Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 27 MINNINGAR Okkur langar að minnast fáeinum orð- um góðs vinar, uppeld- isföður og bónda á Fossum í Landbroti. Þegar við minn- umst þessa ágæta manns, Davíðs Stefánssonar, kemur fyrst upp í huga okkar maður margra barna. Ekki bara sinna eigin heldur einnig margra annarra sem gistu fjölmörg sumur hjá þeim heiðurshjónum Dav- íð og Köru. Við minnumst þess hversu dulúðleg virðing virtist alltaf hvíla yfir þessum bónda úr Land- brotinu. Hann kenndi okkur að þekkja og virða náttúruna í kringum okkur og umgengni við ferfætlinga. Okkur fannst alltaf að dýrin á bæn- um, hvort heldur smá eða stór, bæru á einhvern einkennilegan hátt virð- ingu fyrir þessum einstaka manni. Davíð hafði einstakt lag á því að fá okkur börnin til vinnu. Hann skipaði ekki fyrir, heldur lét okkur taka ákvörðun um að það væri tímabært að gera hlutina. Hann kenndi okkur einnig verklag við hin ýmsu störf sem maður býr að enn í dag. DAVÍÐ STEFÁNSSON ✝ Davíð Stefáns-son bóndi fædd- ist í Arnardrangi í Landbroti 3. sept- ember 1916. Hann lést á Borgarspítal- anum 20. desember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Prestbakkakirkju á Síðu 30. desember. Davíð hafði skemmtilegt skopskyn sem hann kom áleiðis með yfirlætislausu yf- irbragði. Tilsvör hans voru stundum hvatvís, en þeir sem þekktu til vissu oft að þar bjó oft undir hárfín kald- hæðni sem við höfðum gaman af. Hvenær ferðu svo aftur? Var oft það fyrsta sem Davíð spurði þegar gest bar að garði. En hann tók ávallt inni- lega á móti okkur og kvaddi okkur með virktum. Sumrin á Fossum voru ávallt ánægjuleg og maður minnist margra ánægjustunda í Landbrotinu. Skemmtilegra veiðiferða niður í Flóð, heyskapar, rekstrar á fjall, bygging- arvinnu, kartöfluuppskeru og margs fleira. Í öllu þessu stóð Davíð sem verkstjóri og stýrði liði sínu örugg- lega með styrkri stoð frá Köru. Davíð hætti búskap fyrir nokkrum árum. Hann fylgdist þó vel með öllu því sem fram fór í kringum hann og hafði ákveðnar skoðanir. Hann var heimakær og fannst lítið að sækja til höfuðstaðarins. Við kveðjum góðan vin, uppeldis- föður og einstakan mann. Elsku Kara, frænkur og frændur. Megi guð styrkja ykkur í þeirri sorg sem nú dynur yfir á hátíðunum. Samúðarkveðjur. Hans og Kristján. ✝ Kirsten Hall-grímsson fædd- ist í Fredericia í Danmörku 9. nóv- ember 1920. Hún lést á Landspítalan- um – háskóla- sjúkrahúsi 25. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru þau Christian Sørensen ritsíma- stjóri, R.Dbr., f. 10. september 1893, d. 9. nóvember 1978, og Edith Magda- lene Louise Fredrikke Sørensen símaritari, f. 26. ágúst 1894, d. 23. september 1975. Kirsten varð stúdent frá Fredericia Gymnasium 1939. Hún hóf nám í Mariager Apotek í október 1939 og lauk exam. pharm.-prófi 1942. Hún stundaði nám við Danmarks Farmaceut- iske Højskole frá því í nóvember 1947 þangað til í október 1949, er hún lauk cand. pharm.-prófi. Kirsten varð aðstoðarlyfja- fræðingur við afleysingar (rejse- vikar) í Odense Løve Apotek, Høj- er Apotek, Lemvig Apotek og Roskilde Dom Apotek, lyfjafræð- ingur í Stjörnu Apóteki, Akur- eyri, 1950– 1953, Holts Apóteki 1953–1961, yfirlyfjafræðingur og staðgengill lyfsala í Apóteki 11. ágúst 1869, d. 24. desember 1937, og Guðfinnu Sólveigar Jónsdóttur frá Reykjahlíð, f. 12. desember 1875, d. 7. apríl 1957. Kristján varð stúdent frá MA, stærðfræðideild, 1943. Hann stundaði verknám í Lyfjabúðinni Iðunni október 1944–1947, lauk exam. pharm.-prófi frá Lyfja- fræðingaskóla Íslands október 1947. Hann stundaði nám við Danmarks Farmaceutiske Høj- skole nóvember 1947 til apríl 1950 og lauk cand. pharm.