Tíminn - 21.10.1995, Qupperneq 18
18
Laugardagur 21. október 1995
l||l Framsóknarflokkurinn
7. Landsþing LFK
„Konur í framsókn7'
Valgerbur
verbur haldib í sal Lionsmanna í Kópavogi ab Aubbrekku 25, dagana
20.-22. október.
Dagskrá:
Föstudagurinn 20. október
Kl. 19.30 Þingsetning ab Borgartúni 6.
Setning: Kristjana Bergsdóttir, formabur LFK.
Kjör embættismanna þingsins.
Ávörp:
Páll Pétursson félagsmálaráðherra.
Siv Fribleifsdóttir, 1. þingmabur Reykjaneskjördæmis.
Kl. 20.00 Fundi frestab til laugardags.
Kl. 20.00 Kvöldverbarhóf í tilefni 50 ára afmælis Félags framsóknarkvenna
ÍReykjavík.
Ávarp: Sigríbur Hjartar, formabur FFK.
Hátibarræba: Halldór Asgrímsson, formabur Framsóknarflokksins.
Laugardagurinn 21. október
Kl. 8.30 Afhending þinggagna ab Aubbrekku 25, Kópavogi.
Kl. 9.00 Ávarp: Sigurbjörg Björgvinsdóttir, formabur Freyju, félags framsóknar-
kvenna í Kópavogi.
Kl. 9.10 Skýrsla stjórnar.
Kristjana Bergsdóttir, formabur LFK.
Þóra Einarsdóttir gjaldkeri.
Umræbur — afgreibsla.
Mál lögb fyrir þingib.
Kl. 9.45 MANNRÉTTINDI KVENNA
Mannréttindi eldri kvenna
Sigurbjörg Björgvinsdóttir, formabur Freyju og fulltrúi á kvennaráb-
stefnunni í Kína.
Áherslur í mannréttindamálum kvenna
Halldór Ásgrímsson, formabur Framsóknarflokksins.
Lög og framkvæmd jafnréttisáætlunar ríkisstjórnarinnar
Elín Líndal, formabur jafnréttisrábs.
Efnahagslegt sjálfstæbi — grundvallarmannréttindi
Herdís Sæmundardóttir, formabur undirbúningsnefndar um stofnun
lánatryggingasjóbs kvenna.
Þróunarabstob meb persónulegum samskiptum
Hansína Björgvinsdóttir, ritari LFK og fulltrúi á kvennarábstefnunni í
Kína.
Umræbur.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 13.00 Umræbur um stöbu Jtvenna í Framsóknarflokknum og framtibar-
sýn þeirra.
Kristjana Bergsdóttir, formabur LFK.
Ávarp: Gubjón Ólafur jónsson, formabur SUF.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigbisrábherra.
Valgerbur Sverrisdóttir, formabur þingflokks framsóknarmanna.
Siv Fribleifsdóttir, alþingismabur Reykjaneskjördæmis.
Umræbur.
Tillögur ab jafnréttisáætlun í flokksstarfi lagbar fram.
Drífa Sigfúsdóttir, vararitari Framsóknarflokksins.
Umræbur.
Kl. 16.00 Kaffihlé.
Kl. 16.15 Hópstarf.
Kl. 17.00 Skobunar- og skemmtiferb í Mosfellsbæ fram eftir kvöldi í bobi Esju,
félags framsóknarkvenna í Kjósarsýslu. Leibsögumabur er Helga Thor-
oddsen bæjarfulltrúi.
Sunnudagurinn 22. október
Kl. 9.00 Morgunkaffi.
Kl. 9.15 Ávarp: Ingibjörg Pálmadóttir, ritari Framsóknarflokksins.
Kl. 9.30 Umræba og afgreibsla jafnréttisáætlunar.
Kl. 11.00 Afgreibsla mála.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 12.45 Afgreibsla mála.
Kl. 13.45 Stjórnarkjör.
Kl. 14.45 Þingslit.
