Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 1. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Grasalæknar aftur í ættir Hefur getið sér gott orð fyrir smyrsl á brunasár | Daglegt líf Fasteignir | Hlaðvarpinn verður hótel  Englaborg við Flókagötu  Uppbygging eystra  Þrastarhöfði í Mosfellsbæ Íþróttir | Metþátt- taka í Gamlárshlaupi ÍR  Chelsea fékk 101 stig  Owen braut bein 010101010101010101010101010101010101010101010 10101010101010101010101010 010 10 01010101010101010 10101010 010101010 101010101010 010101010101010 0101010101 0101010101 010101010101010101 1010101010101 01010101010 01010101010 Framtíðin er í okkar höndum tefnumót stjórnmálamanna, háskólanema og starfsfólks hátæknifyrirtækja 16. janúar. Sjá nánar á www.si.is Fasteignir og Íþróttir í dag SAMHUGUR ríkir ævinlega um áramót þegar gamla árið með sínum margvíslegu minningum er kvatt og því nýja fagnað. Hundruð manna söfnuðust saman á Skólavörðuholti um miðnætti á gamlárskvöld og fögnuðu komu nýja ársins hressilega með spreng- ingum, hrópum og lófaklappi. Þá fylgdu í kjölfarið margir kossar á rjóðar kinnar. Fjöldi erlendra ferða- manna fylgdist spenntur með fagnaðarlátunum. Morgunblaðið/Sverrir Kærleikur um áramót LOÐNUVEIÐAR við landið í vet- ur eru óljósar og í raun stórt spurningarmerki, að sögn Hjálm- ars Vilhjálmssonar, fiskifræðings á Hafrannsóknastofnun. Rannsókn- arskipið Árni Friðriksson fer af stað á morgun í leiðangur ásamt fimm leitarskipum út frá Aust- fjörðum og fer leiðangurinn í norð- vestur að Vestfjörðum. Hafís hefur verið við Vestfirði og mun Landhelgisgæslan fljúga yfir í dag og gera ískönnun á svæðinu. Hjálmar reiknar með því að fljót- lega verði ljóst hvort einhver loðna finnist. Í vor var hafís yfir öllu því svæði sem loðnan fer um á leiðinni norð- ur eftir í fæðuleit. Þetta hélst fram í lok júlí og það voru gerðar árang- urslausar tilraunir. Einhver loðna fannst við Kolbeinsey í vetur, en við nánari skoðun reyndist það lítið magn, að sögn Hjálmars. „Þó var ljóst að þetta hafði aukist eitthvað frá því síðast,“ segir Hjálmar. Loðnuleit að hefjast ÁKVEÐIÐ hefur verið að gera ný aðgöng inn í aðrennslisgöng Kára- hnjúkavirkjunar til að flýta gerð að- rennslisganganna, að sögn Sigurðar Arnalds, talsmanns Landsvirkjunar. Hann segir að þau séu u.þ.b. tveimur til fjórum mánuðum á eftir áætlun. Samkvæmt henni er miðað við að borun aðrennslisganga verði lokið eigi síðar en í september á þessu ári. Þá tekur ýmis frágangur við, að sögn Sigurðar. Gert er ráð fyrir því að fyrstu vélar virkjunarinnar verði settar í gang í apríl 2007 og að virkj- unin verði komin í fullan rekstur í október sama ár. Nýju aðgöngin verða fjórðu göng- in inn í aðrennslisgöngin og verður gangamunninn rétt neðan við Desj- arárstíflu. Þau verða að sögn Sigurð- ar um 400 metra löng, býsna brött og ætluð grjótflutningabílum og öðrum tækjum. Samið hefur verið við Arn- arfell ehf. á Akureyri um að taka að sér verkið og er áætlaður kostnaður á bilinu 90 til 100 milljónir. Tilbúnir með tæki og mannskap Sigurður segir að gerð aðrennsl- isganganna hafi tafist af jarðfræði- legum ástæðum. Til dæmis hafi meira vatn verið í berginu næst Kárahnjúkum en menn hafi gert ráð fyrir. Það hafi skapað vandamál. Á vef Kárahnjúkavirkjunar, kara- hnjukar.is, segir að sérfræðingar Landsvirkjunar, hönnuðir virkjun- arinnar, verktakinn Impregilo og fleiri hafi farið rækilega ofan í saum- ana á öllum þáttum verksins og leit- að mögulegra leiða til að hraða gerð og frágangi aðrennslisganganna og vinna upp þær tafir sem orðið hafi á verkinu. Niðurstaðan hafi verið sú að grafa ný aðkomugöng. Að sögn Sigurðar verður þannig hægt að komast inn í aðrennslis- göngin á fleiri stöðum en ella. „Þetta er að okkar mati ódýrasta og einfald- asta leiðin til að vinna upp þær tafir sem orðið hafa.