Tíminn - 28.06.1996, Blaðsíða 8

Tíminn - 28.06.1996, Blaðsíða 8
Uttekt breska bílatímaritsins Autocar: Meðalstórir fjölskyldubílar ab leysa eöalvagninn af hólmi Honda Civic, Peugeot 306 og Renault Megane ná allir fimm stjörnum á einhverju sviöi í nýrri einkunnagjöf breska bílatímaritsins Autoc- ar. Honda Civic 1.51 hlýtur fimm stjörnur fyrir spar- neytni, Peugeot 306 1.6 XR fyrir hversu vel hann lætur aö allri stjórn og Renault Megane 1.6 RT fyrir þægindi og gott pláss. Tekið skal fram aö þessi ein- kunnagjöf fór fram á grundvelli þess búnaðar sem gerður er fyr- ir breskan markað og getur ver- iö um einhver frávik að ræða frá þeim búnaði sem sömu bílar eru afgreiddir með hér á landi. Honda Civic hefur nú komið fram með kraftmeiri vél en er í þeim bíl sem reyndur var í þess- ari prófun, en í framleiðslu þessa bíls hefur náðst ótrúlega góður árangur á sviði eldsneyt- issparnaðar. Vauxhall Astra 1.61 Sport er sambærilegur bíll þeim sem fluttur er hingað til lands undir heitinu Opel Astra, en sá bíll er framleiddur í Þýskalandi en Vauxhallinn er hins vegar breska útgáfan. Á næsta ári er væntanlegur nýr bíll af þessari gerð á markað og skýrist slæleg stjörnugjöf nokkuð af því þar sem ýmsar endurbætur eru væntanlegar. Af þessari prófun sést að meðalstórir og minni fjölskyldubílar sækja verulega á stóra og stæðilega eðalvagna hvað tæknibúnað og önnur þægindi varðar. su ma rti I boö fallegustu bílarnir nú meö meiri búnaöi Honda Civic 5 dyra 90 hestöfl traustur fjölskyldubíll 1.384.000.- staögreitt á götuna innifaliö umfram staðalbúnað - álfelgur - vindskeiö - þjófavörn - samlitir stuöarar Honda Civic 3ja dyra 90 hestöfl glæsilegur sportbíll 1.399.000.- staflgreitt á götuna innifalið umfram staöalbúnað - álfelgur - þjófavörn - geislaspilari - 1 50 w hátalarar Honda Accord 1.8i 115 hestöfl uppfyllir kröfur vandlátra 1.749.000.- staflgreitt á götuna innifalið umfram staðalbúnað - álfelgur - vindskeið - þjófavörn Umboðsaöilar Honda á Akureyri: Höldur hf., Tryggvabraut 12, S: 461 3000 á Egilsstöðum: Bila- og Búvélasalan ehf., Miðási 19, S: 471 2011 í Keflavík: Bílasalur Suöurnesja., Grófinni 8, S: 421 1200 VATNAGARÐAR24 S: 568 9900 Peugot 306 Nissan Almera Til skamms tíma hefur mátt merkja verulegan mun á eðal- vögnum og venjulegum fjöl- skyldubílum, bæði hvað varðar stærð og aukabúnað. Á undan- förnum árum hefur þessi mun- ur tekið umtalsverðum breyt- ingum og stóru bílarnir eru ekki lengur það stöðutákn sem þeir voru. Þeir sem áður sóttust hvað harðast eftir stórum bíl- um hafa nú í auknum mæli beint áhuga sínum að meðal- stórum og jafnvel litlum bílum. Samfara þessari þróun hafa ver- ið gerðar meiri kröfur til smærri bíla og er nú svo komið að þeir eru eins vel og jafnvel betur út- búnir en stóru bílarnir voru. Þetta kemur glöggt fram í þess- ari könnun Autocar á sjö með- alstórum bílum sem við fjöllum hér lauslega um. Þessir bílar eru farartæki nútíma fólks en að allri gerð og búnaði fylla þeir flokk eðalvagna. Tegundirnar í þessum flokki eru fleiri en hér koma fram en hvergi er sam- keppni bílaframleiðenda harð- ari en á þessum vettvangi. Tækni við hönnun bíla verður sífellt fullkomnari og ævi nýrra gerða styttist að sama skapi. Þetta flýtir endurbótum og sí- fellt koma fram nýjar gerðir bíla sem búnar eru fullkomnari búnaði en hinar eldri. Bílafram- leiðendur hafa einnig lagt metnað í að ná fram sparnaöi í notkun eldsneytis án þess að það komi niður á vinnslu eða annarri aksturshæfni. Árangur á þessu sviði eykur möguleika meðalstórra og minni bíla til þess að uppfylla þær hugmynd- ir og kröfur sem vandlátir bif- reiðaeigendur gera og auðvelda þeim að finna sig með eðal- vanga í höndum þótt stærð og ýmislegt ytra skraut hafi orðið að víkja fyrir nýjum innri eigin- leikum og bættum búnaði. Ford Escort 1.6LX í umsögnum tímaritsins Autocar kemur fram aö Ford Escort 1.6LX er söluhæsti bíll- inn í Bretlandi um þessar mundir. Fyrir fimm árum þegar Ak.IL-gerð þessa bíls kom á markaöinn hafi þessi staða hans vart verið verðskulduð þar sem um misheppnaðan bíl var að ræða. En nú hefur orðið breyting á og er svo komið að þessi staða virðist hæfa og segja má að Ford Escort sé núna mest endurbætti bíllinn. Escortinn var grófur, hávær og ekki nægi- lega aölaöandi en nú hefur tek- ist að eyða þessum göllum þannig að hann hefur færri galla en flestir sambærilegra bíla. Bíllinn er, að sögn sérfræð- inga Autocar, með frábæra fjöðrun og glæsilegt farþega- rými. Vegna þessara eiginleika eru kostir bílsins betur sýnilegir og bíllinn er talin einn besti fjölskyldubíllinn í þessum stærðarflokki. Gallar Escortsins eru fyrst og fremst þeir að Ze- tek-vélin, sem knýr hann áfram, er aðeins miðlungstæki og gírunin er of há. Vegna þess er hröðun hans lítil og þetta hefur einnig neikvæð áhrif á eldsneytiseyðslu vegna þess að kraftlítil vél kallar á meiri notk- un lággíra en eðlilegt verður að teljast.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.