-prófi í apríl 1950. Kristján var lyfjafræðingur í Stjörnu Apóteki á Akureyri 1950– 1953, Holts Apóteki 1953– 1961. Hann var lyfsali í Apóteki Austurlands, Seyðisfirði 1961– 1970, lyfsali í Apóteki Vest- mannaeyja 1. ágúst 1969 til maí 1976. Hann var stofnandi og fyrsti lyfsali Apóteks Norðurbæj- ar í Hafnarfirði 3. mars 1977 til nóvember 1996. Kristján varð gjaldkeri Lyfja- fræðingafélags Íslands 1954 og innti af hendi ýmis nefndarstörf á vegum Seyðisfjarðarkaupstaðar, sat í fræðsluráði, var sáttamaður o.fl. Kirsten og Kristján gengu í hjónaband 6. maí 1950. Sonur þeirra er Kristján Hallgrímur, f. 15. september 1956 í Reykjavík, lögreglufulltrúi. Austurlands 1961–1970, Apóteki Vestmannaeyja 1970–1976 og Apóteki Norðurbæjar, Hafnar- firði 1977–1995. Kristján Hallgrímsson fæddist á Akureyri 5. mars 1923. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 25. maí 1998. Faðir hans var Hall- grímur Kristjánsson, málara- meistari á Akureyri, f. 30. októ- ber 1880, d. 3. apríl 1954, sonur Kristjáns Hallgrímssonar, bónda á Hrafnsstöðum í Svarfaðardal, f. 6. júlí 1841 á Einarsstöðum í Kræklingahlíð, d. 30. mars 1895, og Guðrúnar Sigurðardóttur, f. 14. janúar 1845 í Tungu í Stíflu, d. 26. desember 1917. Móðir hans hét Þórunn Lúðvíksdóttir, f. 16. apríl 1900, d. 6. september 1933, dóttir Lúðvíks Friðrikssonar, f. Ég var staddur erlendis við vinnu þegar ég fékk þær sorgarfréttir að Kirsten Hallgrímsson hefði kvatt þennan heim og farið á þann stað sem bíður okkar allra. Erfitt er að vera svo langt í burtu þegar áföll dynja á og geta ekki kvatt eins og maður hefði helst viljað. Vil ég því kveðja Kirsten og Kristján mann hennar heitinn, sem lést 1998, með nokkrum fátæklegum orðum. Ég kynntist Kirsten og manninum hennar honum Kristjáni frænda fyrst þegar ég var ungur drengur. Það fyrsta sem kemur upp í huga mér þegar ég hugsa til baka eru ferðirnar með mömmu eða pabba í apótekið í Norðurbænum. Þau hjón- in Kirsten og Kristján ráku þá Apó- tek Norðurbæjar í Miðvangi Hafn- arfirði og stóðu myndarlega að þeim rekstri. Þó að umhverfið hafi ekki verið eins og best verður á kosið þá var apótekið það, hlýlegt, snyrtilegt og þjónustan persónuleg og góð. Það var nánast í hvert einasta skipti sem maður kom þangað í heimsókn að maður fékk að fara fram í búð og velja sér nammi og það var yfirleitt aldrei til sparað þegar tekið var til við að velja; apótekaralakkrís, háls- brjóstsykur af öllum stærðum og gerðum, saltpillur, ýmsir kassar með alls konar tegundum af nammi og margt fleira. Ég minnist einnig jólaboðanna sem haldin voru í Garðabæ heima hjá þeim hjónum en jólaboðin hjá þeim báru af í glæsileika og góðum veitingum. Heimili þeirra hjóna var mjög glæsilegt og geymdi marga fal- lega hluti víða að úr heiminum. Oftar en ekki þegar átti að fara að opna jólagjafirnar á aðfangadags- kvöld þá var einn mesti spenning- urinn að fá að opna pakkann frá Kirsten og Kristjáni því það voru yf- irleitt ríkulegar gjafir og oft útbúnar á mjög skemmtilegan máta og minn- ist ég sérstaklega hálsmens sem Kirsten hafði útbúið úr 50 króna peningum. Kynni okkar jukust svo til muna þegar ég byrjaði að keyra fyrir þau á bílnum þeirra fyrir um það bil tíu ár- um. Ég vil leyfa mér að kalla bílinn „námsstyrkinn“ því ég fékk að vera á honum alla daga gegn því að ég skutlaðist fyrir þau öðru hvoru í búð- ina og svo var yfirleitt farið á sunnu- dögum í bíltúr út í sveit að skoða náttúruna og snætt á hinum ýmsu veitingastöðum. Þessir sunnudagar hverfa mér aldrei úr minni því þau hjónin voru svo skemmtileg, göntuð- ust og kunnu að njóta lífsins saman. Já, þau nutu sko lífsins saman og þá bara tvö saman og þurfti ekki meira til. Maður er manns gaman og það átti svo sannarlega við þau hjónin. Þessi keyrsla var náttúrulega smá- munir miðað við það að fá að vera á flottum bíl alla daga nýbyrjaður í framhaldsskóla og oftar en ekki sá Kirsten um að fylla hann af eldsneyti. Seinna meir tók svo bróðir minn við þessum akstri. Við bræðurnir erum sammála um það að Kirsten hafi dekrað við okkur meðan á þessu stóð og okkar viðvik smá- munir miðað við það sem við fengum í staðinn. Kirsten hitti ég síðast í sumar og þá aðeins í stutta stund sem oft vildi verða. Kirsten vil ég minnast sem góðrar konu, hógværrar í alla staði og ró- legrar í fasi en stóð á sínu ef þess þurfti. Kristján var mikill húmoristi og góður sögumaður og var