Tíminn - 11.05.1996, Blaðsíða 6
6
Laugardagur 11. maí 1996
Seölabankinn sér engin merki ofþenslu og endurskoöar veröbólguspá sína:
Verðbólga helmingi
minni en spáð var
Þorgerbur Ingólfsdóttir stjórnar söng framhaldsskólanemanna í Skálholts-
kirkju. Tímamyndir SB
Framhaldsskólanemar á Laugarvatni og í Skálholts-
kirkju:
Kórar hittast
Ver&bólga á fyrsta fjórðungi
ársins var langt undir því
sem spáð hafði verið, eða
2,1% í stað 4,4% sem Seðla-
bankinn hafði spáð og 5,3%
samkvæmt spá Gjaldeyris-
mála. f Hagtölum Seðla-
bankans segir að spá hans
hafi byggst á því aö verðlag
breyttist með hefðbundnum
hætti í framhaldi af rúmlega
3,5% hækkun launakostnaö-
ar í upphafi árs. Svo hafi
hins vegar ekki oröiö. „Með-
al skýringa, sem líklegar eru
á þessari þróun, má nefna að
fyrirtæki standa almennt vel
um þessar mundir og hafa
því veriö betur í stakk búin
til að taka á sig launahækk-
anir en oft áöur, framleiðni-
aukning gæti verið meiri en
talið var og bætt veröskyn
neytenda gerir það erfiðara
en áður að velta kostnaðar-
hækkunum út í verölagiö."
Hækkun verðlags reyndist
aðeins 0,51% á fyrsta ársfjórð-
ungi (sem samsvarar 2,1%
verðbólgu á ársgrundvelli).
Þetta er innan við helmingur
þeirrar 1,1% hækkunar sem
Seðlabankinn hafði spáð.
Ýmsir aðrir, sem reglulega spá
um verðbólgu, spáðu þó enn
meiri hækkun, t.d. var 1,31%
spá í ritinu Gjaldeyrismálum.
Seðlabankinn hefur nú gert
nýja verðbólguspá til loka
þessa árs. Þar er gert ráð fyrir
stöðugu gengi, 2% hækkun
innflutningsverðs í erlendri
mynt, 0,75% launaskriði og
2% aukinni framleiðni. A
grundvelli þessa er því spáð að
verðlag hækki um 2% yfir árið
og verði að jafnaði 2,1% hærra
í ár en 1995.
Hjá Seðlabanka telja menn
enn ekki sjást marktæk merki
um ofþenslu í eftirspurn, sem
ógnað gæti stöðugleika í verð-
lagsmálum. Þenslumerki sé
helst að sjá í auknum inn-
flutningi og þáttum sem mjög
séu háðir tekjusveiflum eins
og bílakaupum og utanlands-
ferðum.
Seðlabankinn viðurkennir
samt að erfitt sé að spá, og
einkanlega í framtíðina. Öfl-
ugri efnahagsstarfsemi á síðari
hluta ársins gæti stuðlað að
meiri verðbólgu en í áður-
nefndri spá. Á hinn bóginn sé
einnig hugsanlegt að þeir
þættir, sem haldið hafi aftur af
verölagshækkunum að und-
anförnu, séu enn vanmetnir,
þannig að verðbólgan verði í
raun minni, sérstaklega á
næstu mánuðum. ■
Frá Stefáni Bö&varssyni, fréttaritara Tím-
ans í uppsveitum Árnessýslu:
Fyrir skömmu héldu kórar úr
flestum framhaldsskólum kóra-
mót á Laugarvatni, en sungu
auk þess við sunnudagsmessu í
Skálholtskirkju. Gestgjafarnir,
kór Menntaskólans að Laugar-
vatni ásamt stjórnanda sínum,
Hilmari Erni Agnarssyni, höfðu
veg og vanda af skipulagningu
sönghelgarinnar, sem tókst hið
besta.
Listsýning í Washington vegna 10 ára afmcelis leiö-
togafundarins í Reykjavík:
Verk Sigrúnar Jóns-
dóttur vekja athygli
2. maí sl. var opnuð listsýning
í Washington DC til að minna
á 10 ára afmæli leiðtogafund-
arins í Reykjavík 1986, milli
Reagans og Gorbatsjovs. Yfir-
skrift sýningarinnar er „Brú-
arsmíð: Reykjavíkurfundur-
inn — tíu árum síðar". Leið-
togafundurinn var merkur
áfangi í samskiptum stórveld-
anna og markaði upphafið að
lokum kalda stríðsins. Einnig
átti hann stóran þátt í að
vekja athygli á íslandi og sér-
staklega Reykjavík.
Á sýningunni eru verk þriggja
listamanna: Sigrúnar Jónsdóttur
frá íslandi, Nancy Hamilton frá
Bandaríkjunum og Pjotr Shap-
iro frá Rússlandi. í frétt frá utan-
ríkisráðuneytinu segir að verk
Sigrúnar hafi vakið sérstaka at-
hygli, en hún sýnir vefnað, bat-
ík og steind glerverk, sem öll
bera með sér sterk einkenni ís-
lenskrar náttúru. Einnig eru
sýndar Ijósmyndir frá leiðtoga-
fundinum og tréútskurður eftir
Gunnar R. Gunnarsson. Verk
hans, Vinátta, sýnir á táknræn-
an hátt samband íslands og
Bandaríkjanna.
