Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BRUGÐIST VIÐ TÖFUM
Ákveðið hefur verið að gera ný að-
göng inn í aðrennslisgöng Kára-
hnjúkavirkjunar til að flýta gerð að-
rennslisganganna en framkvæmd-
irnar eru u.þ.b. 2–4 mánuðum á eftir
áætlun.
Nýju aðgöngin verða um 400
metra löng. Samið hefur verið við
Arnarfell ehf. á Akureyri um að það
taki að sér verkið og er áætlaður
kostnaður á bilinu 90-100 milljónir.
Fá ekkert gas lengur
Rússneska gasfyrirtækið Gaz-
prom skrúfaði í gær fyrir gas til
Úkraínu líkt og það hafði hótað en
stjórnvöld í Úkraínu hafa ekki viljað
samþykkja að greiða fjórfalt hærra
verð fyrir gasið en þau hafa gert til
þessa. Virðist engin lausn í sjónmáli
í deilu þjóðanna tveggja en Viktor
Jústsjenkó, forseti Úkraínu, sakaði
Rússa í gær um að beita Úkraínu
efnahagslegum þrýstingi.
Úthrópaður landráðamaður
Abdel-Halim Khaddam, fyrrver-
andi varaforseti Sýrlands, verður
líklega ákærður fyrir landráð heima
fyrir. Khaddam sagði á föstudag að
Bashar al-Assad Sýrlandsforseti
hefði haft í hótunum við Rafik
Hariri, fyrrverandi forsætisráð-
herra Líbanons, skömmu áður en
hann var myrtur í febrúar sl. Yf-
irlýsingar Khaddams, sem er í út-
legð í París, vöktu sterk viðbrögð í
Damaskus og kölluðu dagblöð hann
m.a. föðurlandssvikara en þær þykja
skjóta rótum undir þá kenningu að
Sýrlendingar hafi staðið að baki
morðinu á Hariri.
Margir bíða á LSH
94 sjúklingar eða um 11% allra
legusjúklinga á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi hafa lokið meðferð
og bíða eftir hjúkrunarrýmum eða
öðrum úrræðum. Hafa þessir sjúk-
lingar legið samtals í um 12 þúsund
daga á spítalanum að lokinni með-
ferð. Þetta veldur m.a. því að sjúk-
lingar sem bíða meðferðar á LSH
komast ekki að og aðrir sjúklingar
þurfa að liggja á göngum. Rúm á
bráðasjúkrahúsi er margfalt dýrara
en á t.d. hjúkrunarheimili.
Fleiri útfarir í kyrrþey
Sífellt fleiri útfarir fara fram í
kyrrþey. Ein helsta ástæðan er sú að
sumir eiga erfitt með að ráða við
kostnaðinn sem fylgir útförunum en
hann er um 200 þúsund krónur.
Erfidrykkja getur kostað annað
eins.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Skák 29
Vesturland 14 Dagbók 32/34
Viðskipti 15 Myndasögur 32
Erlent 16 Víkverji 32
Daglegt líf 18/19 Staður og stund 34
Menning 20, 35/37 Leikhús 36
Forystugrein 22 Bíó 38/41
Umræðan 24/25 Ljósvakar 42
Bréf 25 Veður 43
Minningar 26/28 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga
Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HÁLF öld er nýlega liðin frá fyrsta
flugi Landhelgisgæslunnar á sinni
eigin flugvél og var tímamótunum
fagnað á gamlársdag af tveimur
áhafnarmeðlimum, þeim Garðari
Jónssyni, fyrrverandi loftskeyta-
manni hjá Gæslunni, og Guðjóni
Jónssyni flugmanni. Flugið var farið
29. desember 1955 og voru í áhöfn
auk Garðars og Guðjóns þeir Guð-
mundur Kærnested, Gunnar Lofts-
son og Hörður Þóroddsson sem nú
eru látnir. Flugvélin var Katalina-
flugbátur af gerðinni Consolidated
PBY-6A og hlaut einkennisstafina
TF-RAN. Vélin var áður í eigu flug-
málastjórnar sem hafði keypt hana
skemmda af bandaríska varnarliðinu.