Siv Sigríbur
Halldór Sigurbjörg Ingibjörg
Elín
Kristjana
Herdís
Drífa
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í Noröurlandskjör-
dæmi eystra
verbur haldib þann 3. og 4. nóvember n.k. á Húsavík.
Þingib hefst föstudaginn 3. nóvember kl. 20.00.
Páll Pétursson félagsmálarábherra ávarpar þingib. Stjórn KFNE
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND .
Indónesía: 30 ár frá valdatöku Suhartos:
Blóðugur valda-
tími Suhartos,
forseta Indónesíu
y
Suharto hershöfbingi, sem verib hefur vib völd á Indónesíu í 30 ár.
Um þessar mundir heldur
stjóm Indónesíu, meb Suharto
hershöföingja í fararbroddi,
upp á 30 ára byltingarafmæli.
Allan þennan tíma hefur Su-
harto ríkt með harðri hendi
og gerst sekur um gróf mann-
réttindabrot. Áriö 1975 rébist
her Indónesíu inn í Austur-
Tímor, eyju sem em um 2 þús-
und kílómetra frá höfuðborg
Indónesíu, Jakarta. Talið er ab
á bilinu a.m.k. 2-300.000
manns hafi falliö í innrásinni
og síöan þá hafa blóðugir bar-
dagar geysab á eynni milli
andspyrnuhópa og hers Ind-
ónesíu. Heildaríbúafjöldi A-
Tímor er nú um 750.000,
þannig að af þessu sést að um
gífurlegar blóðsúthellingar
hefur verib að ræða. Með þess-
ari innrás var A-Tímor innlim-
uð í Indónesíu og sem dæmi
um valdníðslu Suharto á A-
Tímor er ab árib 1989 gerbu
utanríkisráöherrar Indónesíu
og Ástralíu með sér samning
um að skipta með sér olíu og
gasbirgðum landsins.
Átök allt frá byrjun
aldarinnar
Indónesía er í Kyrrahafinu,
milli Ástralíu og Malasíu. íbúar
landsins eru um 70 milljónir.
Hollendingar höfðu framan af
þessari öld mikil áhrif í Indónes-
íu, en sjálfstæðisbarátta stóð í
landinu meb einum eða öbrum
hætti frá árinu 1908. Þekktasur
andspyrnumanna var maður að
nafni Achmed Sukarno og
leiddi hann öflugasta and-
spyrnuflokkinn. Hann var
handtekinn árið 1929 (þá 28 ára
gamall) og næstu 15 árin var
hann ýmist í útlegb eða fang-
elsi. Árib 1942 réðust Japanir
inn í Indónesíu, en við uppgjöf
þeirra tók flokkur Sukarnos,
Þjóðernisflokkur Indónesíu, við
völdum. Hollendingar sneru til
eyjarnnar nokkrum vikum eftir
uppgjöf Japana og hófu þegar í
staö tilraunir til að koma heima-
mönnum frá völdum. Skærur
stóðu allt til ársins 1950, þegar
þjóðríki var stofnað á Indónesíu
og Sukarno varð fyrsti forseti
landsins.
Valdarán Suhartos
Á valdatíb sinni lenti Sukarno
oft í útistöðum viö Breska
heimsveldið vegna Malasíu og
hefur verið bent á aö efnahagur
Indónesíu hafi staöið veikum
fótum á valdatíð Sukamos. Árið
1965 brutust út alvarlegir bar-
dagar milli hers Indónesíu og
kommúnista. Svo virðist sem ab
þá hafi herinn þegar glatað
trausti sínu á Sukarno og að
þessir atburðir hafi leitt til falls
Sukarnos og valdatökú hermála-
ráðherra landsins, Suhartos. Þá
hafði Suharto tryggt sér bæði
stuðning hersins og náms-
manna. Suharto og félagar rétt-
lættu valdatöku sína, sem opin-
berlega hefur dagsetninguna 12.
mars 1967, meö því að landinu
hefði stafað veruleg hætta af
kommúnistum, að þeir hafi ætl-
aö að ræna völdum.