Sýnt er í Martin Luther King-
bókasafninu, sem er aðalbóka-
safn borgarinnar með fjölda
sýningarsala. Sýningin stendur
til 28. maí, en alls koma um
tvær milljónir gesta í safnið ár-
lega.
-BÞ
Söngur og fibluleikur framhaldsskólanemanna í Skálholtskirkju undir
stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur.
Hagkvæmni ræður hvort Umsýslu-
stofnun varnarmála verður flutt
Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra segir að liggja
þurfi fyrir hvort hagkvæmni
felist í því aö flytja Umsýslu-
Nefnd, sem skipuð var árið
1994 til að ganga frá nýrri
námskrá fyrir iönsveina til
meistaraprófs, hefur lokið
störfum og afhent ráðherra
tillögur sínar. Aðild að
nefndinni áttu Alþýðusam-
band íslands, Samtök iðnað-
arins, Samband iðnmennta-
skóla og menntamálaráðu-
neytið. Tillögur nefndarinn-
ar gera ráð fyrir að
meistaranámið skiptist í 3
meginsvið: almennt bók-
nám, nám í stjórnunar- og
rekstrargreinum og fagnám.
Almennt bóknám ásamt
stofnun vamarmála af
Grensásvegi í Reykjavík til
Suðumesja áður en ákvörö-
un um flutning verði tekin.
stjórnunar- og rekstrarnámi
skiptist í kjarna eða skyldunám
annars vegar og valnám hins
vegar. Nám í kjarna miðast við
sameiginlegar námsþarfir allra
meistaranema. Nefndin telur
að allir þurfi að tileinka sér
grundvallarþekkingu og hæfni,
er tengist stjórnun og rekstri
lítilla og meðalstórra fyrirtækja
ásamt handleiðslu iðnnema og
starfsmanna. Þá þurfi nemar að
hafa sæmilega gott vald á móð-
urmálinu í ræðu og riti, svo og
þeirri stærðfræði sem einkum
tengist viðskiptum og atvinnu-
rekstri, auk lágmarksþekkingar
Hann sagði að áformað væri
að láta fara fram könnun á
hvort flutningur hennar geti
leitt slíka hagkvæmni af sér.
og færni í tölvunotkun.
Drög að heildarnámskrá
meistaranáms skiptist í 8 hluta.
Annars vegar aðalnámskrá og
hins vegar skrá fyrir sérgreinar
7 iðngreinaflokka. Þeir eru
bókiðngreinar; bygginga- og
tréiðngreinar; fata-, skinna- og
leðuriðngreinar; matvælaiðn-
greinar; málmiðnaðargreinar;
rafiðnaðargreinar og snyrti-
greinar.
Áformað er að staðfesta nýja
námskrá meistaranáms fyrir
lok þessa mánaðar og hefja
kennslu samkvæmt henni á
næsta skólaári. -BÞ
Tilefni ummæla utanríkis-
ráðherra var fyrirspurn frá
Rannveigu Guðmundsdóttur
um hvað liði flutningi Um-
sýslustofnunar til Suðurnesja.
Umsýslustofnun er í raun Sala
varnarliðseigna, en verksviði
hennar og heiti hefur nú verið
breytt.
Halldór Ásgrímsson sagði að
stofnunin hafi nú þegar tekið
við hinu breytta hlutverki,
sem feli í sér aö annast frum-
vinnu vegna útboða fram-
kvæmda á vegum varnarliðs-
ins og Mannvirkjasjóðs Atl-
antshafsbandalagsins, auk
sölu á ýmsum tækjum og bún-
aöi fyrir varnarliðið. Nýtt nafn
stofnunarinnar verði tekið
upp innan tíðar, sem verði
Umsýslustofnun varnarmála.
Hvort stofnunin verði flutt til
Suðurnesja sé háð niðurstöð-
um þeirra athugana um hag-
kvæmni þess sem nú standi
fyrir dyrum.
Varasamt sé aö vænta þess
að flutningur þessarar stofn-
unar muni skapa mörg at-
vinnutækifæri á Suðurnesjum,
þar sem hún byggist á störfum
fárra manna.
-ÞI
Breytingar fyrirhugaöar á námskrá fyrir iönsveina til meistaraprófs:
Þekkingar krafist á stjórn-
un og rekstri fyrirtækja
Áfengisveitingar
Sjálfstoeöisflokks á
ísafiröi:
Opinbert
leyndarmál
í yfirlýsingu, sem Funk-
listinn á ísafiröi hefur sent
frá sér, segir að Funklist-
inn hafi ekki dregið til
baka orð sín um áfengis-
veitingar Sjálfstæðis-
flokksins til ungs fólks á
ísafirði og staðið verði við
það. Erinfremur hafi fram-
kvæmdastjóri Funklistans
ekki beðist afsökunar á
orðum sínum varðandi
nærveru sýslumanns við
meintar áfengisveitingar
Sjálfstæðisflokks.
Haft var eftir sýslumanni
í Tímanum sl. laugardag að
framkvæmdastjóri Funklist-
ans, Smári Karlsson, hefði
beðist afsökunar á orðum
sínum og tekið þau til baka.
í yfirlýsingu Funklistans
segir einnig: „Títtnefndar
áfengisveitingar Sjálfstæðis-
flokksins hafa lengi verið
opinbert leyndarmál hér í
bæ, en okkur fannst rétt að
allir vissu um þessar starfs-
aðferðir flokksins vegna
þess hve ógeðfelldar þær
væru. Sjálfstæðismenn ættu
því ekki að móðgast, þeir
ættu að skammast sín." -BÞ