Tíminn - 11.05.1996, Page 9

Tíminn - 11.05.1996, Page 9
Laugardagur 11. maí 1996 9 Cuörún sagbist hafa rumpab prófinu af á hálftíma en þarna hefbu þó verib hugtök sem hana rak ekki minni til ab hefbu veríb ífrœbunum í sínum ungdómi. Páll Óskar sinnti kalli blabamanns innan tíu mínútna og kom hlaupandi upp á ritstjórn meb fjólubláan lobjakkann sinn flaksandi. „Ég skal fúslega viburkenna þab ab ég er búinn ab af- baka þetta tungumál út og subur og ég hef bara gott afþvíab fara í málfræbipróf." Þegar hann kom sveittur út úr prófinu játabi hann: „Ég skil þab vel ab krakkar vilji frekar sitja og hlusta á Prodigy og vinna sér fyrir sínum peningum heldur en standa íþessu." áta Ijós sitt skína og taka hluta samrœmda prófsins í íslensku í vikunni. Enginn féll: rúllaði upp keppinautunum lega séríslenskt að svona útbreitt tungutak sé almennt aðhlátursefni. í staðinn fyrir að vera mállýska eins og það er víðast hvar." -Finnst þér þá rangt að halda krökk- um vib eina opinbera og viðurkennda reglumálfræði og banna þeim að sýkj- ast af þágufalli? „Ég get alveg sagt fyrir sjálfan mig að þegar ég var að alast upp þá held ég að ég hafi aldrei heyrt nokkurn mann taka öðruvísi til orba en svo að hann segði „Mig hlakkar til". Svoleiðis talaði fólk en svo lærir maöur seinna í skólum að það er vit- laust. Maður hlýtur þá ab spyrja sig hvort það sé ekki hæpið að kveða upp úr með að málhefð sem hefur verið út- breidd hjá stórum hluta þjóðarinnar áratugum saman sé vitlaus. Það er ekki eins og við séum að glutra meb því endanlega niður okkar góða tungu- máli. Ég held að þetta geti gengið út í öfgar." -Heldurðu að þetta geti orðið til þess að hér verði einhver málfarslegur stéttamunur? „Mér virðist nú frekar að tungumál hér sé að verða staðlaöra. Menn eru farnir að tala dálítið mikið eins og fréttamenn. Ég bjó í Danmörku í nokkur ár og þar heyrði ég aldrei neitt nema íslenskt talmál. Svo kem ég heim og fannst þá stórundarlegt að hlusta á fréttirnar því þær voru á allt öbru tungumáli en fólk talaði saman á. Svo var ég að ráfa um Elliðaárdalinn ekki löngu seinna. Þar var fullur karl, búinn að vera þar í 10 ár og sagði mér að hann hefði flotið út úr lögreglunni, sem mér fannst nú ágætlega að orði komist. Ég pumpaði hann um ein- hverjar sögur úr lögreglunni og hann fór ab segja mér hvab það hefði verið mikil lífsreynsla að skera menn niður sem voru búnir að hengja sig o.s.frv. Ég spurbi hvort menn hefðu veriö mikið í því að hengja sig. Þá sagði hann: „Já, það var mun meira en hinn almenni borgari gerir sér grein fyrir." Einar hristi hausinn og sagði sér þá hafa orðið hugsað til tungutaks frétta- manna. „Hins er það miklu meira en skóla- kerfib sem ýtir undir þetta. Það er voðalega hörð innstilling hjá fólki ab þab sé fáránlegt að tala vitlaust. Það er t.d. einn pottþéttur brandari sem get- ur gengið endalaust og heilu gaman- þáttasyrpurnar hafa snúist um og þab er að láta menn klæmast á tungumál- inu. Eins og Bibba á Brávallagötunni, hún gekk árum saman bara á því að tala vitlaust, og ekkert heyrði fólk fyndnara. Af því ab hún er nú búin að gera svo mikið af þessu þá finnst manni þetta dálítið billegt trix. Ég sá t.d. leiksýningu sem ég hafði verið með í að skrifa (Nanna systir á Akureyri) og leikararnir höfðu bætt inn í orðatiltæki sem var vitlaust farið með. Ég hugsaöi með mér að nú sæti maður undir því ab vera kominn í svona brandara en það var alveg dynj- andi hlátur um allan sal og ég held að þetta hafi þótt þab alsniðugasta." Málfarslega íhaldssöm „Mér fannst þetta nú ekki þungt," sagði Guðrún Helgadóttir en bað þó blaðamann um að sleppa þessari setn- ingu ef prófib reyndist allt vitlaust hjá henni. Gubrún sagðist ekki geta dregið þá ályktun af þessu prófi að verið væri að leggja rangar áherslur í íslenskunámi en taldi jafnvel að sum atriði mættu vel vera þyngri og talaði þá sérstaklega um þann lið þar sem færa átti mál til betri vegar. En þess má geta að Gub- rún var raunar sú eina sem fékk fullt hús stiga fyrir þann lið. Aðspurð hvort rétt væri að gera einni málvenju hærra undir höfði heldur en annarri, t.d. með því að gefa rangt fyrir að segja „mig hlakkar - mér langar", sagðist Gubrún nógu íhaldssöm „til að halda þessu eins og maður lærði þetta. Mér finnst ósköp ljótt að sjá skrifað henni langar." -Heldurðu