oft gaman að hlusta á hann þegar við fórum tveir saman niður á höfn eða í bíltúr um bæinn. Nú eru þau hjónin sameinuð á góðum stað, gantast og fylgjast með sólsetrinu þar saman. Að endingu vil ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þeim hjónum, Kirsten og Kristjáni, og þakka fyrir vináttu þeirra. Við Guðrún sendum Kristjáni syni þeirra innilegar sam- úðarkveðjur. Guð blessi minningu þeirra hjóna. Kristján H. Hallgrímsson. KIRSTEN HALLGRÍMSSON KRISTJÁN HALLGRÍMSSON Við systkinin viljum minnast Sjönu, æskuvinkonu okkar úr Breiðvangnum, í nokkrum orð- um. Þegar ég hugsa um þig elsku Sjana mín rifjast upp öll æska mín. Við vorum bestu vinkonur frá því við vorum litlar stelpur. Þú varst einu ári eldri en ég, og það sem ég leit upp til þín. Ég vildi gera allt og KRISTJANA HILMARSDÓTTIR ✝ Kristjana Hilm-arsdóttir fædd- ist í Hafnarfirði 8. desember 1973. Hún lést á sjúkrahúsi í Groningen í Hol- landi 2. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram þar 6. desember. Kristjönu var minnst í Hafnar- fjarðarkirkju 13. desember. eiga allt eins og þú. Þegar við vorum sjö og átta ára fannst þér einn daginn nafnið mitt vera svo langt, þá ákvaðst þú að byrja að kalla mig Betu, og alla daga síðan hef ég ver- ið kölluð það af vinum mínum. Við lékum okkur mikið úti í leikj- um, það voru fimleika- leikir, ein króna o.fl. o.fl. Dag einn árið 1980 settum við upp ólympíuleika úti í garði. Það var rosa fjör. Við vorum ákveðnar í að stofna hljómsveit þrjár vinkonur saman og verða frægar. Það vantaði aldrei hug- myndaflugið hjá okkur krökkunum í Breiðvangnum. Þig mátti aldrei vanta í leikina því þú varst driffjöðr- in í vinahópnum, alltaf svo sæt, kát og skemmtileg. Ég minnist mjög heiðarlegrar til- raunar okkar til að setja upp leikrit í kjallaranum í blokkinni, þetta var úr bókinni Ævintýrahöllinni. Í einu at- riðinu áttu að vera samræður krakkanna við glugga, en enginn var glugginn í kjallaranum þannig að þú bjóst til glugga í smíðum í Engidalsskóla og hann var notaður. Við náðum að klára tvo og hálfan kafla áður en við svo gáfumst upp, enda mikil vinna. Við getum endalaust haldið áfram, minningarnar eru svo marg- ar og skemmtilegar. Þegar við systkinin fluttum úr Breiðvangnum 1985 slitnaði sam- bandið á milli okkar. Við hittumst þó nokkrum sinnum þegar við vorum komin á unglingsárin, þegar þú varst að vinna í Ísal og svo á leik- skólanum Víðivöllum þar sem sonur minn var á þeim tíma. Þá var alltaf spjallað. Við viljum senda foreldrum, systkinum, unnusta og öðrum að- standendum Sjönu innilegar samúð- arkveðjur. Minning um góða vinkonu lifir. Elísabet Hansdóttir, Hafsteinn Hansson. Móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR ÁSMUNDSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 41, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 3. janúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknar- félög. Ásmundur Jakobsson, Aðalbjörg Jakobsdóttir, Hallgrímur B. Geirsson, Steinunn Sigríður Jakobsdóttir, Sverrir Hilmarsson, Jakob Jakobsson, Moira Helen Jakobsson, Johanne Agnes Jakobsson. Ástkær bróðir okkar og mágur, EINAR GUÐNASON viðskiptafræðingur, sem lést þriðjudaginn 20. desember síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 4. janúar næstkomandi kl. 11.00 árdegis. Gerður Guðnadóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Bjarni Guðnason, Anna Guðrún Tryggvadóttir, Þóra Guðnadóttir, Baldur H. Aspar, Bergur Guðnason, Hjördís Böðvarsdóttir, Jónína Margrét Guðnadóttir, Sveinn Snæland, Elín Guðnadóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓNAS TRYGGVI GUNNARSSON frá Vík í Mýrdal, Kristnibraut 25, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudag- inn 3. janúar kl. 15.00. Helga Árnadóttir, Ása J. Jónasdóttir, Ove Hansen, Kristín Jónasdóttir, Ómar Hauksson, Guðný Jónasdóttir, Árni S. Sigurjónsson, Margrét Jónasdóttir, Ólafur Baldursson, Ólöf Helga Jónasdóttir, Valtýr Óskarsson, Árni Jónasson, barnabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.