Tíminn - 11.05.1996, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.05.1996, Blaðsíða 3
Laugardagur 11. maí 1996 3 Mermtamálarábherra afhentur undirskriftalisti 40 kvenna í Háskólanum: Eru gegn því að prófess- orar verbi embættismenn 40 konur hafa sent mennta- málaráöherra bréf þar sem þær segja konur hafa átt erf- itt uppdráttar innan Háskól- ans og jafnréttisumræöa sé lítil. Þær segjast andvígar samþykkt Prófessorafélags Háskóla íslands um breyt- ingu á frumvapi til laga um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins, aö prófess- orar veröi embættismenn á vegum ríkisins. Bent er á að aðeins þriöjung- ur prófessora við Háskólann hafi verið á fundinum og margir sem ekki hafi verið þar telji sig ekki félagsmenn í sam- tökum sem ekki séu formlegt félag innan Félags háskóla- kennara. Félag háskólakenn- ara sé ennþá stéttarfélag pró- fessoranna og gangi þeir úr því, verði félagið svipt vopni sínu, þar sem stór hópur fé- lagsmanna megi ekki fara í verkfall. Þá segja konur innan HÍ að framgangskerfið svokall- aða sem metið hafi verið til launaprósenta í kjarasamning- um háskólakennara sé lagt í rúst og afnám þess muni bitna á öllum yngri starfmönnum háskólans þar sem konur séu Pálmi ekki í framboð „Kirkjan er mér kær og alls ekki auðvelt að hverfa úr þjónustu hennar. Á hennar vettvangi er ekki síöur hægt ab vinna landi og þjób til heilla," segir séra Pálmi Matthíasson sóknarprestur í Bústaðakirkju. Hann tll- kynnti í gærdag ab hann gæfi ekki kost á sér í fram- boð til embættis forseta ís- lands. „Síðustu vikur hafa verið undir mjög sterkum þrýst- ingi," segir séra Pálmi. Fjöl- margir hafi sótt fast að þeim hjónum að gefa kost á sér til hins virðulega embættis. Ákvörðun sín og konu sinnar sé hins vegar einlæg og endan- leg. Velvilji fjölda fólks víða um land sé honum og konu hans dýrmætur og fyrir það þakki þau. -JBP Réttarholtsskóli er 40 ára um þessar mundir en skólinn hóf starfsemi sína á haustdögum árib 1956. Skólinn hefur frá upphafi verið á unglingastigi og er einn af þremur skólum í Reykjavík sem áöur voru kallaðir gagnfræða- skólar. Hinir em Hagaskóli og Rauðalækjarskóli. Nú em um 285 nemendur í dagskólanum í „Réttó" en áður vom þeir rúm- lega 800 þegar kennt var vib- stöðulaust frá 08.00-18.00. Haraldur Finnsson skólastjóri segir nemendur sjálfa gera skóla merkilega og hann er ekki í vafa um fjölmennastar. Aðeins prófess- orar mega sitja sem fulltrúar í Háskólaráði en ráðið ályktabi 28. mars sl. að „staða prófess- ora Háskólans sem embættis- manna skipti sköpum fyrir þróun Háskóla íslands sem há- skóla og rannsóknarstofnun- ar." í bréfinu er bent á að af 134 dósentum innan skólans séu aðeins 24 konur og af 148 pró- fessorum abeins 9 konur. „Prófessorar einir eiga rétt til setu í æbstu valdastofnunum háskólans og þeir skipa valda- miklar nefndir þar sem ýmist Útskrift nemenda úr Lýðskól- anum fór fram í Norræna hús- inu í gær. 17 unglingar á á aldr- inum 16-19 ára luku námi, en námsönnin hófst í byrjun febrúar. Þetta er fyrsta útskrift í íslensk- um lýðskóla síban Lýðskólinn í Skálholti var lagður niður og er skólinn rekinn sem samstarfs- verkefni Norræna hússins og Reykjavíkurborgar. Soffía Vagns- dóttir kennari segir lýðskólann einkum