Tíminn - 26.02.1994, Síða 15
Laugardagur 26. febrúar 1994
S'fjniimi
15
Jökull Sigurösson
Vatni, Haukadal, Dalasýslu
Fæddur 24. október 1938
Dáinn 20. febrúar 1994
Elskulegur faðir okkar, tengda-
faðir og afi, Jökull Sigurösson, er
látinn. Þær harmafregnir bárust
okkur síöla dags þann 20. febrú-
ar að okkar yndislegi faðir hafi
orðið bráðkvaddur við messu í
Snóksdalskirkju, þar sem hann
var staddur ásamt kórfélögum
sínum.
Það var eins og syrti fyrir aug-
um og hyldýpi sorgarinnar
helltist yfir. Af hvequ elsku
pabbi okkar? Hann sem var enn
á besta aldri, alltaf svo hraustur
og lífsglaður. Við systkinin höf-
um ekki aðeins misst hlýjan og
ástríkan föður, sem við elskuð-
um svo heitt, því viö öll, böm
og tengdaböm, horfum nú með
djúpum söknuði á eftir kæmm
vini og skemmtilegum félaga yf-
ir móðuna miklu.
Jökull faðir okkar útskrifaðist
liölega tvítugur frá íþróttakenn-
araskólanum að Laugarvatni.
Eftir það kenndi hann tvö ár í
Reykjavík og síðan sex ár við Al-
þýöuskólann aö Eiðum. Þaðan
fluttist hann ásamt eiginkonu
sinni, Hugrúnu Björk, og okkur
bömunum vestur í Dali og tók
hann ásamt móður okkar við
býlinu á Vatni í Haukadal að
fööur sínum, Sigurði Jörunds-
syni, látnum.
Fljótlega eftir vesturkomuna
hóf hann störf sem kennari á
Laugum í Sælingsdal þar sem
fjölskyldan hafði búsetu um tíu
ára skeið. Eftir að hafið var mik-
iö uppbyggingarstarf á Vatni,
bæði á jörð og húsakosti, fluttist
Jökull ásamt fjölskyldu sinni
þangað. Jafnframt færði hann
sig þá um set sem kennari og
hóf að kenna við grunnskólann
í Búöardal, þar sem hann starf-
aði allt fram til síðasta dags.
Jökull faðir okkar helgaði sig
snemma félagsmálastörfum í
sýslunni og má segja að hann
hafi ekki látið sitt eftir liggja til
að félagslíf gæti orðið blómlegra
í Dölunum. Hans mim löngum
verða minnst fyrir hnyttnar
sögur, Ijóöagerð og skemmtileg-
an frásagnarstíl og varla var sú
árshátíð, þorrablót eða önnur
gleöisamkoma haldin í Dölun-
um, að faðir okkar hafi ekki
troöiö upp með einhverjum
hætti. Söngur var hans líf og
yndi og mun skarð hans innan
sem utan kirkjukórsins líkast til
seint verða fyllt.
Ætla má að okkar elskulegi faö-
ir sé ekki aðeins syrgður innan
fjölskyldunnar, því líklega er
söknuður sveitunga, samkenn-
ara, nemenda og annarra vina
einnig mikill. Flestir þeir, sem
urðu þess aðnjótandi að kynn-
ast honum betur, sáu hve góö-
an, um allt fróðan og skemmti-
legan mann hann hafði að
geyma. Af fáu hafði hann eins
gaman og aö setja saman vísur
og jafnvel heilu ljóðabálkana.
Við í fjölskyldunni erum sam-
mála um aö hann hafi einmitt
veriö í mikilli sókn á þessu sviði
hin síöari ár.
Missir okkar í fjölskyldunni er
mikill og sár. Allt frá fyTstu tíð
hefur hann verið okkur svo
mikil stoö og stytta. Elsku pabbi
var ekki bara félagsmálamaður
út á við, því hann hafði líka ein-
stakt lag á að halda fjölskyld-
unni og ættingjunum saman.
Hann var aldrei eins glabur og
þegar hann gat haft okkur öll í
kringum sig, ástkæra eiginkonu
sína, böm, tengdaböm og
bamaböm að ógleymdum
systkinum hans, systkinaböm-
um og öbram vinum, sem alla
tíb hafa haldið svo mikilli
tryggð viö hann og fjölskylduna
á Vatni. Hann var höfuð ættar-
innar, sá sem meb traustum
armi hélt okkur öllum saman,
ræktaði ættar- og vinartengslin.
