Tíminn - 06.07.1996, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 6. júlí 1996
Enn einu sinni fær valinn hópur
norrænna ungmenna tækifæri til
ab koma saman og spreyta sig á
verkum þekktra tónskálda. Enn
einu sinni fá Noröurlandabúar
tækifæri til ab njóta symfónískra
verka í flutningi æskufólks, sem
valib hefur verib meb kostgæfni
til ab leika meb Orkester Norden.
í dag eru fyrstu hljómleikar
hljómsveitarinnar á þessu ári, en
þab eru Norbmenn og gestir
þeirra sem eiga því láni ab fagna
ab hlýba á flutning ungmenn-
anna á symfóníu nr. 2 eftir Carl
Nielsen og hljómsveitarverk eftir
Béla Bartók í tónlistarhöllinni í
Sandnes vib Óslófjörb. Hljóm-
sveitin hefur verib í æfingabúb-
um tónlistarskólans í Arvika í Sví-
þjób frá 25. júní, en þar er abstaba
til æfingahalds betri en þekkist
annars stabar.
Þetta er fjóröa áriö sem hljóm-
sveitin starfar. Þegar valið var í
hljómsveitina í fyrsta sinn, árið
1993, komusc sjö íslendingar í hóp-
inn, sem í voru 67 ungmenni. Þetta
þótti mörgum frábær árangur, í
ljósi þess að ekkert kvótakerfi er á
valinu. Hljóðfæraleikararnir eru
valdir eftir að dómnefnd hefur
hlustað á þá af segulbandsupptök-
um, sem ekki er vitað hvaðan koma
fyrr en úr heíur verið skorið hvort
viðkomandi hefur staðist gæðakröf-
Menningarlandsliö unga fólksins:
Orkester Norden á faraldsfæti
Orkester Norden er dcemi um vei heppnab samstarf fólks á Noröurlöndunum og sýnir svo ekki verbur um villst ab landamceri og tungumál eru lágir
þröskuldar, ef vilji er til ab stíga yfir þá.
Æft fyrir afhendingu bókmennta- og tónlistarverblauna Norburlandarábs
í Bláa salnum í Stadshuset í Stokkhólmi vorib 7 994. Stjórnandi: Ulf Sö-
derblom.
Diljá Sigursveinsdóttir athugar hvort bogastrokur séu réttar! Kariis 1995.
ur eftir nákvæma hlustun sérfræð-
inga.
Fyrsta árið var, eins og í ár, æft í
Ingesundtónlistarskólanum í Ar-
vika þar sem er frábær aðstaða fyrir
svona námskeið, stór æfingasalur
og stór herbergi fyrir raddæfingar.
Þar eru yfir 60 æfingaherbergi fyrir
einstaka hljóöfæraleikara. Fyrstu
hljómleikar hljómsveitarinnar voru
að sjálfsögðu í Arvika, sem er eins
og gefur að skilja mikill tónlistar-
bær. Síöan var haldið í tónleikaferð
um Svíþjóð og m.a. spilað í Stokk-
hólmi við frábærar undirtektir. Árið
1994 var hljómsveitinni boðið til
Stokkhólms á þing Norðurlanda-
ráðs, þar sem hún spilaði við af-
hendingu tónlistar- og bókmennta-
verðlauna ráösins. Við sama tæki-
færi spilaði hljómsveitin í ráðhúsi
borgarinnar undir stjóm Ulfs Sö-
derblom.
Sumarið 1994 var aftur haldið í
æfingabúöirnar í Arvika, en nú
voru íslendingar orðnir 17 og
hljómsveitin hafði stækkað og taldi
orðið 104 hljóðfæraleikara. Stjórn-
andi var Leif Segerstam. Um sumar-
ib lá leiöin m.a. til Óslóar, Kaup-
mannahafnar, Óbinsvéa og Gauta-
borgar.
Sumarið 1995 var bmgðið út af
venju, en þá var námskeiðið haldið
í Kariis á suðvesturhorni Finnlands.
íslendingunum hafbi fjölgað um
einn frá árinu áður, þó að fækkað
hafi í hljómsveitinni um tuttugu á
milli ára. Rétt er aö geta þess að þab
er verkefnavaliö sem ræbur heildar-
fjölda hljóðfæraleikara. Tónleika-
ferðin hófst að sjálfsögðu í Finn-
landi, þar sem spilað var í Tampere
og Nystad, en síðan var flogið til
Kaupmannahafnar og spilab fyrir
fullu húsi í Tívolí. Ferðinni lauk svo
í Stokkhólmi, þar sem hljómsveitin
lék á opnunartónleikum Vatnahá-
tibarinnar (Vattenfestivalið er hald-
ib á hverju ári í Stokkhólmi meb
mikilli viðhöfn). Stjórnandi var Gu-
ido Ajmone-Marsan í forföllum Esa-
Pekka Salonen.
