Tíminn - 11.05.1996, Blaðsíða 24

Tíminn - 11.05.1996, Blaðsíða 24
Veöriö í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær) • Suburland: Hæg breytileg átt og bjart ve&ur víbast hvar en sums sta&ar þokuloftvib ströndina. Hiti 8 til 15 stig. • Faxaflói tll Nor&urlands vestra: Hæg breytileg átt eba hafgola. Lengst af léttskýjab. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast íinnsveitum. • Norburland eystra og Austurland ab Clettlngl: Hæg breytileg átt eba hafgola og bjartvi&ri. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast inn til landsins. • Austflrbir: Hæg breytileg átt og ví&a bjartvi&ri en sums sta&ar þokuloft. Hiti 7 til 15 stig. • Subausturland: Austan gola og bjartvi&ri vi&a en áfram þokusælt vi& ströndina. Hiti 7 til 15 stig. Um 1.500 fleiri á atvinnuieysisskrám heldur en Hagstofan fann án vinnu í vinnumarkabskönnun: Um 300 manns í fullu starfi og líka á atvinnuleysisskrá í nýrri vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar mældist atvinnu- leysi a&eins 3,8%, sem er minna en nokkru sinni áöur sí&an vor- iö 1992 og sömulei&is miklu minna heldur en skráö at- vinnuleysi samkvæmt skrám Félagsmálaráöuneytis, gagn- stætt venju. Samkvæmt könn- uninni voru einungis 5.500 manns án vinnu um miöjan apríl, en rúmlega 7.000 voru á atvinnuleysisskrám (4,8%) í marslok. Þessi munur er fyrst og fremst meöal kvennanna. Hagstofan fann aðeins 2.500 konur án vinnu um miðjan apríl, en rúmlega 3.800 voru hins veg- ar á atvinnuleysisskrám í mars- lok, eða meira en 50% fleiri. Hag- stofan spurði þátttakendur í könnuninni m.a. að því hvort þeir væru skráðir atvinnulausir hjá vinnumiðlun. Þegar svörin voru borin saman við stöðu á vinnumarkaði kom í ljós að af 6.500 manns á atvinnuleysisskrá voru 3.700 (eða 57%) án vinnu og tilbúnir að taka vinnu strax. Um 2.000 manns (31%) voru hins vegar í starfi, þar af 300 í fullu starfi en 1.700 í hlutastarfi eða íhlaupavinnu. Þess má geta að á atvinnuleysisskrám félags- málaráðuneytisins finnast ein- ungis rúmlega 1.000 manns sem eru í hlutastarfi. Til viðbótar virðast svo um 800 manns á at- vinnuleysisskrá sem í rauninni standa utan vinnumarkaðarins að mati Hagstofunnar. Atvinnuþátttaka mælist nú minni heldur en í apríl í fyrra, sem skýrist fyrst og fremst af færri námsmönnum á vinnu- markaði. Aðeins 43% þeirra voru nú í vinnu í stað 52% í apríl í fyrra. Starfandi fólk var nú jafn margt og í apríl í fyrra, um 140.700 manns, en um 3.500 fleira en í apríl 1994. Hlutfall vinnandi fólks sem er í fullu starfi hefur hækkað kring- um 3% síðan í fyrravor og fólki í hlutastafi/íhlaupavinnu fækkað samsvarandi. Vinnuvikan hefur sömuleiðis lengst, bæði hjá körl- um og konum, í kringum klukkustund að meðaltali. ■ Yfirkjörstjórnin vill meö- mœlendalista snemma: Óþjált og þungt „Við erum að beina tilmælum til væntanlegra frambjó&enda að þeir komi inn meömælendalist- um áður en framboðsfrestur er útrunninn, en þetta þýðir auðvit- að ekki að menn geti ekki skilað síðar. Þetta er óþjált verkefni og þungt í vöfum og vib reynum að vinna okkur í haginn," sagði Jón Steinar Gunnlaugsson hæstarétt- arlögmaður og formaður yfirkjör- stjórnar í Reykjavík í samtali við Tímann í gær. Yfirkjörstjórn auglýsir í blaðinu í dag og bendir væntanlegum fram- bjóðendum til forsetakjörs á að kjörstjórnin kemur saman til fund- ar þriðjudaginn 21. maí í Ráðhúsi Reykjavíkur. Em menn hvattir til að senda lista með meðmælendum 17. maí eða 20. maí til formanns- ins. -JBP Formaöur stjórnar Heilsuverndarstöövarinn- ar segir ekki lagt til aö Lungna- og berkla- varnadeild stöövarinnar veröi lögö niöur: Sameinuð lungna- deild verði á á Vífilsstöðum Eva Dögg Benediktsdóttir, nemandi í Austurbæjarskóla, segir frá reynslu sinni úr verkmenntabúbunum vib form- leg slit þeirra í Rábhúsinu ígær. Crunnskólanemar í tveimur skólum Reykjavíkur hafa kynnst sex iön- greinum sl. þrjú ár: Iðngreinar veröi með í náms- og starfsvali Starfsemi Lungna- og berkla- varnadeild Heilsuvemdar- stöövar Reykjavíkur veröur breytt og að hluta sameinuð sambærilegri deild á Vífilstöð- um, nái hugmyndir stjórnar Heilsuverndarstöövarinnar fram að ganga. Með því að leggja til að mæðravernd og ungbarnaeftirlit yrði samein- að svipaðri starfsemi