Landhelgisgæslan eignaðist vélina
10. desember 1955 og tæpum þremur
vikum seinna var komið að fyrsta
fluginu. „Við flugum til Víkur í Mýr-
dal og til baka og vorum 2 tíma og 55
mínútur,“ segir Garðar. „Flugið gekk
vel í alla staði. Þetta var mjög
skemmtileg flugvél og flaug bæði
hægt og lágt. Katalina-flugmennirnir
hjá Flugfélagi Íslands voru fengnir til
að fljúga fyrir Gæsluna í gamla daga
og höfðu gaman af. Við flugum mikið
þótt hægt væri farið og sem dæmi má
nefna að þá tók flug hringinn í kring-
um landið 11–13 tíma. Í eitt skiptið
vorum við að fljúga henni í skoðun og
breytingar hjá SAS í Kaupmanna-
höfn 1958 og vorum 11 tíma á leiðinni.
Rétt fyrir sunnan Færeyjar gaf ég
stjórnstöð í Prestwick staðar-
ákvörðun okkar og síðan aftur
klukkutíma síðar. Þá höfðum við ekki
flogið nema fimm mílur og þeim í
Prestwick fannst þá ástæða til að
spyrja hvernig flugvél við værum eig-
inlega á! Og það kom stundum fyrir
að við flugum aftur á bak. Einu sinni
flugum við austur með landinu og
þegar við komum yfir Eyrarbakka þá
var flughraðinn orðinn 5 mílur á
klukkustund – aftur á bak. Þá sner-
um við bara við og fórum hinn hring-
inn. Í dag flýgur engin vél á 105 hnút-
um eins og þessi gerði. Það var því
synd að henni var síðar hent og það
hef ég aldrei skilið almennilega. En
við fengum fína vél í staðinn, DC4.“
Þess má geta að fyrstu tilraunir
Landhelgisgæslunnar og Síldarút-
vegsnefndar með síldarleit úr lofti
hófust sumarið 1928 úti fyrir Norður-
landi. 1929 hófst reglubundin síld-
arleit úr lofti með tveimur flugvélum
af Jungers-gerð sem Flugfélag Ís-
lands hafði leigt af Lufthansa.
„Flugum stundum aftur á bak“
Morgunblaðið/Sverrir
Gott að minnast merkisviðburðar á síðasta degi ársins: Garðar Jónsson og
Guðjón Jónsson sem voru í fyrstu áhöfn Katalina-flugbátsins í lok desem-
ber árið 1955 skála fyrir tímamótunum heima hjá Garðari á gamlársdag.
Hálf öld frá fyrsta flugi Gæslunnar á eigin Katalinu TF-RAN
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
„ÉG fékk tíu fyrir lokaverkefnið í
rafvirkjun,“ segir Tu Ngoc Vu,
sem fluttist hingað til lands frá
Víetnam með foreldrum sínum og
bróður fyrir rúmum fjórum árum.
Hann dúxaði í rafvirkjun frá Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti fyrir
jól og sló blaðamaður af því tilefni
á þráðinn til hans í gær.
Hann segir að foreldrar sínir
hafi flutt hingað til lands til að
vinna í nóvember árið 2001. Ekki
hafi annað komið til greina hjá
honum en að skella sér strax í
nám.
Hann fór fyrst í íslensku fyrir
útlendinga en hóf svo nám í raf-
virkjun við Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja.
„Íslenskunámið var fyrst mjög
erfitt,“ segir hann, en í samtali við
blaðamann kemur greinilega fram
að hann hefur náð ágætu valdi á
íslenskunni.
Hann segist hafa sótt um vinnu
á nokkrum rafverkstæðum fyrir
jól og fengið þau svör að haft yrði
samband við hann á nýju ári.
Hann vonast til þess að það gangi
eftir nú í vikunni og er ekki annað
að heyra en að hann sé fullur
bjartsýni á framtíðina.
Morgunblaðið/Ómar
Tu Ngoc Vu er hér með móður sinni, Mai Thi Vu, og bróður sínum, Toan.
Þeir stunda báðir karate og hafa hlotið viðurkenningar fyrir það.
Dúxaði í rafvirkjun frá FB
KARLMAÐUR á þrítugsaldri
slasaðist á auga í flugeldaslysi á
Tálknafirði á gamlárskvöld og
var fluttur með sjúkraflugi til
Reykjavíkur frá flugvellinum á
Bíldudal. Engin sjúkraflugvél
var á Ísafirði og var því kallað
eftir vél frá Akureyri sem falið
var að sinna sjúkraflugi á Vest-
fjörðum um áramótin á meðan
sjúkraflugvél Landsflugs á Ísa-
firði fór í verkefni í Vestmanna-
eyjum. Lögreglan á Patreksfirði
er mjög ósátt við þjónustuna sem
veitt var á gamlárskvöld og gagn-
rýnir seinagang við að koma vél-
inni af stað. Sveinbjörn Dúason,
slökkviliðsvarðstjóri á Akureyri,
segir ljóst að tafir hafi orðið á flug-
takinu og mun hann krefja Flugfélag
Íslands skýringa á málinu. Er skýr-
inganna að vænta í dag og mun
Sveinbjörn skila skýrslu um málið til
heilbrigðisráðuneytisins.
