Tíminn - 21.10.1995, Síða 7
Laugardagur 21. október 1995
7
Císli Snœr Erlingsson í helgarviötali vegna vœntanlegrar frumsýningar á Benjamín dúfu:
Gísli Snær Erlingsson.
Þetta er 10 klúta mynd
„Fyrir mér er kvikmynd
alltaf óraunveruleiki. Um
leib og umhverfib er farib
ab þrengja ab sögunni er
eitthvab ab. Þessi saga
fjallar ekki um hvort
menn drukku pepsí eba
kók."
að var heldur hráslagalegt sl.
miðvikudagsmorgun, þegar
blaðamaður Tímans og Gísli
Snær Erlingsson tóku spjall saman
á kaffihúsi í hjarta borgarinnar.
Gísli Snær var þó ljóslega ekki
upptekinn af veðrinu, enda með
hugann við stærsta verkefni lífs
síns til þessa, kvikmyndina Benj-
amín dúfu sem frumsýnd verður
eftir tæpan hálfan mánuð. Mynd-
in er byggð á samnefndri verð-
launabók eftir Friðrik Erlingsson.
Eftir að hafa náö úr sér hrollin-
um með bolla af rjúkandi kaffi
varpaði blaðamaður fram fyrstu
spurningunni, um uppvöxt Gísla
og ástæður þess að hann fór út í
kvikmyndagerð.
„Ég var svona dæmigert reyk-
vískt barn fram að níu ára aldri, en
þá fluttist ég upp í Breiðholtið sem
var að byggjast upp, mikiö vill-
ingahverfi. Þar fór ég, líkt og gerist
í myndinni, á hálfgert ímyndanaf-
lipp, enda vinalaus í fyrstu. Ég var
mikið í því að sníða búninga og
búa mér til minn eigin heim. Að
lenda í þessari litlu borg í borginni
— mér fannst Breiðholtiö n.k. ríki
í ríkinu — var mjög sérstætt og ég
flúði svolítið raunveruleikann. Ég
var settur í vandræðabekk, svokall-
aðan X-bekk, en hann var e.k. sál-
fræðileg tilraun. Þarna voru marg-
ir félagsfræðilega sinnaðir kennar-
ar, sem reyndu að finna út hæfi-
leika okkar, og það hjálpaði mér.
Ég skrifaöi mikið, málaði og teikn-
aði og endaði á að setja upp tvö
frumsamin leikrit sem urðu mjög
vinsæl."
Þrír menn á fylleríi
— Var þetta erfitt tímabil?
Ja, ég veit ekki hve margir vildu
ganga í gegnum þá hluti sem
þarna áttu sér stað á þessum tíma.
Það voru einhverjir þrír menn á
fylleríi á sjötta áratugnum, sem
ákvábu að troða öllum fátækling-
unum á einn stað, upp í Breiðholt-
iö, og héldu það vera einhverja
lausn. Þetta kallabi á ótal vanda-
mál. Fyrir vikið þurfti maður að
duga eða drepast. Það eru margir
félaga minna frá þessum árum
horfnir núna; á Hrauninu, eða
búnir að eyðileggja sig á dópi og
áfengi."
Gísli Snær kynntist vídeótækn-
inni, sem síðar leiddi til þess að
hann fór út í leikstjórn. Hann
myndaöi ýmsar uppákomur í FB
og það reyndist ágætur stökkpallur
fyrir hann aö stjórna tónlistar-
þætttinum Poppkorni í sjónvarp-
inu ásamt Ævari Erni Jósepssyni.
Efnistök félaganna vöktu nokkra
athygli á þeim tíma og var sprellið
í fyrirrúmi.
Frl&rik Þór og Hrafn
mestu áhrifavaldarnir
Eftir útskrift úr FB kynntist Gísli
Snær Friðriki Þór. „Það var Friörik
Þór sem sannfærði mig um að
kvikmyndin væri sá miöill sem ég
ætti heima í. Ásamt Hrafni Gunn-
laugssyni var hann mesti áhrifa-
valdurinn í mínu lífi, hvað kvik-
myndina varðar. Eftir að hafa
unnið við „Skytturnar og „Hrafn-
inn flýgur" réðst Gísli til sjón-
varpsins sem pródúser, rétt rúm-
lega tvítugur. Á meöal verka hans
má nefna Annir og appelsínur og
áramótaskaup sem var unnið í
skugga af verkfalli leikara. Gísli
Snær er bærilega sáttur við afrakst-
urinn þessi ár.
