Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÓTTAST er að skógareldar sem geisað hafa á
stórum svæðum í nágrenni borgarinnar Sydney í
Ástralíu nái senn að ógna úthverfum hennar en
erfiðlega hefur gengið að ráða niðurlögum eld-
anna. Eldarnir voru í gær um 60 km norður af
Sydney og eyðilögðu a.m.k. þrjú heimili í bænum
Woy Woy, auk nokkurra bifreiða. Aðalþjóðveg-
urinn norður frá Sydney var lokaður vegna eld-
anna en mikill reykur berst yfir stórt svæði
lands. Veðurspá er ekki hagstæð fyrir slökkvi-
starfið, gert er ráð fyrir áframhaldandi hita, um
40ºC, og þurrum vindi, en við slíkar aðstæður
berast skógareldarnir hratt yfir. Stórt svæði
lands hefur þegar orðið eldunum að bráð. Ekk-
ert manntjón hefur þó enn orðið.
Skógareldar ógna Sydney
Reuters
ABDUL-Halim Khaddam, fyrrver-
andi varaforseti Sýrlands, var í gær
rekinn með skömm úr Baath-flokkn-
um sem fer með völdin í landinu.
Þetta kom fram í yfirlýsingu sem for-
svarsmenn Baath-flokksins sendu frá
sér en þar var þess jafnframt krafist
að Khaddam yrði ákærður fyrir land-
ráð.
Á laugardag hafði sýrlenska þingið
lýst því yfir að sækja skyldi Khaddam
til saka fyrir landráð eftir að hann
hélt því fram í sjónvarpsviðtali að
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands og
leiðtogi Baath-flokksins, hefði haft í
hótunum við Rafik Hariri, fyrrver-
andi forsætisráðherra Líbanons,
nokkrum mánuðum áður en Hariri
var ráðinn af dögum 14. febrúar sl.
Rannsakendur á vegum Samein-
uðu þjóðanna hafa tengt stjórnvöld í
Sýrlandi við morðið á Hariri en þar-
lendir ráðamenn hafa hins vegar
hafnað því með öllu að þeir beri
ábyrgð á morði Hariris.
Khaddam sagði í viðtali við al-
Arabiya-sjónvarpsstöðina, sem tekið
var í París, að Assad hefði sagt hon-
um að hann hefði látið þung orð falla í
garð Hariri á fyrrgreindum fundi,
„eitthvað á þá lund að hann myndi
mala hvern þann sem reyndi að
óhlýðnast okkur [Sýrlendingum]“.
Þá sagði Khaddam, sem var vara-
forseti Sýrlands allt þar til í júní 2005,
að útilokað væri að sýrlenska leyni-
þjónustan hefði upp á sitt einsdæmi
ákveðið að ráða Hariri af dögum.
Hann sagði hins vegar að hann væri
ekki að saka neinn um að bera ábyrgð
á morðinu, hann vildi bíða eftir end-
anlegum niðurstöðum Sameinuðu
þjóðanna.
Yfirlýsingar Khaddams vöktu hörð
viðbrögð í Sýrlandi. Auk þess sem
þing landsins og stjórn Baath-flokks-
ins hafa vísað máli hans til stjórn-
valda og farið fram á að hann verði
ákærður fyrir landráð, lýstu sum dag-
blöð honum sem „sýrlenskum Júd-
asi“.
Khaddam býr nú í París en var
lengi áhrifamaður í sýrlenskum
stjórnmálum og hann var jafnan álit-
inn meðal harðlínumannanna í Baath-
flokknum. Árið 1984 gerði Hafez al-
Assad, þáverandi forseti og faðir nú-
verandi forseta, hann að varaforseta.
Var Khaddam einn af höfundum
þeirrar stefnu sýrlenskra stjórnvalda
að halda Líbanon undir sínu ægivaldi.
Þegar al-Assad hinn eldri féll frá og
Bashar al-Assad tók við árið 2000
fylkti Khaddam liði á bak við hinn
unga forseta.
Heldur mun hafa farið að draga úr
áhrifum Khaddams síðustu ár og
hann sagði af sér sem varaforseti í
júní 2005. Í viðtalinu á föstudag gagn-
rýndi hann ráðamenn í Sýrlandi og
sagði þá hafa tregðast við að stíga
skref í umbótaátt. Sumir fréttaskýr-
endur segja ummæli hans til marks
um að hann hyggist reyna að skil-
greina sjálfan sig upp á nýtt sem um-
bótasinna og seilast til áhrifa í heima-
landi sínu.
Vilja ákæra fyrrverandi
varaforseta fyrir landráð
Fullyrti að Assad Sýrlandsforseti hefði haft í hótunum við Rafik Hariri
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Reuters
Bashar al-Assad (t.h.) með Abdel-Halim Khaddam á fundi í júní sl.
Gaza-borg. AP, AFP. | Palestínskar ör-
yggissveitir frelsuðu í gær ítalskan
friðarsinna úr haldi mannræningja á
Gaza-svæðinu en Ítalanum hafði ver-
ið rænt snemma um morguninn í
bænum Khan Younis. Til skotbar-
daga mun hafa komið milli öryggis-
sveitarmanna og mannræningjanna
en engar fréttir höfðu í gær borist
um mannfall í þeim átökum.
Ítalinn, Alessandro Bernardini,
var í hópi um tuttugu ítalskra frið-
arsinna sem komnir voru til Palest-
ínu til að sýna stuðning sinn í verki
við palestínsku þjóðina.
