Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 32
Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Mímí og Máni FÖRUM OG KÍKJUM Á HANN PABBA HELDURÐU AÐ HANN VERÐI EKKI REIÐUR? JÁ EN VIÐ ÞURRK- UÐUM AF OKKUR ALLT ÞETTA FERÐALAG HLÝTUR SAMT AÐ RÝRA VERÐGILDIÐ MIKIÐ VERÐUR HANN HISSA ÞEGAR HANN SÉR OKKUR FYRIR UTAN GLUGGANN SINN ÞRÁTT FYRIR AÐ VÍKINGAR BERJIST AF HÖRKU ÞÁ VERÐA ÞEIR SAMT AÐ „GANGA HREINIR TIL VERKS“ EN ÉG ER BÚINN AÐ FARA Í BAÐ Á ÞESSU ÁRI KÓNGULÓAR- HUNDURINN ER NÆSTUM TILBÚINN HANN VANTAR BARA EINA FLÍK Í VIÐBÓT. EFTIR ÞAÐ GETUR HANN BARIST VIÐ GLÆPI AF FULLUM KRAFTI HVERT ÞYKISTU VERA AÐ FARA Í NÆR- BUXUNUM MÍNUM!!! HVENÆR HELDURÐU AÐ VIÐ FÁUM RAF- MAGNIÐ AFTUR? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI, EN VIÐ MEGUM ALLS EKKI OPNA ÍSSKÁPINN HVERSU LENGI? EINS LENGI OG VIÐ MÖGULEGA GETUM EF VIÐ OPNUM HANN ÞÁ SKEMMIST ALLT ÞAÐ SEM VIÐ BORÐUM EKKI STRAX AF HVERJU FÖRUM VIÐ EKKI TIL LÖGREGLUNNAR? ÉG GET EKKI FARIÐ TIL HENNAR LÖGREGLAN HELDUR AÐ TARANTÚLAN SÉ HETJA ÉG EIN VEIT SANNLEIKANN OG HVER ER HANN? NÆST FÁUM VIÐ AÐ HEYRA SÖGUN... Dagbók Í dag er mánudagur 2. janúar, 2. dagur ársins 2006 Víkverji hefur núkannski ekki hugsað sér að gerast stóridómur yfir ára- mótaskaupinu en auð- vitað hefur hann skoð- un á því hvernig til tókst eins og flestir aðrir landsmenn. Og satt best að segja undrast hann að að- standendur skaupsins að þessu sinni skyldu ekki sjá ástæðu til að gera sér meiri mat úr ýmsum þeim atburð- um sem áttu sér stað á árinu sem nú er liðið. Í staðinn var lögð áhersla á eins konar ærslaleiki, slapstick-húmor, sem Víkverja finnst eiginlega svolít- ið gamaldags. Hér er Víkverji t.d. að tala um verslunarför Eddu Björg- vinsdóttur og Ladda, sem vikið var að skaupið út í gegn en virtist ekkert hlutverk spila fyrir víðara samhengi skaupsins eða tengjast atburðum ársins 2005. En hlýtur svona þáttur ekki að taka mið af helstu atburðum liðins árs; á þetta ekki að vera eins konar kómískur spegill? Auðvitað er það álitamál hvort ástæða hefði verið til að leggja allt skaupið undir Baugsmálin svo- nefndu, hugsanlega er almenningur búinn að fá sig fullsaddan af þeim. Víkverja hefði samt þótt eðlilegt að þeim væri vikið með einhverjum bein- skeyttari hætti. Atrið- ið með Opruh Winfrey var þó býsna fyndið, sennilega það besta í skaupinu. Víkverji saknaði ýmissa annarra at- burða frá liðnu ári í skaupinu: hvar var til dæmis Bobby Fischer og hin kostulega uppá- koma er hann var fluttur hingað til lands í einkaþotu og var síðan „rænt“ af þáverandi fréttamönnum Stöðvar 2, Ingólfi Bjarna Sigfússyni og Páli Magnússyni? x x x Eitt af því sem höfundar skaupsinsreyndu að gera sér mat úr var framleiðsla Skjás eins á piparsveins- þættinum umdeilda. Heldur var það grín ómarkvisst að mati Víkverja. Sannarlega fór Hilmir Snær Guðna- son þó á kostum í hlutverki hins ófagra piparsveins, eiginlega var hann alveg óþekkjanlegur er hann birtist í fyrsta sinn. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is       Dans | Tangósveit lýðveldisins lætur ekki deigan síga og hefur hið nýja ár með tangókvöldi í Iðnó annaðkvöld, þriðjudaginn 3. janúar. Að venju er boðið upp á leiðsögn í hinum funheita dansi frá kl. 20 en stundvíslega kl. 21 stígur Tangósveit lýðveldisins á svið og leikur til kl. 23. Tangósveitina skipa þeir Hjörleifur Valsson fiðluleikari, Tatu Kantomaa bandoneonleikari, Ástvaldur Traustason harmónikuleikari, Vignir Þór Stefánsson píanóleikari og Gunn- laugur T. Stefánsson kontrabassaleikari. Miðaverð er 1.500 krónur. Tangó á nýju ári MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýjum með miklum mætti og dýrð. (Mark. 13, 26.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.