Eftir nám í Svíþjóð og nokkurra
ára starf hjá s jónvarpinu fann Gísli
Snær „styrk sem hafbi legið
óhreyfður í tvo áratugi" til ab
komast í kvikmyndanám í París.
Samfara náminu gerði Gísli Snær
Stuttan Frakka, í samvinnu viö
Friðrik Erlingsson, líkt og nú.
Rosalega léleg mynd
Um Stuttan Frakka segir leik-
stjórinn; „Ég var beöinn um að
gera tónleikamynd og við ákváö-
um aö gera einhvern söguþráð ut-
an um, út frá grínþemanu: „How
do you like Iceland?" Frakkinn,
sem lék aðalhlutverkib, var vinur
minn úr skólanum, en Friörik Er-
lingsson skrifaöi handritiö. Byrj-
unin á Stuttum Frakka var í lagi,
en að öðru leyti er hún vond
mynd, alveg rosalega léleg," segir
Gísli og hlær við. „Metnaðurinn
hjá okkur var líka ekki að gera
góða mynd, heldur vinsæla mynd,
sem myndi koma okkur á kortiö.
Það er orðin barátta fyrir fólk, sem
kemur úr kvikmyndaskólum, að
vera til, fá athygli. Það tókst. Hjá
okkur."
Stórmynd fyrir lítib fé
Um tilurö kvikmyndarinnar
„Þótt þetta sé mynd um
börn, er þetta ekki endi-
lega mynd fyrir börn. Hún
er ekki ósvipub „Mit Liv
som Hund" og „ET" hvab
þetta varbar. Þetta er
mynd um barnib í þér
sjálfum. Þetta er mynd
fyrir alla, samt ekki fjöl-
skyldumynd og ekki
barnamynd. Hugtakib
fjölskyldumynd þýbir í
raun ab foreldrunum leib-
ist, en börnunum ekki."
Benjamíns dúfu er það að segja að
Friðrik Erlingsson vann til bama-
bókaverölauna árið 1991 fyrir
samnefnda skáldsögu sína. í fram-
haldi af því var sjónvarpinu boðið
ab gera þáttaröð eftir bókinni, en
peningar voru ekki fyrir hendi.
Upp úr því kviknaði hugmyndin
að bíómyndinni og var hafist
handa í fyrra eftir aö fjármögnun
lauk. íslenski kvikmyndasjóðurinn
veitti 20 milljónum til myndar-
innar, en annars er fjármagnið er-
lent. Heildarkostnaður reyndist 82
milljónir, sem er lítið miöað vib að
myndin er „stórmynd" að sögn
Gísla Snæs.
„Þetta er í rauninni mynd sem
okkur hefði langað aö gera fyrir
tvöfalt hærri fjárhæð, en það er
lygilegt hve vel tókst til. Leik-
myndadeildin stóð sig frábærlega
og það þurfti mikla skipulagningu
til að gera myndina fyrir þennan
litla kostnað. Reyndar hékk leik-
myndin stundum uppi á límbandi
og hmndi oft niöur í miðri töku.
Þá var bara að klippa og líma upp
aftur."
Um söguna segir Gísli Snær: „Þú
gerir ekki góða kvikmynd nema
hafa gott handrit og handritið
byggist á mjög góðri sögu. Við
Friðrik (Erlingsson) lokuðum okk-
ur inni í 2 mánuði með allt hand-
ritiö límt upp á vegg meö litlum
spjöldum. Við vöknuðum oft upp
Ú. 6 á morgnana og pældum í
dramatískum strúktúr myndarinn-
ar fram á næstu nótt."
Gísli Snær segir tíma myndar-
innar tvískiptan, annars vegar nú-
tímann, hins vegar óskilgreinda
fortíð. „Mér fannst mikilvægt að
myndin væri ekki heimildarmynd
um tímabilið 1964-'65. Mér hefur
fundist allt of mikið um það í ís-
lenskum myndum að áhorfendur
hætti að fylgjast meö sögunni og
segi: „Nei, mikið tókst þér vel að
breyta Laugaveginum. Ég heyrði
t.d. á Bíódögum að öldruð kona
sagði upphátt: „Heyröu, Roy Ro-
gers var ekki sýndur í Gamla bíói,
hann var alltaf sýndur í Austur-
bæjarbíói."
