Tíminn - 06.07.1996, Blaðsíða 6
6
Laugardagur 6. júlí 1996
Hrossakjötsframleiöendum fjölgaöi um 30% í kaupstöbum, en fœkkaöi í sveitum
milli 1993 og 1994:
Sjötti hver framleiðandi
hrossakjöts er borgarbúi
Um 270 hrossakjötsframleiö-
endur voru búsettir í Reykja-
vík áriö 1994 og samtals
rúmlega 320 á höfuöborgar-
svæöinu öllu, eöa 17% allra
hrossakjötsframleiöenda í
landinu á því ári. Af alls nær
1.960 framleiöendum
hrossakjöts voru þá nær 440
búsettir í kaupstööum, eöa
rúmlega 22% allra framleiö-
enda í landinu. Þessum
framleiöendum haföi þá
fjölgaö um 30% frá árinu áö-
ur, á sama tíma og hrossa-
kjötsframleiöendum í sýsl-
um landsins fór fækkandi.
Ljóst má vera að töluverður
hluti 1.520 hrossakjötsfram-
leiðenda í sýslum landsins á
árinu 1994 hafi verið þéttbýl-
isbúar, þ.e. frá minni þéttbýl-
isstöðum. Haldi sama þróun
áfram, verður kannski ekki
langt í það að meirihluti
hrossakjötsframleiðenda verði
ekki lengur bændur, heldur
borgar- og bæjarbúar.
Alls voru framleidd nær
1.060 tonn af hrossa- og
trippakjöti árið 1994 og hefur
það magn fremur lítið breyst
undanfarin ár. Fyrir þetta kjöt,
auk húðanna af sláturhrossun-
um, fengust um 350 milljónir
króna.
Hrossakjötsneysla íslend-
inga hefur heldur farið minnk-
andi síðustu árin og var aðeins
um 3 kg á mann að meðaltali
árið 1994, eða tæplega 5% af
heildarkjötneyslu lands-
manna, sem var um 63 kg á
mann að meðaltali, hvar af
kindakjöt er hátt í helmingur-
inn. ■
Meistara-
mót Keilis
Á fimmtudag lauk keppni í
nokkmm flokkum hjá Golf-
klúbbnum Keili.
Helstu úrslit urðu þessi:
Öldungaflokkur:
Jens Karlsson........... 307
Knútur Björnsson ....... 308
Jón Halldórsson ........ 323
Björn Karlsson ......... 323
Sigurjón Sverrisson .... 323
4. flokkur kvenna:
Erla Erlingsdóttir ..... 400
Sigurbjörg Sigurjónsd. 401
T elpnaflokkur:
Anna L. Sveinbjörnsd.... 390
Silja Magnúsdóttir ..... 439
Unglingar 14 ára og yngri:
Atli Þór Gunnarsson ... 303
Björn Kr. Björnsson... 323
Jón Páll Pálmason ...... 351
Myndlistarsýning:
Ríkey
í Perl-
unni
Myndhöggvarinn, listmálar-
inn og leirlistakonan Ríkey
Ingimundardóttir opnar sína
36. einkasýningu í Perlunni á
laugardag. Aö þessu sinni sýn-
ir hún málverk, brenndar lág-
myndir, steinsteypta skúlp-
túra ásamt olíumálverkum og
postulínsmyndum.
Við opnunina kl. 15 munu
Anna Vilhjálms og hljómsveit
gleðja eym sýningargesta. Sýn-
ingin í Perlunni stendur til 3.
ágúst. ■
Hlíf Sigurjónsdóttir og David Tutt.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Sumartónleikar á þriðjudögum
Áttunda sumarið í röð verður
efnt til tónleikahalds á þriöju-
dagskvöldum í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar í Laugar-
nesi.
Þriðjudaginn 9. júlí kl. 20.30
munu Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu-
leikari og David Tutt, kanadísk-
ur píanóleikari, halda tónleika.
Leikin verða verk eftir Antonin
Dvorak og Beethoven.
Hlíf og David hófu samstarf
þegar þau vom bæði við nám í
Listaskólanum í Banff í Kanada.
Tónleikarnir standa í um það bil
klukkustund og veröur kaffi-
stofa safnsins opin. ■
Miklar breytingar á Vöruhúsi KB í Borgarnesi:
Ný og breytt verslun
Þeir, sem ekki hafa komiö inn
í Vömhús KB í Borgamesi um
nokkurra mánaöa skeiö,
munu vart þekkja sig þar inni
nú, þar sem verslunarhúsið er
búiö aö fá nýtt og nútímalegt
svipmót.
