Tíminn - 11.05.1996, Blaðsíða 19

Tíminn - 11.05.1996, Blaðsíða 19
Laugardagur 11. maí 1996 19 Anna prinsessa var heiöursgest- ur á verölaunaafhendingunni og viöurkenndi hún aö hafa sleppt afmælisveislu móöur sinnar til aö geta veriö viöstödd afhend- ingu BAFTA-verölaunanna. loan Collins var einnig kynnir á afhendingunni og hafa þaö vœntanlega veriö samantekin ráö hjá þeim kerlum aö mœta í hvítu. Jane Austen stal senunni Verðlaunatíðinni lýkur ekki með afhendingum Óskars- verðlauna og fyrir skömmu af- hentu Bretar kvikmynda- og sjónvarpsstjörnum sína ósk- ara, svokölluð BAFTA-verð- laun. Þetta er í 27. sinn sem stjörnurnar eru verðlaunaðar frá BAFTA og það var rithöf- undurinn Jane Austen sem stal senunni nú nærri tveimur öldum eftir ab hún skrifaði skáldsögur sínar en kvik- myndaútgáfan af Sense and Sensibility fékk verðlaun sem besta kvikmyndin. Auk þess var Emma Thompson valin besta aðalleikkona í þeirri mynd og besta leikkona í aukahlutverki var valin Kate Winslet, einnig úr myndinni Sense and Sensibility. Besta leikkona í aukahlutverki var valin hin tvítuga Kate Wins- let fyrir leikinn íSense and Sensi- bility. Af öðrum ánægðúm gestum má nefna ab Nigel Hawthorne var valin besti aðalkarlleikari fyrir leik í myndinni The Mad- ness of King George en hún hlaut einnig titilinn Framúr- skarandi bresk kvikmynd. Ým- islegt fleira var verðlaunað þetta kvöld, t.d. voru Ráðgátur valdar vinsælasta sjónvarps- þáttaröðin, tímamótaviðtalið vib Díönu prinsessu þar sem hún viðurkenndi 'að hafa haldið framhjá Karli Breta- prins var valið besta sjónvarp- sviðtalið og þáttaröðin sem nú er sýnd í ríkissjónvarpinu, The Politician's Wife, hlaut verb- laun sem besta dramatíska þáttaröðin. ■ Hún Emma Thompson þarf sjálf- sagt bráölega aö fjárfesta í nýj- um glerskáp því dómnefndir viröast óþreytandi viö aö af- henda konunni verölaun af ýmsu tagi. Angela Lansbury ásamt eigin- manninum Peter Shaw. í SPECLI TÍIVIANS Patsy Kensit mætti í drifhvítum jakkafötum en hún var kynnir á athöfninni. Framsóknarflokkurínn Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 1996 Dregiö ver&ur í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 6. júní 1996. Velunnarar flokksins eru hvattir til a& grei&a heimsenda gíróse&la fyrir þann tíma. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu flokksins í síma 562-4480. Framsóknarflokkurinn Kópavogur Bæjarmálafundur ver&ur haldinn a& Digranesvegi 12, mánudaginn 13. maí kl. 20.30. Sigur&ur Geirdal ræöir bæj- armálin. Framsóknarfélögin í Kópavogi Sigurður 26. þing Sambands ungra framsóknarmanna, Bifröst í Borgarfirbi 7.-9. júní 1996 Föstudagur 7. júní: Kl. 20.00 Setning — Gu&jón Ólafur Jónsson, formaður SUF. Kl. 20.10 Kosning embættismanna: a) Tveggja þingforseta. b) Tveggja þingritara. c) Kjörnefndar. Kl. 20.15 Skýrsla stjórnar: a) Gu&jón Ólafur Jónsson, forma&ur SUF. b) Þorlákur Traustason, gjaldkeri SUF. Kl. 20.45 Tillögur a& ályktunum þingsins. Kl. 21.30 Ávörp gesta — umræ&ur og fyrirspurnir. Kl. 22.45 Nefndastörf. Kl. 00.00 Óvæntar uppákomur. Laugardagur 8. júní: Kl. 09.30 Morgunver&ur. Kl. 10.00 Nefndastörf. Kl. 12.00 Hádegisver&ur. Kl. 13.00 Umræ&ur og afgrei&sla ályktana. Kl. 15.30 Kaffihlé — uppákomur. Kl. 17.00 Afgrei&sla stjórnmálaályktunar. Kl. 17.30 Kosningar. Kl. 18.00 Önnur mál — þingslit. Kl. 19.30 Grillveisla — samdrykkja. Kl. 23.00 Dansleikur. Sunnudagur 9. júní: Kl. 09.30 Morgunverður — brottför. A KÓPAV OGSBÆR Húsnæðisnefnd Kópavogs Umsóknir Húsnæöisnefnd Kópavogs auglýsir hér með eftir umsóknum um félagslegar eignaríbúbir og félagslegar kaupleiguíbúbir. Þeir einir koma til greina sem uppfýlla eftirfarandi skilyrbi: 1. Eiga ekki íbúð eða samsvarandi eign. 2. Eru innan eigna- og tekjumarka Húsnæbisstofnunar ríkisins, sem eru meöaltekjur áranna 1993-1995. Meðaltekjur einstaklinga: kr. 1.500.000 Mebaltekjur hjóna: kr. 1.875.000 Viðbót fyrir hvert barn: kr. 250.000 Eignamörk eru: kr. 1.900.000 3. Sýna fram á greiðslugetu sem miðast við ab greiðslubyröi lána fari ekki yfir 28% af tekjum. Umsóknareyðublöð verba afhent á skrifstofu Húsnæbisnefndar Kópavogs ab Fannborg 4, sem er opin frá kl. 9-15 mánudaga- föstudaga. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 1996. Athygli er vakin á því ab gildar eru umsóknir sem borist hafa eftir 1. janúar 1996, en eldri umsóknir þarf að endurnýja. Nánari upplýsingar veittar hjá Húsnæðisnefnd Kópavogs, Fannborg 4, eba í síma 554-5140 frá kl. 11 -12 alla virka daga. Húsnæðisnefnd Kópavogs. Greiöslumark í sauðfé óskast Upplýsingar í síma 468-1166 og 854-3531.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.