Tíminn - 07.04.1995, Page 8

Tíminn - 07.04.1995, Page 8
8 VfMtlim Föstudagur 7. apríl 1995 Frásögn Ijósmyndar- ans, sem tók frœga mynd afsovéska fán- anum á þaki ríkis- þinghússins í Berlín Senn er hálf öld liðin frá því aö heimsstyrjöldinni síöari lauk í Evrópu og til standa hátíöahöld af því tilefni. í því sambandi birt- ast nú á ný í fjölmiölum frétta- myndir, sem teknar voru á loka- dögum ófriöar þessa. Ein sú fræg- asta af þeim sýnir tvo sovéska hermenn vera aö koma sovéska fánanum fyrir á þaki byggingar þýska þingsins (Reichstag), yfir rústum Berlínar. Myndina tók (meö vél af gerö- inni Leica) ljósmyndari í þjón- ustu Tass-fréttastofunnar sov- ésku, Jevgenníj Khaldei að nafni, gyðingur fæddur í Úkraínu. Hann lifir enn, kominn hátt á áttræðis- aldur, og býr í smáíbúð (eins her- bergis) í norðurhverfum Moskvu. Þegar hann tók sína frægustu mynd, var hann búinn að fylgja sovéska hernum allt stríðiö og hafði tekið fjölda mynda af her- mönnum í bardögum og af sov- éskum borgurum sem fengu að kenna á stríðinu. Örlög fjölskyldu Ætla má að Khaldei hafi þá stundum komist í hann krappan, en það var þá ekki í fyrsta sinn. Móðir hans var skotin til bana í gyðingaofsóknum í Donetsk 1918. Kúlan, sem varð henni aö bana, stöðvaðist í líkama Jevg- enníjs, sem hún var með í fang- inu og var þá eins árs. En hann lifði það af. í stríðinu, þar sem hann var með sem ljósmyndari, skutu þýskir nasistar til bana föð- ur hans og þrjár systur. Bróbir hans missti báða fætur í stríðinu. Nú var það ekki svo, ab Khaldei væri vibstaddur af tilviljun er rauða fánanum var stillt upp á þaki ríkisdagshússins. Athöfnin var sett á sviö meb myndatökuna fyrir augum. Khaldei segir svo frá í viðtali við breska The Sunday Times að fáninn, sem var aðalatriöið á þessari mynd mikils sigurhróss, hafi verib borðdúkur, sem hann hafi fengið lánaðan hjá birgða- stjóra einum í Moskvu. Khaldei og klæðskeri einn, vinur föður hans, voru síðan heila nótt að því að búa til hamars-sigöar- og stjörnutákn og sauma þetta í dúk- inn, svo ab hann líktist sovéskum fána. Síðan hraðaöi Khaldei sér til Berlínar með dúkinn og fékk til tvo hermenn að festa hann upp á þak þinghússins. Heföi Khaldei verið í þjónustu vestræns fjölmiöils og í fylgd með herjum vesturveldanna, þáver- andi bandamanna Rússa, er ekki ólíklegt ab hann hefði efnast sæmilega út á myndir sínar, og þá sérstaklega þessa af fánanum á þinghúsþakinu. En Tass hafði höfundarréttinn á myndum hans og sjálfur auögaðist hann ekki á þeim. Honum var ekki einu sinni hrósað fyrir frægustu mynd sína og var meira að segja ekki laust við aö hann sætti ákúrum út af henni. „Þaö er hræðilegt" Fyrst var þab birgðastjórinn, sem brást vib reiður og skelfdur er Khaldei sagði honum aö dúkur- inn, sem hann hafði lánað, væri enn á þaki þinghússins í Berlín. Birgðastjórinn var á nálum um að hann yrði gerbur ábyrgur fyrir hvarfi dúksins og að þab leiddi af sér meiriháttar vandræöi fyrir hann. Engrar hrifningar gætti heldur Rauöi fáninn yfir rústum Berlínar — umrcedd frœg mynd Khaldeis. Uriö sem var þurrkaö út hjá ritstjóra Khaldeis, er hann leit á myndina. „Gerirðu þér grein fyrir af hverju þú hefur tekið mynd?" sagöi ritstjórinn við ljós- myndarann. „Já, þetta er mynd af strákunum okkar uppi á Reich- stag," svarabi Khaldei. „Nei!" svaraði ritstjórinn. „Þetta er mynd af hermanni með tvö arm- bandsúr! Það er hræðilegt." Alldrjúgur þáttur í sögu sóknar sovéska hersins vestur á bóginn í heimsstyrjöldinni síðari var saga rána og nauðgana. Armbandsúr voru þá fágæt munaðarvara í Sov- étríkjunum. Af frásögnum ýms- um að dæma urðu sovéskir her- menn þekktir mebal þýsks al- mennings fyrir að sækjast eftir úr- um öllu fremur, næst á eftir konum og áfengi. Allt þetta tóku þeir ósleitilega til sín með ofbeldi. Þá kvað hafa verið algeng sjón að sjá sovéska hermenn með fram- handleggina alsetta armbandsúr- um. Annar hermannanna á þakinu, sem var frá Dagestan (sá sem á myndinni stybur félaga sinn sem er að festa fánastöngina), var meb úr á báðum úlnliðum. Khaldei segist ekki hafa tekib eftir því er hann tók myndina. Fasistarnir aftur En vitaskuld var þab ekki „pól- itískt kórrétt" ab láta svoleiðis nokkuö sjást á mynd. (Raunar er ekki alveg víst að enn þyki full- komlega „pólitískt kórrétt" aö fjalla mikið um sumt af því sem gekk yfir almenning í Þýskalandi austanverðu og víðar af völdum sovéska hersins kringum stríbs- lokin fyrir um hálfri öld, ekki heldur á Vesturlöndum.) Enda fyrirskipabi ritstjórinn ljósmynd- aranum að þurrka annað úrib út af myndinni. í þesskonar meö- höndlun ljósmynda höfðu sov- éskir ljósmyndarar þá þegar langa BAKSVIÐ DAGUR ÞORLEIFSSON æfingu að baki. Sem dæmi um það, hve lítið Khaldei hafi haft upp úr starfi sínu með sovéska hernum, nefnir hann að hann hafi orðið að bíða í 40 ár ábur en hið opinbera út- hlutaði honum smáíbúb hans. Og hann lætur sér fátt finnast um hátíðahöldin, sem nú fara í hönd. Stjórnvöld hafi lofað hermönn- unum úr stríðinu og börnum þeirra öllu fögru, en lítib hafi orb- ið úr efndum. Nú hafi fáir áhuga á stríðinu og þeim fórnum, sem sovétþjóöirnar hafi þá fært, og hátíðahöldin muni fyrst og fremst endurspegla valdastreitu stjórnmálamanna, einkum Jelt- síns forseta og Luzhkovs, borgar- stjóra í Moskvu, sem nú er farið að telja einn helsta keppinaut Jeltsíns. Khaldei gefur í skyn ab hann hafi ekki verið hrifinn af „gamla kerfinu", en sjái ekki heldur margt gott vib nýja tímann. Hann getur þess að fjölmargir Moskvubúar, þ.á m. margir upp- gjafahermenn, búi við heilsuspill- andi aðstæbur (t.d. mikil þrengsli í húsnæði), sem sé ein af ástæb- unum til berkla- og barnaveikifar- aldra, sem nú geisa í höfuðborg Rússlands. „Og fasistarnir eiu aft- ur á uppleib," segir Khaldei og fer hrollur um hann. „Sem gyðingur er ég hræddari nú en ég var áður."

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.