Nú, þegar fabir okkar, tengda-
faöir og afi er horfinn úr okkar
t MINNING
jaröneska heimi, viljum við
bömin hans þakka fyrir þann
tíma sem viö höfum fengið að
hafa hann hjá okkur héma
megin. Þótt hann sé nú ekki
lengur hér hjá okkur, þá trúum
við þvi staðfastlega að einhverj-
ir aðrir hafi þarfnast hans meira
og að hans hafi beöið meira að-
kallandi verkefni í einhverri
annarri tilvera. Vib trúum því
að í þeirri tilvera sé bjart og
hlýtt og að þar muni hann bíða
okkar hinna. Hinum sára sökn-
uði, sem við beram í brjósti,
veröur eigi með oröum lýst. Hið
stóra skarð, sem myndast hefur
í fjölskyldu okkar, verður seint
fylit.
Þegar komið er að því að
kveðja föður okkar, sem var alla
tíð styrka stoðin í fjölskyldunni,
virðast orðin hjóm eitt. Þar sem
hann var mikill gleðinnar mab-
ur, sem naut sín hvað best vib
söng og glens, höfum vib kosiö
ab minnast hans sem slíks. Þótt
sál hans sé nú upphafin til ann-
arrar tilvera, mun minningin
um hann lifa björt og fögur í
huga okkar allra.
Elsku faðir okkar, tengdafaðir
og afi. Okkur finnst við hæfi að
kveðja þig með ljóðinu sem við
sungum svo oft öll saman hér á
Vatni, ljóðinu sem þér þótti svo
vænt um. Megi Guö gæta þín,
elsku pabbi, vib elskum þig og
hugsum til þín alla tíð. Við biðj-
um góðan Guð að styrkja okkar
yndislegu móður í hennar
miklu sorg.
Undir Dalanna sól við minn
einfalda óð
hefég unað við kyrrláta fór,
undir Dalanna sól hefég lifað mín
Ijóð,
hefég leitað og fundið mín svör,
undir Dalanna sól heféggœfuna
gist,
stundum grátið, en oftast í
fógnuði kysst.
Undir Dalanna sól á ég bú mitt og
ból
og minn bikar, minn arin, minn
svefnstað og skjól.
(Hallgrimur Jónsson frá Ljárskógum)
Sóley, Óli Bjami,
Jörundur, Sigrún,
Sigurður Hrafri, Helga,
Auður Edda, Hanni.
Bamabömin
Jökull Sigurösson, bóndi á
Vatni í Haukadal, lauk við að
syngja fyrsta erindi Passíusálm-
anna í kirkjukómum í Snóks-
dalskirkju, gekk þá út og var
bráðkvaddur, 56 ára gamall.
Upp, upp, mín sál og allt mittgeð,
upp mitt hjarta og rómur með,
hugur og tunga hjálpi til,
herrans pínu eg minnast vil.
(H. Pétursson)
Kalliö kom skyndilega og öll-
um á óvænt. Ég bjóst við ab þeg-
ar komungir synir mínir stálp-
uðust fengju þeir að nema Njálu
af vöram Jökuls í miðjum hey-
önnum — líkt og ég fékk þegar
ég var þar í sveit — syngja meö
honum íslensku sönglögin og
ræða við hann um bókmenntir
og heimspeki, jafnvel siðfræði,
því að Jökull var vel ab sér í
þeim efnum og hafbi gott
hjarta. Það var óhætt aö hlýða
leiðsögn slíks manns.
Eftir á að hyggja finnst mér
undarlegt að Jökull hafi gefið
sér tíma til að skeggræða við
óharðnaðan ungling um lífsgát-
urnar, þótt það hafi sannarlega
verið eftirminnilegt og þrosk-
andi. En ástæðan er blátt áfram
sú að hann kom fram við alla
sem jafningja. Þess vegna var
hann vinsælí og er nú sárt sakn-
að.
í Jökli og Hugrúnu Þorkelsdótt-
ur, konu hans, fann ég einlæga
vini og tengdist bömum þeirra
vináttuböndum sem ekki rofna.
Hvenær sem ég kom vestur í
Dali, lét ég aldrei hjá líða að líta
inn hjá þeim á Vatni. Eftir að ég
flutti utan til Svíþjóðar urðu
heimsóknimar óhjákvæmilega
stopulli, en enginn efaðist um
að nægur tími væri til stefnu.
Rödd Jökuls er þögnub, en hún
hljómar í minningunni: Þar er-
um við enn á ferð að skila hesti
á Brjánslæk, gefa á jötu í fjár-
húsinu nýja eða skjóta út sil-
ungsnetum. í minningu minni
mun hann ávallt lifa.
Þegar Jökull nú er til moldar
borinn dvel ég því miöur fjarri,
en hugur minn og hjarta era á
Vatni hjá Hugrúnu og bömun-
um, Sigrúnu Sóleyju, Jörandi,
Sigurði Hrafni og Auði Eddu og
fjölskyldum þeirra. Ég og fjöl-
skylda mín vottum ykkur djúpa
samúð. Gub styrki ykkur í sorg-
inni. Blessuð sé minning Jökuls.
