Tíminn - 21.10.1995, Síða 24
Vebriö (Byggtá spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
• Suburland til Breibafjarbar: Sunnan kaldi. Riqninq eba skúrir. Hiti
2 til 6 stig.
• Vestfirbir: Sunnan kaldi og rigning. Hiti 2 til 5 stig.
• Norburland eystra til Austfjarba: Léttir til meb sunnan og subvest-
an golu. Hiti 1 til 6 stig.
• Subausturland: Sunnan og subvestan gola og skúrir. Hiti 2 til 6 stig.
Laugardagur 21. október 1995
• Strandir og Norburland vestra: Sunnan og subvestan gola eba • Mibhálendib: Sunnan og subvestan kaldi og þurrt ab mestu norb-
kaldi og sums stabar dálitlar skúrir eba slydduél. Hiti 1 til 5 stig. an jökla en él annars stabar. Vægt frost.
60 þúsund tonna viöbót viö álveriö í Straumsvík er aö veröa aö veruleika, og viörœöur framundan viö bandaríska álframleiöendur:
Alusuisse-Lonza tilbúið í slaginn,
Columbiamenn koma um helgina
Samkomulag um stækkun ál-
versins í Straumsvík liggur nú
fyrir. Taliö er fullljóst aö
stjórn Alusuisse-Lonza muni
samþykkja á fundi sínum aö
hefja stækkun verksmiöjunn-
ar þegar í vetur. Þaö þýöir fjöl-
mörg störf í byggingariönaöi,
sem nú stendur afar höllum
fæti.
íslenska samninganefndin og
samninganefnd Alusuisse, sem
samanstendur af forstjóra ál-
deildar A-L, fjármálastjóra fyrir-
tækisins og fleiri toppmönnum
hafa komið sér saman um öll
aöalatriði varöandi stækkunina.
í gærmorgun var málið kynnt
í ríkisstjórn af iönaöarráöherra,
Finni Ingólfssyni. í iönaöar-
ráöuneyti er litið svo á aö máliö
sé í höfn. Ekki er talið að snuröa
hlaupi á þráöinn á síðustu
stundu.
„Að sjálfsögöu er ég vonbetri
nú en nokkru sinni að til fram-
kvæmda komi, enda hafa allir
helstu ráðamenn Alusuisse-
Lonza lýst yfir samþykki sínu og
samninganefnirnar ná sam-
komulagi sín í milli. Ég treysti
því að sjálfsögöu aö æöstu
menn Alusuisse hafi sitt um-
boö. En auðvitað eru samningar
ekki orönir samningar fyrr en
þeir eru undirritaðir," sagði
Finnur Ingólfsson iönaöarráö-
herra í samtali við Tímann í
gærkvöldi.
Gert er ráö fyrir að stækkunin
komi í gagnið haustiö 1997.
Framkvæmdin mun þýöa 400
ársstörf auk þess sem talsvert á
annaö hundrað manns verða
Finnur Ingólfsson vibskiptaráb-
herra.
ráðnir til framtíðarstarfa í
Straumsvík. Störf sem leiða af
slíkum umsvifum eru talin geta
orðið um 1.000 talsins sam-
kvæmt þeim formúlum sem um
slíkt gilda, en þær gera ráö fyrir
2,6-földun starfa við verslun,
þjónustu og ýmsan iðnað.
En fleiri útlendingar eru í ál-
hugleiöingum á íslandi. Um
helgina eru væntanlegir hingað
til lands forráðamenn Colum-
bia Aluminum Corp. í Banda-
ríkjunum. Þeir munu dvelja hér
fram eftir viku og ræða málin.
Eins og Tíminn hefur greint frá
eru þeir áhugasamir um að reisa
allt að 60 þúsund tonna álver á
Grundartanga.
Fleiri erlend fyrirtæki hafa
auk þess sýnt áhuga á álfram-
leiðslu hér, eða alls 8 talsins.
Einhver þeirra munu á næst-
unni senda hingað fólk til viö-
ræðna, meðal annars Kínverjar.
Þá er þess að geta að taldar eru
vaxandi líkur á mikilli stækkun
járnblendiverksmiöjunnar á
Grundartanga og samkvæmt
heimildum blaösins styttist nú
mjög í að ákvörðun verði tekin
þar um.
Tíminn hringdi í ísal í gær og
spurðist fyrir um gang mála.
Rannveig Rist, talsmaður álvers-
ins, hafði þá ekki heyrt af gangi
viðræðnanna. Christian Roth,
forstjóri ísal hf., heyrði fréttirn-
ar af ríkisstjórnarfundinum í út-
varpsfréttum í hádeginum í gær.
Mikil leynd hefur því hvílt yfir
viðræðum samninganefndanna
tveggja.