“ Hann segir að aðrir þættir Kárahnjúkavirkjunar séu á áætlun, s.s. stíflurnar og stöðvarhús- ið. Sigurður segir að fyrirtækið Arn- arfell sé að bora og sprengja jarð- göng austan við Snæfell og því hafi það verið fengið til að sjá um gerð nýju aðganganna. „Þeir hafa mann- skap og tæki til að fara í þetta strax. Því fengum við þá til að gera göngin þrátt fyrir að þau séu í raun og veru á vinnusvæði Impregilo.“ Inntur eft- ir því hvers vegna Impregilo hafi ekki verið fengið í verkið segir hann: „Þeir voru ekki tilbúnir með tæki og mannskap í verkið og okkur lá á.“ Hann segir enn fremur aðspurður að verkið sé það lítið og tíminn það naumur að það hafi þótt einfaldast að semja við fyrirtæki á staðnum í stað þess að fara í útboð. Ráðist í ný aðgöng til að vinna upp tafir Ljósmynd/Kárahnjúkavefur Nýju aðkomugöngin fá verkheitið aðgöng 4. Gangamunni þeirra verður rétt neðan við Desjarárstíflu. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is FLEIRI útfarir fara fram í kyrrþey en áður. Þórsteinn Ragnarsson, for- stjóri Kirkjugarða Reykjavíkur- prófastdæma, segir að ein ástæðan sé sú að sumir eigi erfitt með að ráða við kostnaðinn sem fylgi útförunum. „Það hefur ekki verið haldið saman tölum um útfarir í kyrrþey, en tilfinn- ing okkar og þeirra sem eru að þjón- usta í útfararþjónustunni er að þetta sé að aukast töluvert. Ástæðan er sú hvað þetta er þungt í skauti pen- ingalega. Það er a.m.k. ein ástæðan en þær geta verið fleiri,“ sagði Þórsteinn. Kostnaður við eina útför er rúmlega 200 þúsund krónur. Þá er ótalinn kostnaður við erfidrykkju, en hann getur verið annað eins. Þórsteinn seg- ir að stundum liggi fyrir beiðnir um að útför fari fram í kyrrþey þó að kostn- aður sé ekki vandamál. Stöðugt fleiri útfarir í kyrrþey Moskva. AP. | Rússneska gasfyrir- tækið Gazprom skrúfaði í gær fyrir gas til Úkraínu líkt og það hafði hót- að en stjórnvöld í Úkraínu hafa ekki viljað samþykkja að greiða fjórfalt hærra verð fyrir gasið en þau hafa gert til þessa. Sergei Kuprianov, talsmaður Gazprom, sagði að um leiðslur í Úkraínu færi nú aðeins gas sem ætl- að væri Evrópumönnum. Hann bætti því hins vegar við að vísbend- ingar væru um að Úkraínumenn tækju til sín hluta þessara gas- birgða. Brást Yuriy Yekhanurov, forsætisráðherra Úkraínu, hart við þeim ásökunum og sagði þær raka- lausan þvætting. Áhyggjur í Evrópu Um þriðjungur þess gass sem Úkraína notar hefur komið frá Rúss- landi og Gazprom sér Vestur-Evr- ópumönnum enn fremur fyrir um fjórðungi þess gass sem þeir nota ár hvert. Mestur hluti þess fer um leiðslur sem liggja um Úkraínu og hafa Evrópumenn því áhyggjur af því að deilur Rússa og Úkr- aínumanna hafi áhrif þar. Rússar segja verðhækkun Gazprom eðlilegt skref í þá átt að færa verð á gasi nær heimsmark- aðsverði. Úkraínumenn hafa fyrir sitt leyti verið reiðubúnir til að greiða meira en vilja að verðhækkunin taki gildi á lengri tíma og í gær sakaði Viktor Jústsjenkó, forseti Úkraínu, Rússa um að beita Úkraínu „augljósum efnahagslegum þrýstingi“. Sagði Jústsjenkó að ný verðskráning Gazprom væri „óviðunandi af ein- földum ástæðum – hún byggist ekki á efnahagslegum forsendum“. Hefur verið bent á það í þessu samhengi að Gazprom samdi í síð- ustu viku við Hvít-Rússa, sem eru bandamenn Rússa, um að selja þeim gas fyrir 20% af verðinu sem fyrir- tækið vill að Úkraínumenn greiði. Skrúfað fyrir gas til Úkraínu Viktor Jústsjenkó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.