Mannræningjar stöðvuðu rútubif-
reið Ítalanna í gærmorgun, rifu
Bernardini út úr bílnum og óku á
brott með hann. Þykir þessi atburð-
ur til marks um að alger lögleysa ríki
á svæðum Palestínumanna og að
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu-
manna, sé illfær um að tryggja lög
og reglu nú þegar vopnaðar sveitir
Palestínumanna, m.a. Hamas-sam-
tökin, hafa lýst því yfir að þær telji
sig ekki lengur bundnar af sam-
komulagi sem gert var í mars á síð-
asta ári og fól í sér að Hamas og önn-
ur slík samtök héldu aftur af sér og
létu vera að gera árásir á ísraelska
borgara.
Mannrán algeng á Gaza
Ránið á Bernardini í gær kom í
kjölfar þess að þremur Bretum var
rænt í síðustu viku; þeim var síðan
sleppt ómeiddum á föstudag. Út-
lendingum hefur ítrekað verið rænt
á Gaza-svæðinu, alls fjórtán á síð-
ustu tólf mánuðum. Flestum hefur
hins vegar verið sleppt innan fárra
klukkustunda.
Abbas hefur verið gagnrýndur
fyrir að sýna linkind í baráttu sinni
við vopnaða öfgahópa eins og Hamas
og Al-Aqsa-sveitirnar. En aðgerðir
palestínsku öryggissveitanna í gær
þóttu takast vel.
Þingkosningar eiga að fara fram í
Palestínu 25. janúar nk. og flest
bendir til að Hamas-samtökin nái
góðum árangri. Er af þessum sökum
komin upp nokkur togstreita innan
Fatah-hreyfingar Abbas, sem að
hluta til er sagt skýra það stjórnleysi
sem nú ríki á Gaza-svæðinu. Margir
innan Fatah hafa hvatt Abbas til að
fresta kosningunum en hann hefur
til þessa hafnað þeim kröfum alfarið.
Ítali frelsaður úr höndum
mannræningja á Gaza
Hamas-samtökin segjast ekki lengur
bundin af samkomulagi um frið
KEELA, sextán mánaða gömul
tík, er orðin svo fær og eftirsótt
sem lögregluhundur að hún
getur þénað meira en yfirlög-
regluþjónninn ef hún kærir sig
um, að sögn breska dagblaðs-
ins The Daily Telegraph.
Keela aðstoðar yfirleitt við
glæparannsóknir í heimasýslu
sinni, Yorkshire. En þegar lítið
er að gera er tíkin leigð öðrum
lögreglusveitum ásamt tveimur
þjálfurum hennar á 530 pund,
sem samsvarar 58.000 krónum,
á dag.
Myndi þéna 22 milljónir
Að sögn The Daily Tele-
graph myndi tíkin þéna sem
samsvarar tæpum 22 milljón-
um króna á ári, 7,6 milljónum
meira en yfirlögregluþjónninn,
ynni hún á hverjum degi.
Lyktarskyn tíkarinnar er
svo næmt að hún getur fundið
lykt af blóði á klæðnaði sem
hefur verið þveginn hvað eftir
annað. Hún getur einnig greint
örsmáa blóðdropa á vopnum
sem hafa verið hreinsuð eftir
árás.
Afburða-
snjöll
lögreglutík
BENEDIKT páfi XVI. horfir á bag-
al sinn við morgunmessu í páfagarði
í gær en Benedikt flutti þá sitt fyrsta
áramótaerindi síðan hann tók við
embætti trúarleiðtoga kaþólskra
manna í heiminum af Jóhannesi Páli
páfa II. sem lést á nýliðnu ári eftir
hátt í þrjá áratugi á páfastóli.
Benedikt páfi hvatti Sameinuðu
þjóðirnar í ræðu sinni í gær til að
sinna betur því verkefni sínu að
stuðla að réttlæti, samstöðu og friði í
veröldinni. Sagði Benedikt að órétt-
læti og ofbeldi þjakaði sum svæði
veraldarinnar en að „nýjar og lævís-
ar ógnir steðjuðu líka að friði í heim-
inum, svo sem hryðjuverk, níhílismi
og fanatísk bókstafstrú“. Af þessum
sökum yrðu allir að vinna saman að
því að stuðla að friði, „einstaklingar,
heilar þjóðir, alþjóðasamtök og vold-
ug ríki“ en þó einkum Sameinuðu
þjóðirnar því að þessi barátta væri
helsta verkefni þeirra.
Blessaði lýðinn
Sagði Benedikt páfi að Sameinuðu
þjóðirnar yrðu að blása nýju lífi í
baráttu sína fyrir frið og réttlæti „í
veröld sem í æ ríkari mæli er mörk-
uð af því fyrirbæri sem hnattvæð-
ingin er“.
Fullt var út úr dyrum í basilíkunni
í Péturskirkjunni en messuna sóttu
forystumenn hinnar kaþólsku kirkju
og erlendir sendimenn. Eftir mess-
una blessaði Benedikt lýðinn úr
glugga íbúðar sinnar, en venju sam-
kvæmt voru þúsundir manna sam-
ankomnir á Péturstorginu til að
berja páfa augum og hljóta blessun
hans við upphaf nýs árs.
AP
Ræddi ógnir
við frið í
heiminum