-JBP
Akvebib ab kaupa
hús í Súbavík og
Hnífsdal
Ríkisstjórnin ákvaö á fundi
sínum í gær samkvæmt til-
lögu félagsmálaráðherra aö
kaupa íbúöarhúsnæöi á snjó-
flóðahættusvæðum í Súöavík
og Hnífsdal. Jafnframt var
ákveöiö aö fresta gerö snjó-
flóöavarna í Súöavík.
Nefnd sem vinnur að því að
skilgreina hugtakið endurstofn-
verð, þ.e. hvort menn eigi að fá
nýtt hús fyrir gamalt eða fá
greitt verð húsa sinna eins og
þau standa, hefur ekki skilað
niðurstöðum. Á meðan er ekki
hægt að ganga frá samningum
um kaup húsanna. Páll Péturs-
son félagsmálaráöherra telur að
þrátt fyrir það sé mikilvægt fyrir
íbúa þessara svæða að vita aö
ríkisstjórnin ætli að kaupa hús-
in.
„í Hnífsdal er þeim óhætt að
fara að svipast um eftir húsnæði
annars staðar sem þaö vilja.
Menn þurfa þá ekki að bíöa í
sínum húsum í vetur ef þeir
finna annað húsnæði."
Páll segir aö ástæða þess að
ákveðið sé að kaupa íbúðarhús í
Hnífsdal sé að hann hafi sótt
um kaup á húsunum áður en at-
burðirnir urðu í Súðavík. Hnífs-
dalur sé í mikilli hættu og því sé
ekki sanngjarnt að láta hann
bíða. -GBK
Hollustuvernd hefur stöövaö sölu á rúöuvökva í verslunum Bónus:
Gubmundur Bjarnason landbúnabarrábherra var meb þeim fyrstu sem
keyptu kjöt af lífrœnt rœktubum lömbum í gær. Tímamynd: Pjetur
Lífrænt kjöt
komib á markaö
Rúðuvökvinn hættu-
legi innkallaður
Sala á rúöuhreinsinum Sure-
Wash, Windshield Washer,
hefur nú veriö stöövuö af
Hollustuvernd ríkisins, en
vökvinn inniheldur mikiö
magn af metanóli, en efniö er
eitraö viö innöndun og inn-
töku og hættulegt viö snert-
ingu. Efniö getur valdiö
blindu, öörum alvarlegu
heilsutjóni eöa leitt til dauöa.
Vara þessi var til sölu í versl-
unum Bónus.
í fréttatilkynningu frá Holl-
ustuvernd er þeim tilmælum
beint til þeirra sem keypt hafa
rúöuhreinsivökva af þessari
gerö og eiga efniö enn til, eru
beðnir um að sjá til þess að því
verði fargað strax á viðeigandi
hátt. Þeim er bent á að skila efn-
inu til spilliefnamóttöku eða til
verslunarinnar sem það var
keypt í, svo tryggt sé að komist
verði hjá slysum. Efnið er ljós-
blár vökvi, seldur í 3,7 lítra
plastbrúsum og er það ætlað til
notkunar á bíla.
í frétt frá Bónus kemur fram
að vara þessi hafi verið flutt inn
frá Bandaríkjunum í góðri trú,
þar sem hún sé á boðstólnum í á
þriðja þúsund verslana þar í
landi. Auk þess hafi samskonar
vökvi verið á öllum innfluttum
bifrgiðum frá Bandaríkjunum
hingað til lands. Þar segir enn-
fremur að stjórnendur Bónus
hafi þegar tekið vökvann úr sölu
í verslunum sínum, en þeir
benda á að allur slíkur vökvi
sem er til sölu hér á landi er ekki
ætlaður til drykkjar enda ekki
vitað til þess að nokkur leggi
slíkt til munns. ■
Kjöt af iífrænt ræktuöum lömb-
um var í fyrsta skipti boöiö til
sölu í Hagkaup í gær. Kjötiö
kemur frá Pétursey í Mýrdal og
félagsbúinu Þórisholti í Mýrdal.
Við lífræna ræktun er öll efna-
notkun sem hugsanlega getur
haft skaðleg áhrif á neytendur
bönnuð. Þetta á við um horm-
ónanotkun, lyfjagjöf og notkun
illgresis- og sicordýraeiturs. Þegar
um búfénab er aö ræða eru jafn-
framt gerðar kröfur til sláturhúsa.
Þar hafa dýraverndunarsjónarmib
hafa mikið að segja og einnig ab
unnt sé að rekja hvaðan afurðirn-
ar koma. Eina sláturhús landsins
sem er vottað til slátrunar á líf-
rænum búfénaði er sláturhús SS á
Selfossi og var lömbunum slátrað
þar í vikunni. Sláturfélagiö er
stuöningsaðili að átaki um líf-
ræna framleibslu í Mýrdal og hef-
ur lagt til fjármuni til stuðnings
verkefninu.
-GBK
TVÖFALDUR 1. MNMNGUR