í nýlegri grein í tímaritinu
New Statesman er hinsvegar
greint frá því að enginn hinna
meintu byltingarleiðtoga hafi
verið úr röbum kommúnista,
heldur hafi þetta verið hópur
undirhershöfðingja sem sögb-
ust hinsvegar vera að vernda
Sukarno, fyrrverandi forseta,
gegn byltingu að undirlagi
bandarísku leyniþjónustunnar,
CIA. Sú stofnun og bandarísk
yfirvöld voru ekki hrifin af
metnaðarfullri utanríkisstefnu
Sukarnos.
Aftökulisti frá CIA
Valdataka Suhartos var ein sú
blóðugasta á þessari öld, en talib
er að allt að ein milljón manna,
aðallega bænda, hafi verib myrt
í átökupum sjálfum og eftirleik
þeirra. Þetta fólk var í þeim hópi
sem studdi frelsi Indónesíu und-
an áhrifum Hollendinga. Sann-
að þykir ab bandarísk stjórnvöld
studdu dyggilega við bakið á Su-
harto með ýmsum leyniaðgerð-
um, flotastuðningi og gnægð
vopna. Þá er vitað að CIA lét
stjórn hans hafa aftökulista á
5000 mönnum, konum og ung-
libum, sem sagt var ab störfuöu
með kommúnistum. Fyrrver-
andi starfsmaður bandaríska
sendiráðsins í Jakarta viður-
kenndi árið 1990 að hafa unnið
í tvö ár að listanum og haft var
eftir honum að listinn hefði ver-
ið „yfirvöldum Indónesíu mjög
hjálplegur." í hvert sinn sem
einhver af dauðalistanum var
drepinn var kross settur fyrir
framan viðkomandi einstakling
á listanum.
Þegar Bandaríkin fluttu sína
fyrstu hermenn til Víetnam árið
1965 fylgdi því m.a. sú réttlæt-
ing ab það væri til þess að
mynda skjöld fyrir „hina mikil-
vægu and-kommúnísku starf-
semi Suhartos." Bretar og Ástral-
ir hafa einnig stutt dyggilega við
Suharto, en Ástralir þjálfuðu
einmitt þá hersveit sem myrti
hundruð óvopnaðra mótmæl-
enda í borginni Dili á A-Tímor
árið 1989. Þá hafa blaðamenn
verið handteknir og leiðtogar
verkalýðshreyfinga og stjórnar-
andstæbingar pyntaðir og
drepnir unnvörpum, jafnt í Ind-
ónesíu sem og á A-Tímor. Vopn-
in sem notuð hafa verið í þess-
um aðgerðum hafa ab mestu
leyti verið keypt frá Bretlandi.
En einhvern veginn hefur yf-
irvöldum Indónesíu yfirleitt
tekist að fegra mannréttinda-
ástandið fyrir alþjóðlegum fjár-
málastofnunum og yfirvöldum
stubningsríkja sinna, en eftir
áðurnefnd fjöldamorð á A-Tím-
or juku bresk yfirvöld fjárstuðn-
ing sinn um 250%. Þá tilkynnti
Alþjóðabankinn nýlega um 5
milljarða dollara lánveitingu til
Indónesíu.
Suharto hefur nú verið við
völd í Indónesíu í yfir 30 ár og
virðist fastur í sessi. Ferill hans
hefur verið blóði drifinn og af
og til berast fréttar af grimmi-
legum bardögum á A-Tímor.
íbúar þar láta þó ekki undan
ógnarstjórn Suharto og halda
ótrauðir áfram að berjast fyrir
sjálfstæði og sjálfsákvöröunar-
rétti. Á síðustu árum hefur þetta
mál fengið aukna athygli á Vest-
urlöndum, enda augljóst að um
mjög grimmilegt þjóöarmorð
var að ræða á A-Tímor, sem ekki
sér fyrir endann á. Og litlar
breytingar virðast vera sjáanleg-
ar í Indónesíu.
Heimildir:
New Statesman and Society
Jón Ormur Halldórsson: Átakasvæbi í
heiminum.