Tíminn - 08.07.1995, Qupperneq 13
Laugardagur 8. júlí 1995
Wmmm
13
og Jökulsá á Sólheimasandi er
komiö tekur Mýraalur í Vestur-
Skaftafellsýslu viö. Þaö er grös-
ugt og búsældarlegt í Mýrdal.
Af áhugaveröum stööum þar í
sveit ber Dyrhólaey hæst. Þá
eru í boði skemmtilegar snjó-
sleðaferðir á Sólheimajökli.
Vík í Mýrdal er snoturt
byggöarlag og þar er margt í
boði fyrir feröamenn. Athyglis-
verðust er útgerö hjólabátanna.
Þeim má aka af þurru landi og
á haf út og á boðstólum eru
ferðir að Reynisdröngum og ef
sjóveður er stillt má sigla vestur
að Dyrhólaey og í gegnum hið
alfræga gat í tá eyjunnar.
Hin mikla sandauðn, Mýr-
dalssandur, skilur að Mýrdal og
Skaftárhrepp. Hluti Skaftár-
hrepps er Skaftártunga en það-
an liggur Fjallabaksvegur í Eld-
gjá og þaðan svo áfram í Land-
mannalaugar. Kirkjubæjar-
klaustur er höfuðstaður Skaftár-
hrepps og vinsæll áningastaður
ferðamanna. Myndarlegt hótel
er á Klaustri, en nafn sitt dregur
staðurinn af því að þar var
nunnuklaustur fyrr á öldum og
hefst rannsókn á rústum þess
nú í sumar. Austan við Klaustur
tekur Síða við og þá Fljóts-
hverfi. Austasti bær á Suður-
landi er Núpsstaður, en þar
stendur bænahús sem byggt er
aö stofni til árið 1657. Yfir
Núpsstað gnæfir síðan fjallið
Lómagnúpur og segir þjóðsag-
an að þar standi jötunninn
mikli jafnan með járnstaf í
hendi...
- Sigurður Bogi Sævarsson.
Gunnarshús á Eyrarbakka. Þar er rekib kaffihúsib Lefolii.
Þjóbminjadagur:
Gengið um göt-
ur á Eyrarbakka
Boðið verður uppá áhuga-
verða gönguferð um götur
og garða á Eyrarbakka á
morgun, sunnudaginn 10.
júlí, í tilefni svonefnds
Þjóðminjadags. Byggðarlag-
ið verður skoðað og það
sem þar fyrir augu ber.
Lagt verður upp frá Sjó-
minjasafninu við Túngötu
kl. 15. Leiðsögumaður verð-
ur Magnús Karel Hannes-
son sveitarstjóri á Eyrar-
bakka sem er öllum stað-
háttum kunnugur. ■
Hvítárbrú viö Brúarhlöö breikkuö og ný brú byggö
yfir Seyöisá á Kili:
Hlemmifæri er nú orbið fyrir
fólksbíla yfir Kjalveg. Nú er
komin í fulla notkun brú sem
byggb var si. haust yfir Seybisá
sem er norban Hveravalla.
Það var vinnuflokkur Vega-
geröar ríkisins á Norðurlandi sem
byggði brú yfir Seyðisá sl. haust.
Aður var komin brú yfir Grjótá,
sem er sunnan Bláfellsháls á Kjal-
vegi. Má segja að með þessum
tveimur brúm hafi síðustu
hrindrununum á Kjalvegi verið
rutt úr vegi, svo hann sé nú orð-
inn öllum bílum fær.
Þá er þessa dagana að ljúka
framkvæmdum við 60 sm.
breikkun á Hvítárbrúnni vib Brú-
Vel veiöist í Ytri-Rangá:
Þröstur
Seybisá á Kili. Brú yfir þá á var byggb sl. haust og er nú komin í fulla notkun.
arhlöð, þar sem Biskupstungur
og Kjalvegur tengjast saman. Sú
framkvæmd var orðin brýn,
meðal annars vegna mikillrar
umferðar breiðra rútubíla yfir
brúna. ■
Unnib ab framkvœmdum vib breikkun Brúarhlababrúar. Myndin er tekin úr vesturátt, þ.e. Biskupstungnamegin.
Hlemmifæri
fyrir fólksbíla
yfir Kjöl
býst við að
metið falli
Búast má vib ab fyrri veibimet
á vatnasvæbi Rangánna falli í
sumar. Vel hefur veibst þab
sem af er og Þröstur Ellibason,
Ieigutaki Ytri- Rangár og Hóls-
ár, er mjög bjartsýnn á fram-
haldib.
„Sé miðáð við sleppingar síð-
ustu ára og skilyrðin í ánni nú
má búast við að metiö falli í
sumar. 1990 veiddust 1.622 fisk-
ar í ánum og 1.578 í fyrra. Núna
hafa rösklega hundrað fiskar
veiöst í Ytri-Rangá og Hólsá og
veiöin fer vaxandi þegar líöur á
sumar. Því bendir allt til að þetta
gamla met frá 1990 falli þegar
tekið er tillit til ab áðurnefnd ár
höföu aðeins um 60 fiskar borist
á land á þessum tíma sumars,"
sagði Þröstur Elliðason, þegar
Tíminn ræddi við hann í gær.
Veiöi í Eystri-Rangá hefur
hinsvegar farið mjög hægt af
stað skv. upplýsingum frá Guð-
jóni Árnasyni hjá ferðaþjónust-
unni Sælubúinu á Hvolsvelli.
Aftur á móti veiðist alivel í Þverá
sem fellur í Eystri- Rangá. „Þab
kom hingað í Sælubúiö til okkar
maður og keypti leyfi í Þverá. Á
örskammri stund veiddi hann tíu
fiska," sagði Gubjón Árnason. ■
■jr Selfoss
WM Eyrarbakki
Hveragerði
Stokkseyri
Þorlákshöfn
Vík íMýrdal
Kirkjubœjarklaustur
Vestmannaeyjar
Verslanir um allt Suðurland
VERIÐ VELKOMIN!