innan sjúkrahúsanna er stjórnin að taka undir sjónarmið fag- stjórnenda þessara deilda. í Tímanum í gær lýsir Helgi Guðbergsson, formaður Lækna- ráðs Heilsuverndarstöðvarinnar, áhyggjum sínum af því hvernig berklavörnum yrði háttað, verði Heilsuverndarstöðin lögð niður í núverandi mynd. Helgi telur ekki nægjanlegt að berklavarnir fari fram á heilsugæslustöðvum. Ragnheiður Haraldsdóttir, for- maður stjórnar Heilsuverndar- stöövar Reykjavíkur, segir gagn- rýni Helga byggja á misskiln- Forstjóri Eim- skips fær Dannebrogsorðu Margrét Þórhildur Danadrottn- ing hefur sæmt Hörð Sigurgests- son, forstjóra Eimskips, Riddara- krossi af 1. gráðu Dannebrogs- orðunnar vegna starfa hans við að efla og halda uppi góðir sam- vinnu við dönsk flutningafyrir- tæki og stuðning hans við kynn- ingu á dönskum menningarvið- burðum á íslandi. Klaus Otto Kappel sendiherra afhenti Herði Riddarakrossinn við móttöku í danska sendiráðinu, segir í til- kynningu frá sendiráðinu. ■ ingi. Tillaga stjórnarinnar gangi út á að sameina Lungna- og berklavarnadeild Heilsuverndar- stöðvarinnar Lungnadeild á Víf- ilsstöðum. „Við teljum mikla hag- kvæmni fólgna í því að sameina þessar tvær einingar enda eru það sömu læknarnir sem vinnur á þessum tveimur stöðum. Við gerum jafnframt ráð fyrir að berklavarnir fari fram á heilsu- gæslustöðvum en skipulag þeirra verði á höndum nýráðins smitsjúkdómalæknis hjá Land- læknisembættinu. Það er engin ástæða til að einn smitsjúkdóm- ur sé tekinn út úr starfi þessa læknis og komið fyrir einhvers staðar annars staðar." Helgi gagnrýndi einnig hug- myndir um að sameina mæðra- deild og ungbarnaeftirlit Heilsu- verndarstöðvarinnar svipaöri starfsemi innan sjúkrahúsanna og sagðist óttast að heilsuvernd- in yrði undir í slíku samfélagi. Ragnheiður bendir á í þessu samhengi að viðræður hafi þeg- ar átt sér stað um nokkurt skeið á milli fagstjórnenda t.d. mæðraeftirlits Heilsuverndar- stöðvarinnar og stjórnenda á göngudeild kvennadeildar Landspítalans um mjög mikla samvinnu og jafnvel samein- ingu. „Þannig að hugmyndin er ekki komin frá stjórninni og undirbúningsvinnan ekki held- ur. Við tökum undir þessi sjón- armið starfsfólks. Fyrst það lítur ekki á slíka samvinnu sem hættulega þróun geri ég það ekki heldur," segir Ragnheiður. Hún bætir því við að ákveði ráðherra að nýta tillögurnar verði þeim hrint í framkvæmd samhliða uppbyggingu heilsu- gæslustöðva í Reykjavík. -GBK Verkmenntabúðum sem starf- ræktar hafa verið í tveimur grunnskólum Reykjavíkur síð- astliðin þrjú ár var formlega slitið í gær. Verkmenntabúð- imar em fyrsti vísir að mark- vissri fræðslu um iðnaö innan gmnnskólanna. Verkmenntabúðirnar hófust formlega haustið 1993 og þá þegar var ákveðið að þær yrðu þriggja ára verkefni. í verkefn- inu tóku þátt 13, 14 og 15 ára nemendur í Austurbæjar- og Hólabrekkuskóla sem sóttu á tímabilinu verkleg námskeið sex fræðslumiðstöðva í iðnaði. Síöasta árið fengu nemendur að velja hvort þær vildu fræðast meira um iðngrein að eigin vali og kusu 80% þeirra að gera það. Guðrún Þórsdóttir hjá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur segir að aðalsmerki verk- menntabúöanna hafi verið að krakkarnir fengu að vinna svo til allan tímann og kynnast þannig iðngreinunum beint, ýmist í skólum eða á verkstæð- um. Markmið verkmenntabúð- anna var að reyna að finna leið- ir til að nemendur geri ráð fyrir iðnaði í sínu náms- og starfsvali. Guðrún telur að vel hafi tekist til með verkmenntabúðirnar en hvort framhald verður á þeim er undir skólayfirvöldum á hverj- um stað komið. Verkmenntabúðirnar voru undanfari INN-verkefnisins (Iönaður, Nemendur, Nýsköp- un) sem nú er hafið. Gefnir hafa verið út bæklingar um 13 iðn- greinar og í haust koma út 24 til viðbótar. Þar með verða til í að- gengilegu formi upplýsingar um allar helstu löggildar iöngreinar í landinu. INN-verkefnið er landsverkefni og verður útgáfu bæklinganna fylgt eftir í skólum landsins. Fyrir hönd iðngreinanna tóku þátt í verkmenntabúðunum: Fræðslumiðstöð byggingariðn- aðarins, Fræðslumiðstöð málm- iðnaðarins, Prenttæknistofnun, Rafiðnaðarskólinn, Fræðslumið- stöð hótel- og veitingagreina og Endurmenntun bílgreina. -GBK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.