Kvikmyndin alltaf
óraunveruleg
Þetta þýðir fyrir mér aö áhorf-
endur séu uppteknir af forminu en
ekki sögunni. í ljósi þessa erum við
ekki með nein vörumerki í Benj-
amín dúfu. Viö erum hvorki með
kók eða pepsí, heldur drykk sem
heitir bara Cola.
Minn metnaður sem kvik-
myndaleikstjóra liggur ekki til þess
að búa til raunverulegan heim.
Fyrir mér er kvikmynd alltaf
óraunveruleiki. Um leið og um-
hverfið er fariö aö þrengja að sög-
unni er eitthvaö að. Þessi saga fjall-
ar ekki um hvort menn drukku
pepsí eba kók."
Ekki barnamynd
— Er Benjamín dúfa bamamynd?
„Nei. Þótt þetta sé mynd um
börn, er þetta ekki endilega mynd
fyrir börn. Hún er ekki ósvipuð
„Mit Liv som Hund" og „ET" hvað
þetta varðar. Þetta er mynd um
barnið í þér sjálfum. Þetta er mynd
fyrir alla, samt ekki fjölskyldu-
mynd og ekki barnamynd. Hug-
takið fjölskyldumynd þýðir í raun
aö foreldrunum leiðist, en börn-
unum ekki. Þetta er mynd sem seg-
ir mikla og stóra sögu. Hún segir
sögu sem við erum að upplifa allt í
kringum okkur, hvort sem við er-
um böm eöa fullorðin. Viö erum
að upplifa sorg og glebi, spennu,
við tökum rangar ákvarðanir sem
hafa mikil áhrif á líf okkar. Mynd-
in er reynslusaga og veltir m.a.
upp þeirri spurningu hvenær
bernskan endi, hvenær maöur
verður fullorðinn. í lok hennar
gerist atburður sem veldur því að
drengirnir hafa ekki nokkra löng-
un til að vera börn áfram. Hvað er
aö vera barn? Er það kannski eigin-
leikinn að flýja raunveruleikann
og fara inn í fantasíuveröldina?"
— Ljúfsár mynd?
„Já, ljúfsár og mannleg mynd,
mjög nostalgísk, jafnvel tíu klúta
mynd. Þab unnu allir þessa mynd
frá hjartanu, það þýöir ekkert ann-
að en ab vera heiðarlegur þegar
maður segir sögu. Ég er ófeiminn
viö aö afhjúpa mig og myndin ætti
að skila því."
Val drengjanna erfitt
— Aðalleikaramir eru 4 drengir
13-16 ára gamlir. Hverjir em þeir og
hvemiggekk að velja þá?
„Þeir eru Sturla Sighvatsson sem
leikur Benjamín dúfu, Gunnar Atli
Cauthry, Sigfús Sturluson og Hjör-
leifur Björnsson. Við höfðum sam-
band við nánast alla sem komu aö
leiklist til að fá ábendingar, en þá
var ég búinn aö liggja yfir karakter-
unum og einnig foreldrunum í
langan tíma. Sigríður Hannesdótt-
ir var mér ómetanleg stoö í þessari
leit og loks stób ég uppi með 8
drengi. Ég lét allan hópinn æfa
texta í mjög erfibu atribi í mynd-
inni og myndabi senuna í fjórum
nærmyndum, sem ég klippti síöan
saman. Eftir að hafa skoðað árang-
urinn gat ég loks tekiö ákvöröun."
Aðrir leikarar eru m.a. Pálmi
Gestsson, Jóhann Siguröarson, Ól-
afía Hrönn Jónsdóttir, Elfa Ósk Ól-
afsdóttir, Guömundur Haraldsson,
Kjartan Ragnarsson, Guöbjörg
Thoroddsen og Ragnheiöur Stein-
dórsdóttir. Ólafur Gaukur sér um
tónlistina.
Kaffinu er lokið og ábur en und-
irritabur og Gísli Snær standa upp
og hneppa frökkum sínum varpar
blaöamaöur fram hinstu spuming-
unni:
— Er mikiö afBenjamín dúfu íþér?
„Já, alveg gríbarlega mikið."
Björn Þorláksson