Tíminn - 21.10.1995, Blaðsíða 11
Laugardagur 21. október 1995
Apollo
13
★★★1/2
Handrit: William Broyles, jr. og Al Rein-
ert.
Leikstjóri: Ron Howard.
A&alhlutverk: Tom Hanks, Kevin Bacon,
Bill Paxton, Cary Sinise, Ed Harris og
Kathleen Quinlan.
Háskólabíó og Laugarásbíó.
Öllum leyfb.
Eftir að þeir Neil Armstrong og
Buzz Aldrin höföu stigiö fæti á
tunglið í elleftu Apolloferðinni
misstu Bandaríkjamenn áhug-
ann á tunglferðum. Þegar lagt
er af stað í þá þrettándu er áhugi
þeirra í algjöru lágmarki. í þeirri
för eru Jim Lovell (Hanks), Fred
Haise (Paxton) og Jack Swigert
(Bacon). Allt gengur að óskum í
fyrstu en þegar sprenging verð-
ur í súrefnistanki geimskutl-
unnar skapast neyðarástand í
orðsins fyllstu merkingu. Til að
Kvikir
og
dauðir
(The Quick and the Dead) ★★★
Handrit: Simon Moore.
Leikstjóri: Sam Raimi.
Abalhlutverk: Sharon Stone, Gene
Hackman, Leonardo DiCaprio, Russell
Crowe, Lance Henriksen, Pat Hingle og
Roberts Blossom.
Stjörnubíó og Sagabíó.
Bönnub innan 16 ára.
Það er fátt nýtt á ferðinni í
Kvikum og dauðum, nema þá
helst að þögli kúrekinn er kven-
kyns. Sharon Stone, sem hing-
að til hefur aðallega verið þekkt
fyrir að fækka fötum og leika
illa í kvikmyndum, leikur hetj-
una. Gene Hackman leikur
svipað hlutverk og í Unforgi-
ven, sem Clint Eastwood gerði
og hlaut Óskarinn fyrir, þ.e.a.s.
vonda karlinn.
Sögusviðið er smábærinn
Redemption, en þar ríkir harð-
stjórinn og byssubófinn John
Herod (Hackman) yfir öllu
saman. Hann heldur árlega
keppni um hver sé fljótastur aö
munda byssuna og hefur ávallt
sigrað sjálfur. í fyrsta sinn tek-
ur óþekkt kona (Stone) þátt, en
hún á aö sjálfsögðu harma ab
hefna gegn Herod.
Það tekst nokkuö vel að halda
uppi spennu í kringum einvíg-
in og með hjálp góðrar mynda-
töku eru þau bestu atriði mynd-
arinnar. Inn á milli vilja hlut-
irnir hins vegar verða nokkuð
langdregnir og Sharon Stone er
alls ekki nógu frambærileg leik-
kona til að halda uppi atriðum,
þar sem einhvers konar sam-
ræöur eiga sér stað. Það gerir
hana ekki trúverðugri að fatn-
aður hennar hefur lítinn raun-
sæisblæ yfir sér. Aðrir leikarar
standa sig samt vel og að sjálf-
sögðu stelur Gene Hackman
senunni í hvert sinn sem hann
birt;st.
Kvikir og daubir er fín afþrey-
ing og aðdáendur kúreka-
mynda ættu að fá sitthvað fyrir
sinn snúð. Það vantar samt
nokkuð upp á til að hún verði
eftirminnileg. Það er gaman að
horfa á Sharon Stone, en leiðin-
legt að hlusta á hana. Líkt og
Clint áður fyrr, þá talar hún
ekki mikið í Kvikum og dauð-
um. ■
Wýííúwa
geimfararnir þrír komist heilir á
húfi til jarðar þarf að leysa mý-
mörg tæknileg vandamál á
stuttum tíma. Vísindamennirn-
ir á jörðu niðri þurfa að „spila af
fingrum fram", því ekkert þessu
líkt hafði gerst áður. Það reynir
einnig á þjálfun og tæknikunn-
áttu þremenninganna, sem
hvað eftir annað þurfa að glíma
við ótrúlegustu vandamál. Þeg-
ar fréttist af vandræðum geim-
faranna er áhugi Bandaríkja-
manna vakinn og allur hinn
vestræni heimur fylgist síðan
með fréttum af því hvort tekst
að koma þeim til jarðar.
