Tíminn - 28.06.1996, Blaðsíða 13

Tíminn - 28.06.1996, Blaðsíða 13
Föstudagur 28. júní 1996 13 Öll breyting til bóta segir sölustjóri Ingvars Helgasonar: Neyslustýringin fáránleg „Öll breyting er til bóta en þab heföi átt aö stíga skrefiö til fulls og hafa þetta bara einn flokk. Þaö er fáránlegt aö ríkiö skuli vera meö svona neyslu- stýringu. En þetta kemur kannski," sagöi Þorleifur Þor- kelsson sölustjóri hjá Ingvari Helgasyni í samtali viö Tím- ann. Hann sagði breytinguna ekki síst til góða vegna öryggissjónar- miöa: „Sala í bílum með stærri vélum eykst og bíll með stærri vél er öruggari en bíll með lítilli vél." Auk þess sagði hann þetta koma sér vel fyrir fjölskyldufólk. Ef fjölskyldufólk þyrfti að kaupa sér stóran bíl, sex manna bíl, þá væru það yfirleitt jeppar og þeir væru yfirleitt með stórum vélum og mikið skattlagðir. „Þetta er til hagsbóta fyrir það fólk." Þorleifur sagði að Terrano II, sjö manna bíll, væri væntanlegur með nýju útliti og öflugri dísel- vél. Tollabreytingin lækkaði hann í verði um 11%, í 2.460.000 krónur úr 2.780.000. „í júlí fáum við nýja Primeru. Hún kemur með breyttri og end- urbættri fjöðrun, rúmbetri. Sætin eru betri með nýrri bólstrun og bíllinn er með nýju mælaborði." Þorleifur sagði að lækkunin væri engin á minni bílunum, eins og t.d. Nissan Micra sem mættu vera lægri í verði þar sem mismunurinn á verðinu upp í næstu stærð fyrir ofan væri í rauninni of lítill. „En Microinn er alveg úrvalsbíll og stendur al- veg undir því verði sem hann er á. Viö erum búnir með '96 ár- gerðina, til þess að gera, og bíð- um eftir '97 árgerðinni sem kem- ur núna í júlí." -TÞ Chrysler fjölnotabíll lœkkar í veröi: Tollabreytingin veldur „Þessi tollabreyting kemur sér mjög vel fyrir okkur í Chrysl- ernum," segir Eirikur Óli Áma- son sölustjóri Jöfurs. Hann seg- ist vera búinn að berjast við í rúm tvö ár að útvega fjöl- skyldubílinn, Chrysler Voya- ger, undir þremur milljónum svo eitthvaö af fjölskyldufólki hafi efni á bílnum. „Loksins tókst núna aö ná honum niöur í 2,9 milljónir. Svo kom þessi tollabreyting í ofaná- lag. Nú er hann kominn niður í 2,520 milljónir. Þetta er alveg frábært að geta loksins boöið fjölskyldum rúmgóðan bíl. Auð- vitað er tvær og hálf miljón hell- ings peningur en það er hálfri milljón ódýrara en þrjár," segir Eirkur. Hann segir þetta langmest selda fjölnotabílinn í heiminum. „Hann hefur komið rosalega vel út þessi bíll. Þessir fjölnotabílar eru alls staðar að aukast í heim- inum og eru að koma í staðinn fyrir station-bílana." -TÞ Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs FLOKKUR INNLAU SNARTÍ MABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1977-2.fl. 10.09.96 - 10.09.97 kr. 1.206.648,60 1978-2.fi. 10.09.96 - 10.09.97 kr. 770.845,70 1979-2.fl. 15.09.96- 15.09.97 kr. 502.528,10 INNLAUSNARVERÐ*) FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL Á KR. 10.000,00 1985-1.fl.A 10.07.96 - 10.01.97 kr. 75.512,10 1985-1.fl.B 10.07.96 - 10.01.97 kr. 34.682,00** 1986-1.fi.A 3 ár 10.07.96 - 10.01.97 kr. 52.049,50 1986-1.fl.A 4 ár 10.07.96 kr. 60.242,00 1986-1.fl.A 6 ár 10.07.96 kr. 63.221,50 1986-1.fl.B 10.07.96- 10.01.97 kr. 25.579,20** 1986-2.fl.A 4 ár 01.07.96-01.01.97 kr. 49.152,00 1986-2.fl.A 6 ár 01.07.96 kr. 51.486,50 1987-1.fl.A 2 ár 10.07.96- 10.01.97 kr. 40.551,60 1987-1.fl.A 4 ár 10.07.96 - 10.01.97 kr. 40.551,60 *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. **) Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 28. júní 1996 SEÐLABANKIÍSLANDS STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUHÍ A METSÖLUJEPPANUMz iVITARA 3d. JLX - nú aðeins 1.E75.000,- hr. 5d. JLX - nú aðeins 1.940.000,- hr. 5d. I/B - nú aðeins S.390.000,- hr. HELSTI STAÐALBÚNAÐUR SUZUKIVITARA: Drifbúnaður: Hátt og lágt drif, framdrifslokur. Oryggi: Öryggisloftpúðar fyrir ökumann og framsætisfarþega • Styrktarbitar í hurðum • Barnalæsingar • Stillanleg aðalljós úr ökumannssæti. Þægindi: Vökvastýri • Samlæsingar á hurðum • Rafstýrðir útispeglar • Upphituð framsæti • Bensínlúga opnanleg úr ökumannssæti • Þrívirk inniljós og kortaljós Tvískipt fellanlegt aftursætisbak • Útvarp með segulbandi. Styrkur: Vitara er með sterkbyggða sjálfstæða grind, sem auk gormafjöðrunar á öllum hjólum gerir auðvelt að hækka bílinn upp. SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00. Afl og öryggi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.