriestra.