Tíminn - 21.10.1995, Side 19
Laugardagur 21. október 1995
19
Gunnhildur Davíðsdóttir
Gutmhildur Davíðsdóttir fœdd-
ist á Möðruvöllum í Hörgárdal 6.
mars 1922. Hún lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands 9. september
síðastliðinn og fór útfór hennar
fram frá Hveragerðiskirkju 16.
september.
Elsku amma mín.
Mér datt þab bara ekki í hug
að þegar ég kvaddi þig í júlí
áður en ég fór til Frakklands,
að það væri í síðasta skipti sem
ég myndi sjá þig. Ef ég hefbi
vitað það, hefði ég viljað tala
meira við þig.
Ég var búin að senda þér
kort og Hubba frænka var bú-
in að lesa það fyrir þig og mér
líður betur að vita að þú varst
búin að heyra eitthvað frá
mér. Núna þarf ég að skrifa afa
bréf og veit ég ekki hvað ég
ætti að segja vib hann í sam-
bandi við þig. Mér finnst þú
bara ekki vera dáin og að þú
t MINNING
verðir í sveitinni þegar ég kem
heim aftur.
Ég á erfitt með ab sætta mig
við þetta. Það er rosalega erfitt
að hugsa um allt það sem við
gerðum saman þegar ég var í
sveitinni hjá ykkur afa. Allar
flökkuferðirnar okkar og þegar
þú fannst aldrei afleggjarann
heim að Laugarbökkum af því
það var svo dimmt.
Og þegar þú varst ab róta í
500 kr. kössunum í Höfn, þeg-
ar við sátum fyrir framan sjón-
varpið með ís og snakk og
horfðum á Matlock eða Derr-
ick með allt í botni. Það var
svo margt skemmtilegt sem
við gerðum saman og mig
langar að fá þig aftur.
Það er búið að vera erfitt að
geta ekki talað við neinn um
þig, en ég hef reynt að hugsa
um eitthvað annað, því ef ég
hugsa um þig fer ég bara að
gráta.
Hvíl þú í friði.
Þín
Mceja
DAGBÓK
lUUUUUUIJVAJUVJUV/
Lauqardaqui*
i.1
október
X
294. daqur ársins - 71 daqur eftir,
42. vlka
Sólris kl. 08.29
sólarlag kl. 17.49
Dagurinn styttist
um 7 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
' Brids, tvímenningur, minningar-
mót um Jón Hermannsson, spilað
þrjá sunnudaga kl. 13 í Risinu.
Félagsvist kl. 14 í Risinu og dans-
ab í Goöheimum kl. 20 sunnudag.
Lögfræðingurinn er til viðtals á
þriðjudag. Panta þarf viðtal í s.
5528812.
Brei&firðingafélagið
Félagsvist verður spiluð sunnu-
daginn 22. okt. kl. 14 í Breiðfirð-
ingabúð, Faxafeni 14. 1. dagur í 4
daga keppni. Kaffiveitingar. Allir
velkomnir.
Ferðafélag íslands
Sunnudagsferðir 22. október:
Náttúruminjagöngur. Brottför kl. 13.
1. Keilir (378 m y.s.). Ekið að
Höskuldarvöllum og gengið þaðan
á þetta skemmtilega móbergsfjall.
2. Höskuldarvellir-Sogaselsgígar.
Gengið að Sogum. Hugað að gíga-
svæði, m.a. upptakasvæbi Afstapa-
hrauns og seljarústum í Sogaselsgíg.
Svæðið, sem göngurnar liggja
um, er á Náttúruminjaskrá og geta
þær því kallast náttúruminjagöngur
(sbr. raðgönguna í vor í tilefni nátt-
úruverndarárs Evrópu). Um svæðið
mun liggja „Reykjavegurinn", er
verið hefur í fréttum undanfarið.
Munið góða skó, hlýjan fatnað og
nesti.
Brottför kl. 13 frá BSÍ, austan-
megin, og Mörkinni 6. Einnig
stansað við kirkjugarðinn í Hafnar-
firbi. Verb: 1200 kr., frítt fyrir börn
með fullorðnum. Allir eru vel-
komnir í Ferðafélagsferðir.
Kvennakirkjan
Kvennakirkjan heldur messu í
Neskirkju sunnudaginn 22. október
kl. 20.30.
Messan verður tileinkuð þeim
tímamótum að þann 24. október
verða 20 ár liðin frá Kvennafrídeg-
inum.
Séra Yrsa Þórðardóttir prédikar og
stuttar ræbur flytja Elsa Þorkelsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs,
og Jeririý Sigfúsdóttir, sem kært hef-
ur launamisrétti.
Steinunn Jóhannesdóttir, Kristín
Ólafsdóttir, Anna Kristín Arngríms-
dóttir og fleiri leikkonur, sem sungu
baráttulög á plötunni Áfram stelp-
ur, rifja upp gömlu lögin. Messu-
söng stjórnar Bjarney I. Gunnlaugs-
dóttir við undirleik Aðalheiöar Þor-
steinsdóttur.
Kaffi á eftir í safnaðarheimilinu.
Tónlistarfélag
Vestur-Húnvetninga:
Tónleikar í Hvamms-
tangakirkju
Fimmta starfsár Tónlistarfélags
Vestur-Húnvetninga hófst í sept-
ember sl. með léttri JAZZsveiflu Ak-
urjazzmanna úr Eyjafirðinum, en
októbertónleikar félagsins verða
með öðru sniði.
í tilefni 50 ára afmælis Samein-
ubu þjóðanna, eru haldnir tónleik-
ar eða listsýningar víða um lönd, til
að styrkja umburðarlyndi þjóða á
milli. í dag, laugardaginn 21. októ-
ber, kl. 14 verða tónleikar í
Hvammstangakirkju með tónlistar-
mönnum frá fjórum löndum, þeim
Hilmari Erni Agnarssyni organista í
Skálholti, Peter Tompkins óbóleik-
ara frá Englandi, Michael Hillen-
stedt gítarleikara frá Þýskalandi, og
Mette Rasmussen flautuleikara frá
Danmörku, til að undirstrika sam-
starf þjóðanna. Ætla þau að flytja
verk eftir Bach, Hándel og ýmis
önnur tónskáld.
Tónlistarfélagið hefur haft þann
háttinn á, að félagar fá frían aðgang
að öllum reglulegum tónleikum fé-
lagsins (u.þ.b. 9 tónleikar yfir vetur-
inn), en aðrir borga aðgangseyri,
sem hefur verib hinn sami sl. fimm
ár, litlar 900 kr. og verður enn um
sinn.
4 norrænir myndlistar-
menn í Nýlistasafninu
í dag, laugardaginn 21. okt., kl.
16 verður opnuð sýning norrænna
myndlistarmanna í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b í Reykjavík.
„í vesturleib" er samsýning fjög-
urra myndlistarmanna frá Dan-
mörku, Finnlandi og Noregi, sem
allir hafa tengst íslandi á sögulegan
eða listrænan hátt. Þetta eru þeir
Helge Raed og Geir Espen Östbye
frá Noregi, Carl-Erik Ström frá Finn-
landi og Finn Nielsen frá Dan-
mörku.
Sýningin samanstendur að hluta
til af verkum, sem listamennirnir
hafa haft með sér að heiman, og að
hluta til af verkum sem unnin eru á
íslandi. Verkin eru sprottin úr sam-
eiginlegum menningararfi, en ólík
innbyrðis allt eftir einkennum
hvers og eins listamanns. Verkin
spanna ljós og skugga, hita og
kulda, goðsagnir og samtíma.
Myndlistarmennirnir hafa allir
langan feril að baki í greininni og
hafa átt þátt í að skipuleggja ótal
samnorræn verkefni í gegnum árin.
Þeir vinna með innsetningar, ljós-
myndir, teikningar og texta.
Gestur safnsins í Setustofu er
Birna Bragadóttir. Birna útskrifaðist
úr Fjöltæknideild Myndlista- og
handíðaskólans 1993 og stundar nú
nám í heimspeki við Háskóla ís-
lands. Þetta er fyrsta einkasýning
hennar og ber sýningin heitið „Um
attíska tungu og nokkrar fleiri".
Verkið er byggt á formála í íslenskri
orðsifjabók.
Sýningarnar eru opnar daglega
frá kl. 14-18 og þeim lýkur sunnu-
daginn 5. nóvember.
Tónlistardágar Musica Antiqua
og Ríkisútvarpsins:
Norðurljós
Tónlistarhópurinn Musica
Antiqua í samvinnu við Ríkisút-
varpið efnir til tónlistardaga um
þessa helgi og þar næstu. Bera þeir
yfirskriftina „Norðurljós".
Á morgun, sunnudaginn 22. okt.,
kl. 17 verða tónleikar í Háteigs-
kirkju. Fram kemur Bachsveitin í
Skálholti. Einleikarar: Camilla Sö-
derberg blokkflauta, Sarah Buckley
víóla og Martial Nardeau barokk-
flauta.
Sunnudaginn 29. október kl. 17
verða tónleikar í Kristskirkju. Þar
leika Camilla Söderberg á blokk-
flautur, Elín Guðmundsdóttir á
sembal, Guðrún Óskarsdóttir á sem-
bal, Sigurður Halldórsson á barokk-
selló og Páll Hannesson á kontra-
bassa.
Mánudaginn 30. október kl.
20.30 verða tónleikar í Þjóðminja-
safni. Sverrir Guðjónsson kontra-
tenór syngur og Gubrún Óskars-
dóttir og Snorri Örn Snorrason leika
á sembal og lútu.
Orgeltónleikar í
Askirkju
Efnt verður til nokkurra tónleika
í Áskirkju í Reykjavík tii styrktar
orgelsjóbi kirkjunnar.
Á morgun, sunnudag, kl. 17 leik-
ur Kjartan Sigurjónsson, organisti
Seljakirkju í Reykjavík. Á tónléika-
skránni verða verk eftir J. Pachelbel,
D. Buxtehude, J.S. Bach, Max Reger
og César Franck.
Aðgangur á tónleikana er ókeyp-
is, en tekið verður vib framlögum í
orgelsjóð að tónleikunum loknum.
Verið velkomin í Áskirkju.
iP Framsóknarflokkurinn
Abalfundir FUF-félaga
FUF-Akureyri og nágrenni
Abalfundur FUF-Akureyri og nágrenni verbur haldinn þribjudaginn 24. október
næstkomandi kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu ab Hafnarstræti 90.
FUF-Strandasýslu
Abalfundur FUF-Strandasýslu verbur haldinn fimmtudaginn 26. október nk. kl.
20.30 í Kvenfélagshúsinu á Hólmavík.
FUF-Vestur-Húnavatnssýslu
Abalfundur FUF-Vestur-Húnavatnssýslu verbur haldinn laugardaginn 28. október
nk. kl. 21.00 f félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka.
Mebal gesta verba Gubjón Ólafur |ónsson, formabur SUF, og Páll Magnússon, vara-
formabur SUF.
FUF-Reykjavík
FUF-Reykjavík heldur abalfund sinn mánudagskvöldib 30. október kl. 20.30 á
Kornhlöbuloftinu.
Kosinn verbur nýr formabur þar sem Óskar Bergsson gefur ekki kost á sér áfram.
Ingibjörg Davibsdóttir og Ingimar Oddsson hafa lýst yfir frambobi sfnu og verbur
væntanlega kosib á milli þeirra tveggja á fundinum.
FUF-Árnessýslu
FUF-Árnessýslu heldur abalfund sinn mibvikudagskvöldib 2. nóvember nk. kl.
20.30 í Framsóknarhúsinu, Eyrarvegi 15 á Selfossi.
Mebal gesta verba alþingismennirnir Gubni Agústsson og ísólfur Gylfi Pálmason,
Gubjón Ólafur jónsson, formabur SUF, og Páll Magnússon, varaformabur SUF.
FUF-Kópavogi
Abalfundur FUF-Kópavogi verbur haldinn laugardaginn 4. nóvember kl. 21.00 í
Framsóknarhúsinu ab Digranesvegi 12.
FUF-Hafnarfirbi
FUF-Hafnarfirbi heldur abalfund sinn þribjudagskvöldib 7. nóvember nk. kl.
20.30 í Framsóknarhúsinu ab Hverfisgötu 25 þar í bæ.
FUF-Mýra- og Borgarfjarbarsýslu
Abalfundur FUF-Mýra- og Borgarfjarbarsýslu verbur haldinn mibvikudaginn 8.
nóvember nk. kl. 18.00 í Framsóknarhúsinu, Brákarbraut 1 í Borgarnesi.
Mebal gesta verba Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigbisrábherra, Gubjón Ólafur jóns-
son, formabur SUF, og Páll Magnússon, varaformabur SUF.
FUF-Akranesi
Abalfundur FUF-Akranesi verbur haldinn mibvikudagskvöldib 8. nóvember nk. kl.
21.00 í Framsóknarhúsinu, Sunnubraut 21, Akranesi.
Mebal gesta verba Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigbisrábherra, Gubjón Ólafur jóns-
son, formabur SUF, og Páll Magnússon, varaformabur SUF.
Abalfundur
Framsóknar-
félags
Árnessýslu j&Sk
Isólfur Gubni
verbur haldinn mibvikudagskvöldib 25. október kl. 21 ab Eyrarvegi 15, Selfossi.
Venjuleg abalfundarstörf.
Gubni Agústsson og ísólfur Gylfi Pálmason mæta á fundinn. Stjórnin
Félagsfundur Framsóknarfé-
lags Keflavíkur, Njarbvíkur
og Hafna
verbur haldinn mánudaginn 23. október kl. 20.30 í Framsóknarfélagshúsinu, Reykja-
nesbæ.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
2. Markabs- og atvinnumál. Fribjón Einarsson heldur framsögu.
3. Önnur mál. Stjórnin
BELTIN BARNANNA VEGNA