Tildrög sjálfs slyssins voru þau að
maðurinn fékk skot í augað úr flug-
eldatertu og bað lögreglan á Pat-
reksfirði um að sjúkraflugvélin yrði
sett í viðbragðsstöðu kl. 00.20. Tutt-
ugu mínútum síðar, kl. 00.40, var
beðið um vélina á staðinn en hún
lenti ekki fyrr en kl. 3 um nóttina.
Sveinbjörn Dúason segir að út-
kallstíminn eigi ekki að vera
lengri en 45 mínútur en í þessu
tilviki er ljóst að hann var 70
mínútur. Flugfélag Íslands á
Akureyri hefur borið við nokkr-
um samverkandi þáttum sem
töfðu útkallið, m.a. erfiðu síma-
sambandi, en tekið skal fram að
nánari skýringa er eftir að leita
og segir Sveinbjörn að símasam-
band gæti skýrt málið að hluta
en alls ekki að öllu leyti.
Vélin, sem er af gerðinni Twin
Otter, lagði af stað frá Bíldudal
kl. 3.27 en sneri við skömmu eft-
ir flugtak. Sveinbirni er kunnugt um
að vélinni hafi verið snúið við en
hann hefur ekki fengið upplýsingar
um hvers eðlis málið var. Samkvæmt
óstaðfestum upplýsingum frá Flug-
félagi Íslands á Akureyri mun hafa
gleymst að loka bensínlokinu áður
en farið var í loftið.
Krafist skýringa á töfum á
útkalli vegna sjúkraflugs
Morgunblaðið/Sverrir
UM áramótin varð til nýtt sveitarfé-
lag, Húnavatnshreppur, en það
varð til við sameiningu Bólstaðar-
hlíðar-, Sveinsstaða-, Svínavatns-
og Torfalækjarhreppa. Við þessa
breytingu fækkar sveitarfélög-
unum úr 101 í 98. Er þetta í fyrsta
sinn sem sveitarfélögin fara niður
fyrir 100 á landinu en flest voru þau
229 árið 1950.
Við upphaf kjörtímabilsins 1990–
1994 voru sveitarfélögin 204. Við
upphaf kjörtímabilsins 2006–2010
verða sveitarfélögin ekki fleiri en
89 en þegar hafa þrjár aðrar sam-
einingar verið samþykktar og taka
þær gildi að afloknum sveitar-
stjórnarkosningum í maí.
Þetta eru sameining 4 sveitarfé-
laga sunnan Skarðsheiðar, þar sem
sveitarfélögin Hvalfjarðarstrand-
arhreppur, Innri-Akraneshreppur,
Leirár- og Melasveit og Skil-
mannahreppur sameinast, samein-
ing Borgarbyggðar, Borgarfjarð-
arsveitar, Hvítársíðuhrepps og
Kolbeinsstaðahrepps og sameining
fjögurra sveitarfélaga á Austur-
landi, þ.e. Fjarðabyggðar, Mjóa-
fjarðarhrepps, Fáskrúðsfjarðar-
hrepps og Austurbyggðar.
Sveitarfélögin
orðin færri en 100
LÖGREGLAN handtók í gær ungan
pilt grunaðan um kynferðisofbeldi
gegn stúlku á skemmtistaðnum
Broadway í Reykjavík á nýársnótt.
Þau eru á aldrinum 17–18 ára að
sögn lögreglu sem var kölluð til eft-
ir að gestir á ballinu sáu hvað var
að gerast og skiptu sér af piltinum
sem var að misnota sér ástand
stúlkunnar sem svaf ölvunarsvefni í
opnu rými inni á staðnum. Stúlkan
var flutt á neyðarmóttöku vegna
kynferðisofbeldis á Landspít-
alanum en ekki var búið að taka
skýrslu af henni í gær. Pilturinn
var yfirheyrður hjá lögreglu og var
honum sleppt að því loknu þar sem
ekki þótti ástæða til að krefjast
gæsluvarðhalds yfir honum. Kæra
frá stúlkunni hafði ekki verið lögð
fram í gær. Málið verður rannsakað
áfram hjá lögreglunni.
Handtekinn fyrir
kynferðisofbeldi
á skemmtistað