Það vita líklega allir hvernig
þetta endaði allt saman, en með
frábæru handriti og leikstjórn
verður útkoman engu að síður
mjög spennandi og áhrifarík,
sérstaklega þegar líða tekur á
myndina. Tæknilegum vanda-
málum er gert hátt undir höfði,
en samt þannig að allir skilji
hvað við er að glíma, og mann-
legu hiiðinni er einnig komið til
skila. Það er aubvelt að spila
inn á tilfinningar áhorfenda,
sem skynja allir einveru þre-
menninganna órafjarri heima-
KVIKMYNDIR
ÖRN MARKÚSSON
högunum, en þetta er gert á
smekklegan hátt og án allrar
væmni. Helsti gallinn er hins
vegar að lopinn er teygður ansi
mikið í byrjun og hefði mátt
stytta þann kafla myndarinnar
og þétta þannig frásögnina.
Leikararnir eru síðan hver
öðrum betri með Tom Hanks
fremstan í flokki, en bæði Kevin
Bacon og sérstaklega Bill Paxton
sýna einnig stjörnuleik.
Ápollo 13 er stórmynd í flesta
staði og það er nokkuð öruggt
að únhverjir af aðstandendum
hennar eiga eftir ab fá styttur af-
hentar á næstu Óskarsverö-
launahátíð. ■
Brýmar í Madisonsýslu
(The Bridges ot Madison County) ★★★
Handrit: Richard LaCravenese. Byggt á
samnefndri skáldsögu eftir Robert James
Waller.
Leikstjóri: Clint Eastwood.
Abalhlutverk: Clint Eastwood, Meryl
Streep, Annie Corley og Victor Slezak.
Bíóborgin.
Öllum leyfb.
Ástarsagan Brýrnar í Madison-
sýslu eftir Robert James Waller
um þau Róbert og Fransisku er ein
vinsælasta skáldsaga síbari tíma
og situr enn á metsölulistum víða
um heim. Bókmenntagagn-
rýnendur tóku henni þó ekkert
sérlega vel, sögðu hana óraunsæja
vellu í ætt við sjoppubókmenntir.
Það þarf þó alls ekki að koma í veg
fyrir að sagan sé illa til þess fallin
aö vera sett í kvikmyndabúning,
enda er erfitt að benda á kvik-
myndir sem eru virkilega raun-
sæjar, ef út í það er farið.
I stuttu máli segir af kynnum
ljósmyndarans Róberts Kincaid
við gifta bóndakonu, Fransisku
Johnson að nafni, sem er ein á
býlinu í fjóra daga þegar Róbert er
þar á ferð og myndar yfirbyggðar
brýr Madisonsýslu. Hina ítal-
skættuðu Fransisku dreymdi aðra
drauma en að gerast bóndakona,
en er þrátt fyrir það ekki óham-
ingjusöm, og einfarinn Róbert
minnir hana á hvað hún stóð eitt
sinn fyrir. Þau verða ástfangin
upp fyrir haus, en valið er óum-
flýjanlegt hjá Fransisku, hvort
hún eigi að fylgja ástinni og til-
finningum sínum eða hvort hún
geti fórnab því lífi, sem hún og
eigirimaöur hennar hafa skapað
sér.
Dredd dómari
(Judge Dredd) ★★★
Handrit: Steven E. De Souza og William
Wisher.
Leikstjóri: Danny Cannon.
Abalhlutverk: Sylvester Stallone, Arm-
and Assante, Rob Schneider, Diane
Lane, Max Von Sydow, Jurgen Prochnow
og Joan Chen.
Laugarásbíó.
Bönnub innan 16 ára.
