Tíminn - 27.01.1996, Qupperneq 15
15
Linnulaust mótlæti
Fékk réttlœtiö aö ráöa
þegar dœmt var í máli Dennis Neville
á 5. áratugnum í Bretlandi?
Marian Poskitt gerbi sér ekki grein fyrir hve illa sjúkur unnusti hennar var.
líkami, með andlitið blóði
storkið.
Strax var haft samband við
lögregluna, en á sama tíma
leiddi Dennis móður sína að
kirkjugarðinum þar sem þau
lögðu blóm á leiði bróður
Dennis. Ekki var á Dennis að sjá
að hann hefði neitt á samvisk-
unni,, og' móður hans fannst
ekkert athugavert við háttalag
hans.
En aftur að morðstaðnum.
Lögreglan í Yorkshire minntist
þess ekki að hafa séð jafn
hrottalega útleikið lík. Allt
svæðið í margra metra radíus
var blóði drifinn vígvöllur. Höf-
uð líksins var verst fariö. Höfuð-
kúpan sjálf var mölvuð, augun-
um hafði verið þrýst inn og all-
ar framtennur brotnar. Þá var
blússa ungu konunnar dregin
upp fyrir axlir.
játningin
Foreldrar Marian fengu brátt
fréttirnar um að ung kona hefði
fundist myrt í nágrenninu, og
þar sem Marian hafði ekki kom-
ið heim um nóttina, varð ótti
þeirra að skelfingu. Eftir að lög-
reglan lýsti fyrir þeim koiiunni,
sem hafði fundist, lék enginn
vafi á að Marian hefði verið
myrt.
Faðirinn bugaðist, en móður-
inni tókst að stynja upp:
„Dennis Neville hefur gert það."
Krufningarskýrsla sýndi að
Marian hafði verið komin 14
Dennis Neville átti kœrustu þegar þetta var, hina 21 árs gömlu
Marian Poskitt, en þau höföu þekkst um langa hríö. Hún var mun hrifnari af
Pennis en hann af henni, og lagöi hún ríka áherslu á aö hann kvœntist sér hiö
fyrsta. Þaö var e.t.v. sá þrýstingur sem varö Dennis um megn haustiö 1948, þeg-
ar löngu heföi átt aö vera búiö aö leggja hann inn á stofnun, samkvœmt nútíma
greiningu í lœknavísindum.
SAKAMAL
.FEBRUARY 21. 1949
Girl found
' strangled
in field:
man charged
t'rom Our Oitn Correspondent
DEWSBURY. Sundajr
Ec:’ tliJii n::ic after
Marion 1'osUu CJ11. 32. Lov
Koad. Dewa'niry Moor. had
hwn íound atranglfd tn &t. Matthew’*
Church ground. Dew*bury.
DtnnU Neville. 2J y
lubourrr. w
L
Ur úrklippum dagblaba, en fjölmiblar í Bretlandi sýndu þessu máli mikinn
áhuga, enda um óvenju hrottafengna árás ab rœba.
Laugardagur 27. janúar 1996
að var tvennt sem var
Dennis Neville í hag í
lífinu. Hann var mynd-
arlegur og sterklega vaxinn.
Þar með var það upptalið.
Allt annað gekk honum í mót
í aðeins 21 árs jarðlífssögu.
Dennis hætti 14 ára gamall í
skóla í Yorkshire og fór ab starfa
við brotajárn. Hann laug til um
aldur og fékk inngöngu í herinn
15 ára gamall, en var sparkað út
eftir 106 daga vist, þegar raun-
verulegur aldur hans komst
upp. Hann beið eftir ab verba
fullgildur og skrábi sig aftur í
herinn árib 1943. Ári síöar tók
hann þátt í D-deginum svokall-
aða, í innrásinni í Normandy.
Um svipað leyti komu upp
getgátur um að Dennis væri
geðklofi, en ábur en foreldrar
hans gátu aðhafst nokkuð fengu
þau skeyti frá hernum sem sagði
ab hans væri saknað eftir ab
hafa særst í bardaga.
Stríösfangi
Það hefði betur reynst rétt, en
í raun hafði hann verið tekinn
til fanga og óstöðugt geðslag
hans þoldi stríðsfangavistina
mjög illa.
Dennis neitaði að vinna og
var fyrir vikið tekinn sérstaklega
fyrir hjá óvinunum, sem börðu
hann og hæddu hvenær sem
færi gafst. Á aðfangadag árið
1944 sat hann einn í einangr-
unarklefa á köldu steingólfi, án
matar og drykkjar, á sjálfri frið-
arhátíö frelsarans. Fram ab þess-
um tíma hafbi Dennis verib
mjög trúaður, en er talinn hafa
snúið baki við guði frá og með
þessum tíma.