Búiö er að gerbreyta öllu
skipulagi innanhúss í Vöruhús-
inu, endurnýja innréttingar og
stækka verslanir. Auk þess hafa
inngangar Vömhússins verið
endurnýjaðir, gerðir hafa verið
nýir aðalinngangar í húsiö að
ofanverðu við Egilsgötu og að
neðanverðu frá Kaupfélagsplan-
inu þar sem aðalbílastæöin eru
nú.
Orðið hefur vart við töluverð-
ar áherslubreytingar í kynning-
arstarfi Kaupfélags Borgfirðinga
og hafa m.a. auglýsingar frá fyr-
irtækinu verið áberandi undan-
farna mánuði. Auk þess gefur
Vöruhús KB íBorgarnesi hefur verib mikib endurnýjab ab undanförnu og
m. a. gerbir nýir abalinngangar í húsib. Tímamynd ohr
fyrirtækiö út fréttabréf í hverj-
um mánuði, KB Fréttir, og er því
dreift á öll heimili á Vesturlandi
og noröur StrandirJ auk þess yf-
ir sumarmánuöina til þeirra sem
eiga sumarhús á Borgarfjaröar-
svæðinu og em búsettir á suð-
vesturhorni landsins. -ohr
Frjálsíþróttasambandiö:
Sex í
ólympíu-
hóp FRÍ
Framkvæmdastjórn Frjáls-
íþróttasambandsins hefur val-
iö sex einstaklinga í ólympíu-
hóp FRÍ til aö taka þátt í lo-
kaundirbúningi fyrir Ólymp-
íuleikana í Atlanta í
Bandaríkjunum í sumar.
Fram aö leikunum mun þessi
hópur veröa viö æfingar og
keppni í Athens í Bandaríkj-
unum ásamt þjálfumm sín-
um.
í þessum hópi eru þau Guð-
rún Arnardóttir grindahlaupari,
Jón Arnar Magnússon tugþraut-
armaður, Vésteinn Hafsteins-
son kringlukastari, Martha
Ernstdóttir langhlaupari, Pétur
Guðmundsson kúluvarpari og
Sigurður Einarsson spjótkastari.
Þau þrjú síðastnefndu hafa frest
til 16. júlí til að ná tilsettum
lágmörkum, og sömuleiðis Ein-
ar Vilhjálmsson spjótkastari.
Framkvæmdastjórnin hefur
einnig tilkynnt um eftirtalda
fararstjóra og þjálfara sem fara
til Atlanta. Það eru þau Helgi S.
Haraldsson, formaður FRÍ, sem
jafnframt verður flokksstjóri,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir
þjálfari, sem einnig mun að-
stoða Helga S., Gísli Sigurðsson
aðalþjálfari og Gunnar Páll Jóa-
kimsson aðstoðarþjálfari.
í framhaldi af þessari ákvörð-
un sinni hefur FRÍ óskað eftir
því að ofangreindir sex íþrótta-
menn verði skráðir í ólympíulið
íslands og þeir sem hafa náð
lágmörkum í sínum greinum
verði samþykktir sem keppend-
ur á leikunum. Þá hefur FRÍ
áskilið sér rétt til breytinga á
hópnum til og með 16. júlí, en
þá rennur út frestur til að ná til-
skildum lágmörkum, sam-
kvæmt reglum Alþjóða ólymp-
íunefndarinnar og Alþjóða
frjálsíþróttasambandsins. -grh
Átakiö „íslensk verslun
— Þinn hagur" hefst um
verslunarmannahelgina:
Verslun
í sókn
„íslensk verslun — Þinn hagur"
er yfirskrift átaks sem hags-
munaaöilar í verslun ætla aö
ýta úr vör um komandi verslun-
armannahelgi og mun átakiö
standa yfir eitthvað fram á
haustiö. Aö átakinu standa m.a.
Kaupmannasamtök íslands, Fé-
lag ísl. stórkaupmanna, Sam-
vinnuverslunin og Landssam-
band verslunarmanna.
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasam-
takanna, segir að tilgangur og
markmið átaksins sé aö bæta
ímynd verslunarinnar og auka
verslunina hér heima. í því sam-
bandi ætla hagsmunaaðilar m.a.
að benda fólki á að það sé orðið
jafngott að versla á íslandi og er-
lendis. Þessu verður sérstaklega
beint til þeirra sem hyggjast fara
til útlanda í haust í svokallaðar
borgarferöir — innkaupaferðir.
Þetta átak er svipað því sem
sömu aðilar réðust í fyrir tveimur
árum undir kjörorðinu: „Verslum
heima - Tryggjum atvinnu". -grh