{ ár eru 10 íslendingar í Orkester
Norden, sem hefur stækkað í 96
manna hljómsveit til að geta flutt
stór hljómsveitarverk. Katrín Árna-
dóttir fiðluleikari, sem frá upphafi
hefur stýrt þátttöku íslendinga í
Paavo jarvi er núverandi stjórn-
andi Orkester Norden. Hann er
fœddur árib 7 962 í Tallinn, Eist-
landi, og er aöalstjórnandi Sinfón-
íuhljómsveitarinnar í Malmö.
hljómsveitinni, segir aðalástæöuna
fyrir því að íslendingunum hefur
fækkað vera þá hversu snemma
sumars námskeiðið byrjabi. Margir
íslensku hljóðfæraleikaranna, sem
áður hafa veriö valdir til að leika
með hljómsveitinni, em við nám
erlendis og skólaárinu hjá þeim var
í fæstum tilfellum lokið, þegar
námskeiðið í Arvika hófst.
Af þeim tíu íslendingum, sém nú
em með í hljómsveitinni, hafa átta
þeirra verib með ábur, þar af em
þrír úr Kópavogi. Tveir af þremur
trompetleikumm hljómsveitarinn-
ar em Kópavogsbúar. Til ab gæla
aðeins við þjóðarstoltið er ekki úr
vegi aö geta þess að íslendingar eiga
fyrstu klarinettu, fyrsta fagott og
fýrsta trompet í ár, en hafa öll und-
anfarin ár átt einhverja af leiðandi
hljóðfæraleikurum sveitarinnar.
Hlutur Lionshreyf-
ingarinnar
Eins og nærri má geta, þarf mikla
og góða skipulagningu til að fá
svona mikiö fyrirtæki til að ganga.
Velja þarf úr fjölda tilboða um að
halda tónleika, finna þarf þekktan
hljómsveitarstjóra og fá inni á gób-
um æfingastöðum og tímasetning-
ar þurfa að henta öllum sem að
koma. Til ab dæmið gangi upp þarf
ekki bara skipulagsgáfur, heldur
líka fórnfúst framlag fjölda sjálf-
boðaliða og mikla peninga.
Þó að hljómsveitin sé orðin þekkt
um Noröurlönd og njóti mikilla og
vaxandi vinsælda, er ekki útséð
meb hvort hún fær að starfa áfram.
Hingað til hefur hljómsveitin verið
styrkt með framlagi Norðurlanda-
rábs, Norrænu félaganna og Lions-
hreyfingarinnar, sem á heiðurinn af
því að hafa komið þessu verkefni af
stab.
Þab var sænski Lionsmaöurinn
Lennart Fridén sem átti hugmynd-
ina ab því að stofna sinfóníuhljóm-
sveit ungs fólks á Norðurlöndum.
Árib 1987 leitaði hann til Thor-
björns Falldin, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Svía og formanns Norræna
félagsins þar í landi, um stuðning
við að hrinda hugmyndinni í fram-
kvæmd. Norrænu félögin sam-
þykktu hljómsveitarstofnunina árið
1991 og menntamálaráðherrar
Norðurlandanna gáfu grænt ljós á
fjármögnunina í desember sama ár.
Á síðasta ári rann út samstarfs-
samningur Lionshreyfingarinnar
og Norrænu félaganna um stuðn-
ing við hljómsveitina. Vonir eru
bundnar við ab Norðurlandaráð og
Norræna ráðherranefndin sjái
ástæðu til að tryggja að áframhald
verði á þessu uppbyggilega sam-
starfi Norðurlandanna. Ráðherra-
nefndin hefur látið gera mat á starf-
semi hljómsveitarinnar og mikil-
vægi hennar fyrir ungt norrænt
tónlistarfólk og norræna menn-
ingu. Niðurstöður matsins ættu að
liggja fyrir innan tíðar.
Kerrmr hún til
íslands?
Þegar þessi grein birtist, situr
undirbúningsnefnd (stjórn) Orkest-
er Norden á fundi í Ósló og ræðir
framtíö hljómsveitarinnar.
Ef allt gengur að óskum, liggja
fyrir áætlanir um hljómleikaferð ár-
ið 1997 til norðursvæða Skandinav-
íu (Nordkalotten) og 1998 hefur
stefnan verið sett á alþjóðaþing
Lionshreyfingarinnar í Birming-
ham í Englandi, en það verður þá
haldið í fyrsta skipti í mörg ár í Evr-
ópu. í Birmingham er eitt besta tón-
leikahús álfunnar og mikið til-
hlökkunarefni að fá að spila þar.
Þeir hljómleikar eiga ab vera eins-
konar upphitun fyrir tónleika hér
heima, en hingað til íslands hefur
hljómsveitin aldrei komið. Þá gæf-
ist íslendingum í fyrsta skipti tæki-
færi til að hlýða á hina efnilegu
ungu hljóðfæraleikara.
Á ferb um Noreg
Eins og áður sagði, er Orkester
Norden að hefja árlega tónleikaferð
sína í dag með tónleikum í tón-
leikahöllinni í Sandefjord við Ósló-
fjörð. Tónleikarnir eru þáttur í lista-
hátíb bæjarins. Á sunnudag verður
svo ekið sem leið liggur til Lille-
hammer, þar sem hljómsveitin spil-
ar í Maihaugen-tónleikahúsinu. Á
mánudag lýkur svo ferðinni meb
tónleikum í tónleikahöllinni í Ósló.
Vonandi verður það ekki svana-
söngur þessarar frábæm hljóm-
sveitar.
Ágúst Þór Ámason