Morð á föður hans
Þegar Dennis var loks frelsað-
ur af bandamönnum, var hann
orbinn mjög veikur og ekki
batnaði ástand hans við heim-
komuna, er hann frétti að bróð-
ir hans hefði farist í Burma og
foreldrar hans skilið. Hann gat
ekki ímyndað sér að ástandið
gæti orðið verra, en þar skjátlað-
ist honum. Þegar Dennis hugð-
ist heimsækja föður sinn, kom
hann að honum í blóði sími,
liggjandi á gangstétt framan við
götuna. Yfir líki hans stóð mað-
ur, John Cardle, sem hótaði
Dennis meb eftirfarandi orðum:
„Ef þú ætlar þér eitthv'að, mun
ég koma þér fyrir kattarnef eins
og pabba þínum!"
Dennis lét lögregluna vita og
skömmu síðar var Cardle hand-
tekinn. Ómögulegt reyndist ab
sanna að hann hefbi myrt föður
Dennis og því var Cardle sýkn-
aður við réttarhöld.
Illa haldinn
Cardle lagði Dennis í einelti
fyrst á eftir og fór upp úr því að
bera á ofsóknaræöi hjá hinum
unga Dennis, sem var í raun
stofnanamatur. Skömmu síbar
var honum sagt upp störfum
hjá hernum á þeim forsendum
ab andlegt ástand væri ófull-
nægjandi. Þetta var árið 1947.
Geðlæknar höfðu umsjón
meb Dennis næstu mánubi og
kemur fram í skýrslum að hann
þjábist mjög vegna vanheilsu
sinnar, en greind hans þótti yfir
meðallagi. Dennis sagðist eiga í
baráttu vdð annab sjálf sitt,
innri rödd sem segði honum að
gera ljóta hluti. Þörf hans yrði
stundum mjög sterk fyrir að
„þagga niður í fólki í eitt skipti
fyrir öll".
Kærastan
Dennis Neville átti kærustu
þegar þetta var, hina 21 árs
gömlu Marian Poskitt, en þau
höfbu þekkst um langa hríð.
Hún var mun hrifnari af Dennis
en hann af henni, og lagði hún
ríka áherslu á ab hann kvæntist
sér hib fyrsta. Það var e.t.v. sá
þrýstingur sem varb Dennis um
megn haustið 1948, þegar
löngu hefði átt að vera búið að
leggja hann inn á stofnun, sam-
kvæmt nútíma greiningu í
læknavísindum.
Kvöld eitt höfðu þau ákveðið
að mæla sér mót á bar í Yorks-
hire, en Dennis lét ekki sjá sig,
heldur drakk meb vini sínum á
annarri krá. Vinkona hans beið
fram yfir miðnætti, en labbaði
síðan hnuggin áleiðis heim.
Hún komst aldrei á leiðarenda.
Líklö
Daginn eftir fór Dennis út ab
ganga með móður sinni, en
skammt frá var mjólkursendill
ab sinna störfum sínum. Hann
sá fyrir tilviljun torkennilega
þúst liggja í bakgarði eins við-
skiptavina sinna og aðgætti
málið betur. Þab reyndist konu-
vikur á leib þegar hún var myrt.
Dánarorsök var kyrking, en eftir
það hafði höfði hennar verib
Mjólkursendillinn sem fann líkib af
Marion.
Dennis Neville. Ógœfumabu. ai.
sitt líf.
lamið við stein.
Dennis Neville þóttist fyrst
koma af fjöllum, þegar lögregl-
an tók hann í yfirheyrslu, en
lögreglumenn tóku strax eftir
blóðblettum á skyrtu hans og
buxum. Þegar hann var beðinn
að gera grein fyrir þeim, sagði
Neville einfaldlega: „Fyrirgefið.
Ég sagbi ósatt. Það var ég sem
drap hana."
Eftirfarandi er framburður
Dennis, samkvæmt lögreglu-
skýrslu: „Ég var á leið heim,
þegar ég gekk af tilviljun fram á
hana. Hún byrjaði að hrópa að
mér af hverju ég hefði ekki stað-
ib við stefnumótið og ég þoldi
illa hávaðann í henni. Til að
þagga niður í henni, dró ég
hana inn í afskekktan bakgarb
og stakk fingrunum nibur í háls
hennar. Eftir skamma stund
hné hún niður meðvitundar-
laus, en ég lauk verkinu með
steini. Mér var ekki sjálfrátt."
Þungur dómur
í fangelsinu var Dennis mjög
ofbeldisfullur og misþyrmdi
samfanga sínum m.a. fyrir að.
nota tannburstann hans í
óleyfi. Það er talið hafa þyngt
refsingu hans enn frekar.
Réttarhöldin fóru fram í Le-
eds, en þar gekk öll vörn í máli
hans út á að sýna fram á ósak-
hæfi vegna geðveiki. Ennfremur
bar ákærbi ab fóstrið, sem Mari-
an bar undir belti, hefði ekki
verið hans og það hefði haft
áhrif á gjörðir hans. Á slíkt var
ekki hlustaö, enda engin leib þá
að greina hvort sú staðhæfing
væri rétt.
Dennis var sannarlega mjög
veikur og auk þess urðu ytri
áföll í lífi hans meiri en flestir
menn myndu þola. Það má telja
ólíklegt aö hann hefði hlotiö
þyngstu refsingu í dag, en í Le-
eds voru honum engin grið gef-
in. Dennis Neville var hengdur
annan júlí árið 1949, aðeins 21
árs gamall. ■