Ragnheiður Traustadóttir
Absendar greinar,
afmælis- og
minningargreinar
sem birtast eiga í blaöinu
þurfa að hafa borist ritstjórn
blabsins, Stakkholti 4, gengib
inn frá Brautarholti, tveimur
dögum fyrir birtingardag, á
disklingum vistabar í hinum
ýmsu ritvinnsluforritum sem
texti, eba vélritabar.
SÍMI (91) 631600
DAGBOK
Laugardaqur
ié
febrúar
58. daqur ársins - 307 dagar eftir.
8. vika
Sólrís kl. 8.46
sólariag kl. 20.36
Dagurinn lengist
um 7 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nagrenni
Abalfundur félagsins verbur á
morgun, sunnudaginn 27. febrúar,
kl. 13.30 á Hótel Sögu, Súlnasal.
Venjuleg aðalfundarstörf, laga-
breytingar og stjómarkjör.
ÖÚ spilamennska fellur niður í Ris-
inu sunnudag.
Dansab í Gobheimum kl. 20
sunnudagskvöld.
Mánudag: Opib hús í Risinu kl. 13-
17.
Söngvaka er í Risinu kl. 20.30
mánudagskvöld. Stjómandi er Ei-
ríkur Sigfússon og undirleik annast
Sigurbjörg Hólmgrímsdóttir. Les-
hópurinn um Sturlungu kemur
saman kl. 17 á mánudag í Risinu.
Laugardælakirkja
Messa sunnudag kl. 14. Prestur
Kristinn Ágúst Friðfinnsson.
Frístundahópurinn
Hana-nú, Kópavogi
Á mánudagskvöldið þann 28.
febrúar nk. kl. 20.00 er Kleinukvöld
hjá Hana-nú í félagsheimilinu Gjá-
bakka, Fannborg 8. Sýnd verður
vídeómynd frá starfinu í haust, síb-
an verba bomar fram nýsteiktar
kleinur og rjúkandi kaffi og ab lok-
um verbur stiginn dans við ljúfa
harmónikkuhljóma.
Snæfellingar og
Hnappdælir
Árshátíö Félags Snæfellinga og
Hnappdæla verður í Breiðfirbinga-
búb, Faxatúni 14, Iaugardaginn 5.
mars n.k. Gestir frá Grundarfirði
sækja félagiö heim og skemmta.
Heiðursgestir: Ingibjörg Kristjáns-
dóttir og Guðmundur Runólfsson
útgerðarmabur. Hátíðin hefst meb
fordrykk kl. 19. Miöasala í Breibfirð-
ingabúð þriðjudaginn 1. mars og
miðvikudaginn 2. mars kl. 17 til 19.
Miðaverð kr. 3.200, en eftir borð-
hald kr. 1.000. Félagar eru hvattir til
að tryggja sér miða í tíma og taka
með sér gesti.
Laugardagskaffi Kvenna-
listans
í laugardagskaffi Kvennalistans í
dag verbur fjallab um breytinga-
skeiðið. Kristín Einarsdóttir, lífeölis-
fræðingur og þingkona, fer yfir líf-
fræðilega þætti breytingaskeiðsins
og stýrir almennum umræbum.
Kaffiö er á Laugavegi 17, 2. hæð, og
hefst klukkan 11. Allir velkomnir.
^RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð 94002
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að byggja
lager-, verkstæðis- og skrifstofuhús við Vesturtanga 8-
12 á Siglufirði.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns-
veitna ríkisins við Suðurgötu 4, Siglufirði, Ægisbraut 3,
Blönduósi, og Laugavegi 118, Reykjavík, frá og með
fimmtudeginum 24. febrúar 1994 gegn kr. 15.000 í
skilatryggingu.
Verkinu á að vera að fullu lokið föstudaginn 28. október
1994. ■
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins
á Blönduósi fyrir kl. 14:00 mánudaginn 14. mars 1994
óg verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðend-
um sem þess óska.
Tilboöin séu í lokuöu umslagi, merktu: „RARIK-94002
Siglufjörður— Húsnæði".
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi118,
105 REYKJAVÍK.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða í eftirtalin störf á leikskólann
Steinahlíð við Suðurlandsbraut:
Yfirfóstru í fullt starf.
Matráðskonu í 75% starf.
Báðar stöðurnar losna 1. maí n.k.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 33280.
Þá vantar sérhæfðan starfsmann í 50% stuðn-
ingsstarf á leikskólann Drafnarborg við Drafn-
arstíg.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 23727.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.