fyrir krakka sem af ein- að Réttarholtsskóli sé merkilegur skóli. „Vib höfum leitað mikið til gamalla nemenda fyrir hátíðarhöld- in núna og það var alveg sama við hvern við töluðum. Viðkvæðiö var: Hvað get ég gert fyrir ykkur. Skipti þá ekki máli hvort nemendurnir vom frá fyrstu ámm skólans eöa ný- lega útskrifaðir. í þessu sambandi minnir skólinn frekar á gamla menntaskóla. Nemendur halda sambandi eftir útskrift og hittast reglulega." Haraldur sagði sérstætt við kenn- arana í Réttarholtsskóla að þar væri kynjahlutfallið jafnt, en almennt situr engin kona eða konur sem eru í miklum minnihluta. Sjónarmið kvenna, bæði hvað varðar stefnumótun skóla al- mennt og mótun hans sem vinnustaðar koma lítið fram og jafnréttisumræða hefur ver- ið lítil," segir ennfremur í bréf- inu. Bjarni Guðnason, prófessor við HÍ, hafði ekki kynnt sér efni bréfsins í gær en hann sagðist ekki sjá ávinning kvenna innan skólans þótt prófessorar yrðu ekki embætt- ismenn. Kvennahreyfingin hefði ekki byrjað af krafti fyrr hverjum orsökum hafa flosnað upp úr framhaldsskólum. Mark- mið námsins sé að byggja ung- lingana upp og tengja þau aftur við samfélagiö. „Sérstaða skólans er að hér eru engin próf og mikil þemavinna. Listir skipa veglegan sess og engar skólabækur eru not- aðar. Við emm mjög ánægð með hópinn, lífsmynd flestra nem- endanna hefur breyst verulega á síðustu þremur mánuðum og all- mörg ætla sér í mennta- eba iðn- skóla í haust." væru nú konur í miklum meirihluta þeirra sem kenndu í grunnskólum. Hann telur skýringuna vera leifar þess að karlmenn kenndu frekar á unglingastigum ábur fyrr á meðan konurnar sáu meira um nám yngri nemendanna. Skólanum hefði haldist sérlega vel á kennurum. Mikill fjöldi þjóðþekktra einstak- linga hefur útskrifast frá Réttó og má þar nefna furðu marga tónlistar- menn líkt og Björk Guðmundsdótt- ur, Valgeir Guðjónsson, Jóhann Ás- mundsson og Mána Svavarsson. „Við höfum ekki lagt okkur eftir að finna alþingismenn og ráðherra en upp úr 1970 og því væri eðlilegt að karlmenn væru í meirihluta prófessora svo skömmu síðar. „Nú orðið er ekkert sem hindrar aðgang kvenna að æðstu stöðum við Háskólann," sagði Bjarni. Hann sagðist sannfærður um að jafnt hlutfall yrði á milli kynjanna í æðstu valda- stöðum innan háskólans inn- an 10-20 ára. „Við erum ekki að tala um kerfisleg höft held- ur söguleg og félagsleg. Þetta er langt nám og þarf sinn tíma en síðar gerist þetta af sjálfu sér." -BÞ Hæst ber í vetrarstarfinu ferð til Færeyja auk þess sem unglingarn- ir tóku þátt í að gefa út samnor- rænt blað, Ozon. Krakkarnir skrif- uðu greinarnar sjálf en kennar- arnir hjálpuðu til við þýðingar. Aðstandendur lýðskólans em á höttunum eftir nýju húsnæði. Kjallari Norræna hússins, þar sem kennslan hefur fariö fram í vetur, rúmar um 20 manns en nem- endahópurinn fer vaxandi að sögn Soffíu Vagnsdóttur kennara. -BÞ sem útskrifast hafa frá skólanum," sagði Haraldur og hló. Dagskráin í dag hefst kukkan 11.00 og verður m.a. boðið upp á skák, reiðsýningu og margvíslegar íþróttauppákomur svo sem hand- boltaleikur fjölda landsþekktra handboltamanna sem hafa útskrif- ast frá Réttó. Formleg setningarhá- tíð hefst klukkan 11 og má þar nefna tónlistar-, leiklistar- og söng- viðburði auk ávarpa. Síðdegis munu núverandi og fyrrverandi nemend- ur troða upp á ýmsum sviðum og eru allir velunnarar skólans vel- komnir. -BÞ Þessar mótmæla Listi þeirra kvenna innan H.