Teiknimyndasögur um Dredd
dómara eru víst vinsælar í
Bandaríkjunum og á þeim bygg-
ir samnefnd mynd, sem hér er
til umfjöllunar. Sögusviðib er
framtíðin, þar sem jörðin er
meira og minna sviðin auðn og
mannfólkið býr í nokkrum lok-
ubum risaborgum. Vegna fjöld-
ans og óreiðunnar er löggæsla
og dómsvald í höndum sama
fólksins, dómaranna. Sá harð-
skeyttasti og besti er Dredd
dómari.
Söguþráðurinn er algjör
steypa, en hann snýst um bar-
áttu Dredds (Stallone) við brjál-
æðinginn Rico (Assante), sem
ætlar að sölsa undir sig völdin í
borginni. Vondi kaflinn í
myndinni er þegar Dredd er
ranglega sakfelldur fyrir glæp og
afgangurinn af henni, góöi kafl-
inn, fer síðan í að sýna hann
kála öllum vondu mönnunum.
Hasarmyndir geta verið fyrsta
flokks afþreying, en þá verður
aö fara saman spenna, hraði og
góðar fléttur. Það sakar heldur
ekki að tæknibrellur séu góbar
og að um einhverja lágmarks
persónusköpun sé að ræða. í
Dredd dómara er fæst af ofan-
töldu til staðar. Leikmynd og
tæknibrellur standa upp úr, en
atburðarásin er fyrirsjánleg og
óspennandi, það er alls ekkert,
sem kemur á óvart, og að lokum
eru allar persónur svo fráhrind-
andi og illa leiknar að það er
pínlegt á að horfa.
Sylvester Stallone er lélegur
leikari, það vita allir. Hér slær
hann hins vegar öll met og er
oft á tíðum svo asnalegur að
maður fer að halda með vondu
körlunum.
Dredd dómari er afar mislukk-
uð mynd á nær allan hátt. Hún
átti sjálfsagt að verða hörku-
spennandi hasarmynd, en hún
er stjarnfræðilega langt frá því
takmarki.
Handrit Richard LaGravenese
er einstaklega gott. Hann er trúr
skáldsögunni í veigamestu atrið-
unum, en skerpir persónurnar og
atburðarásina, þannig að úr verð-
ur heilsteypt verk. Myndin fer
hægt af stað, e.t.v. fullhægt, per-
sónur og staðhættir eru kynnt í
rólegheitum, en spennan í frá-
sögninni eykst jafnt og þétt í sam-
ræmi við aukna spennu í sam-
skiptum Róberts og Fransisku.
Gamli harðjaxlinn Clint E-
astwood er sigurvegari í tvennum
skilningi, því ekki er nóg með að
leikstjórn hans sé til mikillar fyrir-
myndar, heldur kemur „kallinn"
sterkur inn í hlutverki Róberts. E-
astwood hefur leikið einfara áður,
svo mikið er víst, en kröfurnar eru
talsvert mun meiri hér og stenst
hann þær með sóma. Meryl
Streep er síðan frábær í hlutverki
Fransisku og er samleikur þeirra E-
astwoods meb eindæmum góbur.
Það hafa sjálfsagt margir Islend-
ingar lesið skáldsöguna Brýrnar í
Madisonsýslu, sem komið hefur
út í þýðingu Péturs Gunnarsson-
ar, og hafa þeir því mjög mótaðar
skoðanir á persónunum. Það
veröur að segjast eins og er að
Clint Eastwood tekst mjög vel
upp í kvikmyndun sögunnar og
ættu þeir því ekki aö verða fyrir
vonbrigðum. ■
■
ya/unaur
með borgarstjóra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
heldur fund með íbúum
Fossvogs-
Smáíbúða-
Háaleitis-
og Múlahverfis
í Réttarholtsskóla mánudaginn 23. október
kl. 20.00
Á fundinum mun borgarstjóri m.a.
ræða um áætlanir og framkvæmdir í
hverfunum. Síðan verða opnar umræður
og fyrirspumir með þátttöku fundar-
manna og embættismanna borgarinnar.
Jafnframt verða settar upp teikningar af
fyrirhuguðum framkvæmdum í
hverfunum ásamt öðm fróðlegu efni.
Allir velkomnir.
Skrifstofa borgarstjóra.