að það sé of mikil áhersla lögð á að krakkar leggi á minnið mál- fræðihugtök sem glatast væntanlega síðar? „Ég held að þetta sé lærdómur sem kemur sér vel við nám í erlendum málum. Þetta er undirstaða sem víst eykur skilning á málinu. Við skulum ekki gera lítið úr málfræðinni." -Finnst þér talmál barna og unglinga almennt hafa breyst frá þínu ung- dæmi? „Mér finnst það óskaplega misjafnt. Sem betur fer finnast börn sem tala mjög gott og fallegt mál. Hins vegar heyrir maður nú orðið í börnum sem eru bara hreint ekki talandi. Ég held að þab sé nú eitthvað samhengi á milli þess hve börnum hefur verið leyft að hanga mikið yfir sjónvarpi og málfars þeirra. En svo rekur maður sig aftur á móti á undarlega hluti eins og að 7 ára gömul börn eru allt að því viðræðuhæf á enskri tungu. Nú skal ég ekki hafa á móti því en ég er hrædd um að það bitni oft á íslenskunni." -Ég hef stundum rekist á unglinga sem tala í eins konar stikkorðastíl, kannast þú við þetta? „Já, þau koma bara ekki frá sér heil- legri setningu. Ég held einmitt ab það sé nauösynlegt að börnin kunni eitt- hvað smávegis í setningafræði svo hægt sé að tala við þau um þab ab orba hugsun sína í heilu lagi þannig að hún skiljist. Maður tekur sérstak- lega eftir þessu með unglinga, þab er alveg óskaplegt ab heyra í þessu fólki." -Ætti þá kannski að taka talmál beinlínis inn í námsefni grunnskóla? „Jafnvel. Ég hef undanfarið verið að lesa fyrir börn í skólum bæjarins og hef gert það að venju að brýna fyrir krökkunum að ef þau vilji einhvern tímann skrifa eitthvað, fyrir skólann eða sjálf sig, að venja sig á ab hugsa vel hvað þau ætla segja og hvernig áð- ur en þau fara að skrifa þannig að þau geti reynt að móta heillega hugsun. Maður verbur auðvitað var við þetta hjá jafnvel fullorðnu fólki að það ræð- ur ekki við ab halda geranda setningar út á enda. Það er kominn annar ger- andi seinna í setningunni." -Getur þá ekki einmitt verið ab mál- fræðistagliö sé of fjarlægt veruleikan- um í huga barna að þau tengi ekki á milli málfræðinnar og talmáls? „Ég er nú kannski svolítil forrétt- indakona í þessum efnum því ís- lenskukennari minn í gagnfræðaskóla var dr. Bjarni Aðalbjarnarson. Hann var mjög strangur á setningafræði, kenndi okkur þetta þannig að við get- um ekki gleymt því. Ég held að ég per- sónulega búi að því í ræbu og riti. Eg finn einhverjar bjöllur hringja þegar ég er að missa tökin á setningu. Ég er því ekki viss um að þetta sé alveg ab- skilið. Hitt kann vel að vera að það þurfi að venja íslenska skólakrakka við að tala og tjá sig, þeim er það greini- lega ekki mjög aubvelt." -Hvað finnst þér um þá þróun hve fjölmiðlamálið og stofnanamálið er farið að hafa mikil áhrif á talmál fólks? „Það er alveg skelfilegt. Það er eins og hver éti eftir öðrum ambögurnar. Það virbist vera einhver plagsiður að opinberar skýrslur séu á tungumáli sem hreint og beint er óskiljanlegt venjulegu fólki. Þar vil ég nú nefna eina stofnun, sem ég vil ekkert lasta ab öðru leyti, og það eru skattayfir- völd. Það er ósjaldan að fólk hefur komib örvæntingarfullt til okkar þing- manna ogþna og spurt: Hvað stendur í þessu bréfi? Og það hefur vafist fyrir læröustu þingmönnum að brjótast í gegnum það. Svona á ekki að eiga sér stað. Það er hægt að segja alla hluti á nokkurn veginn skýrri íslensku." Framsóknar- framburbur „Mér virðist þetta stofnanamál eins og smitsjúkdómur. Það er t.d. eitt fyr- irbæri sem hefur kvalið mig meira en allt annað, lengst af á þingi, og það er sá siður sem hefur rutt sér æ meira til rúms í ræðum í þinginu að menn eru hættir ab leggja áherslu á fyrsta at- kvæði orðs. Þetta er eins og faraldur á þinginu. Allt í einu var ég ekki lengur í Alþýðubandalaginu heldur Alþýðu- bandalaginu, með áherslu á „ba". Það var einn þingmaður sem hafði þennan framburð, Ólafur Jóhannesson, og þetta var bara hans sérkenni. En ég veit að hann ætlaðist aldrei til ab allur þingheimur færi að taka þetta upp eft- ir honum. Ég kallaði þetta framsókn- arframburðinn. Lengi var þetta bara sérkenni þingsins en svei mér ef ég er ekki farin heyra þetta annars staðar." Með því var Guðrún kvödd og henni hleypt aftur út í garbinn sinn þar sem hún hafði verið að gróður- setja þegar blabamann bar að garði. -LÓA

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.