í. sem rituðu nöfn sín undir bréf- ið til menntamálaráöherra: Dagný Kristjánsdóttir, dósent, heim- spekideild. Rannveig Traustadóttir, lektor, félags- vísindadeild. Gerður G. Óskarsdóttir, kennslustj., fé- lagsvísindadeild. Sigrún Stefánsdóttir, lektor, félagsvís- indadeild. • Steinunn Hrafnsdóttir, stundakennari félagsvísindadeild. Álfrún Gunnlaugsdóttir, prófessor, heimspekideild. Þóra Björk Hjartardóttir,lektor, heim- spekideild. Guðrún Þórhalldsdóttir, lektor, heim- spekideild. Sigrún Á. Eiríksdóttir, lektor, heimspeki- deild. Valgerbur Edda Benediktsdóttir, sér- fræðingur, Raunvísindastofnun. Bryndís Brandsdóttir, fræbimaður, Raunvísindastofnun. Árný G. Sveinbjörnsdóttir, fræðimabur, Raunvísindastofnun. Hildur Sigurðardóttir, lektor, námsbraut í hjúkmnarfræðum. Bima G. Flygenring, lektor, námsbraut í hjúkrunarfræði. Sóley Bender, lektor, námsbraut í hjúkr- unarfræði. Auður Styrkársdóttir, félagsvísindadeild. Guðrún Ólafsdóttir, dósent, raunvís- indadeild. Auöur Andrésdóttir, sérfræðingur, Raunvísindastofnun. Oddný G. Sverrisdóttir, dósent, heim- spekideild. Gubrún Björk Gubsteinsdóttir, lektor, enskuskor. Kristín Björnsdóttir, dósent, hjúkrunar- fræði. Anna Agnarsdóttir, sagnfræbi. Marga Thome, hjúkrunarfræbi. Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur, Raun- vísindastofnun. Sigríður Ólafsdóttir, fræbimaður, Raun- vísindastofnun. Ragna S. Sveinsdóttir, lektor, heimspeki- deild. Herdís Sveinsdóttir, dósent, hjúkrunar- fræði. Margrét Jónsdóttir, dósent, heimspeki- deild. Elín S. Ólafsdóttir, lektor, lyfjafræði lyf- sala. Ásta Svavarsdóttir, fræðimaður, Orða- bók Háskólans. Stefanía Júlíusdóttir, lektor, félagsvís- indadeild. Ragnheiður Bragadóttir, lektor, laga- deild. Margrét Eggertsdóttir, sérfræbingur, Árnastofnun. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, dó- sent. Eva Benediktsdóttir, dósent, raunvís- indadeild. Guðrún Kvaran, vísindamaður, Orba- bók Háskólans. Ásdís Egilsdóttir, lektor, heimspeki- deild. Áslaugs Geirsdóttir, dósent, Raunvís- indastofnun. María H. Þorsteinsdóttir, lektor, náms- braut í hjúkruanrfræði. Margrét Jónsdóttir, lektor, heimspeki- deild. Danielle Kvaran, lektor, heimspeki- deild. ■ Ólafsvík: Smábátar með 2,5 tonn eftir daginn Ágætis aflabrögö hafa verið hjá smábátum sem róa frá Ólafsvík og eru dæmi um að bátur hafi komið með 2,5 tonn af vænum þorski eftir daginn. Sigurður Ragnarsson á bílavog- inni við Ólafsvíkurhöfn segir að bræla hafi hamlað veiðum smábáta uppá síðkastið. Eitthvað virðist þorskurinn hafi fælst frá í brælunni því dæmi er um að bátur með 10 bjóð hafi aðeins fengið 113 kíló í róðri eftir að brælan gekk niður. -grh Haldiö upp á fertugsafmœli Réttarholtsskóla í dag. Skólastjóri: Um 800 nemar þegar mest var Nemar Lýbskólans settu upp útskriftarhúfurnar ígœr en einn nemandi skólans hannaöi höfuöfötin. Þaö lenti hins vegar í verkahring móöur hans aö prjóna. Tímamynd cs 17 nemendur útskrifast úr Lýöskólanum. Soffía Vagnsdóttir kennari: „Flest náð að fóta sig í lífinu"

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.