Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Árið 2005 létust 28einstaklingar íslysum hér á landi samkvæmt skráningu Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í fréttatil- kynningu félagsins segir að banaslys á ársgrund- velli hafi aldrei verið færri frá árinu 1941 er það hóf að skrá öll banaslys. Allt frá árinu 1928 hefur Slysavarnafélagið Lands- björg, áður Slysavarna- félag Íslands, skráð bana- slys í landinu. Í upphafi voru eingöngu sjóslys og drukknanir skráð en allt frá árinu 1941 hefur félagið einnig skráð önnur banaslys. Árið 2001 breytti félagið sinni flokkun á skráningu banaslysa til að hafa sams konar flokkun og notuð er á alþjóðavísu. Eftir breytinguna eru Íslendingar sem látast af slysförum erlendis ekki skráðir í slysatölur á Íslandi, þar sem þeir eru skráðir í slysatölur þess lands sem þeir létust í. Sú breyting var einnig gerð að drukknanir voru aðskildar frá sjó- slysum og flokknum ýmis slys var skipt niður í flokkana vinnuslys, heimaslys, frístundaslys og önnur slys. Árið 2005 létust þrír Íslending- ar af slysförum erlendis, einn árið 2004 og tveir árið 2003. Fjórir létust í vinnuslysum Flest banaslys á síðasta ári urðu í tengslum við umferðina eins og svo oft áður, þar sem 19 einstaklingar létust í 16 slysum. Næstflest urðu slysin í flokknum vinnuslys þar sem 4 einstaklingar létust í jafnmörgum slysum, sem er óvenjumikið, en árið 2004 lést einn einstaklingur í vinnuslysi og árið 2003 tveir einstaklingar. Eitt slys var skráð í flokknum frítíma- slys árið 2005 en þau voru fimm árið 2004 og níu árið 2003. Einnig var eitt slys skráð í flokknum heimaslys, líkt og árið 2003, en þau voru fjögur talsins árið 2004. Þá var eitt slys skráð í flokkinn drukknanir og eitt slys í flokkinn sjóslys. Af þeim 28 sem létust hérlendis í slysum á árinu voru 21 karlmað- ur og 7 konur. Ekkert barn undir 14 ára aldri lést af slysförum á árinu. Færri slasast í umferðinni Sigurður Helgason, verkefnis- stjóri Umferðarstofu, segir að á síðastliðnum fimm árum hafi tæp- lega 24 látið lífið á hverju ári í um- ferðinni. Því sé greinilegt að bana- slysum hafi fækkað nokkuð. Sigurður bendir jafnframt á að ekki einungis hafi banaslysum fækkað heldur slasist færrinú en áður. Þannig hafi fjöldi alvarlegra slasaðra í umferðinni farið stig- lækkandi hin síðari ár sem og fjöldi þeirra sem slasast lítillega. „Árið 2003 slösuðust 111 manns alvarlega í umferðinni en árið 2004 voru þeir 86 og 84 árið 2005. Þá hefur fjöldi þeirra sem hafa slasast lítillega í umferðinni lækk- að umtalsvert eða um hátt í 40% frá árinu 2002,“ segir Sigurður, en árið 2002 slösuðust 1031 lítillega í umferðinni, 820 árið 2003, 746 árið 2004 og 603 árið 2005. „Höldum ótrauðir áfram“ Sigurður telur að átak lögregl- unnar gegn hraðakstri í sumar hafi haft áhrif og bendir í því sam- bandi á að slysum hafi fækkað á því tímabili. „Þrettán þeirra sem létust á [síðasta] ári í umferðinni létust á fyrri helmingi ársins en sex létust á síðustu sex mánuðunum. Þetta hefur því eitthvað að segja líkt og allur sá áróður sem er í gangi. Þannig hefur verið mikil umræða um þessi mál í samfélaginu og þáttur fjölmiðla er gríðarlega mikill.“ Sigurður telur að menn eigi að fara varlega í að draga ályktanir af þessum tölum en segir að Um- ferðarstofa muni leggja kapp á að vinna í samræmi við núgildandi umferðaröryggisáætlun og fram- kvæmdaáætlun um umferðarör- yggi sem gildir til ársins 2008. „Við höldum ótrauðir áfram en það er verið að styrkja verulega stoðirnar svo það sé hægt að vinna með öflugum hætti að þessu mik- ilvæga máli.“ Fréttaskýring | Aldrei færri banaslys 28 létust í slys- um hér á landi Flestir létu lífið í umferðarslysum en slysum í umferðinni fer þó fækkandi 19 einstaklingar létu lífið í umferðinni. Banaslys hafa verið skráð allar götur frá árinu 1928  Frá árinu 1928 hefur Slysa- varnafélagið Landsbjörg skráð banaslys í landinu. Eingöngu sjó- slys og drukknanir voru skráð í upphafi en frá árinu 1941 hefur félagið einnig skráð önnur bana- slys. Flokkunarkerfi félagsins var breytt árið 2001 en eftir breytinguna eru Íslendingar sem látast af slysförum erlendis ekki skráðir í slysatölur á Íslandi. Til að auðvelda samanburð aftur í tímann er eldri flokkunaraðferð félagsins einnig notuð. Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is                        !" # $              !"   #   $  %       FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki Hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýársdag. Í hópnum voru sex konur og sex karlar. Þeir sem sæmdir voru fálkaorðu eru: Sr. Bernharður Guðmundsson rektor, Skálholti, sem hlaut riddarakross fyrir störf í þágu þjóðkirkjunnar og alþjóðlegs kirkju- starfs, Brynja Benediktsdóttir leikstjóri, Reykjavík, sem hlaut riddarakross fyrir störf í þágu leiklistar, Guðlaug Hallbjörnsdóttir, frv. matráðskona, Reykjavík, sem hlaut riddarakross fyrir störf í þágu nýbúa, Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur, Stykkishólmi, sem hlaut riddarakross fyrir ritstörf í þágu náttúruverndar, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Selfossi, sem hlaut stórriddarakross fyrir störf í opinbera þágu, Hafliði Hallgrímsson tónskáld, Skotlandi, sem hlaut ridd- arakross fyrir tónsmíðar, Hrefna Haraldsdóttir þroska- þjálfi, Reykjavík, sem hlaut riddarakross fyrir störf í þágu þroskaheftra, Jónas Jónasson útvarpsmaður, Reykjavík, sem hlaut riddarakross fyrir störf í fjöl- miðlun og framlag til íslenskrar menningar, Sigrún Sturludóttir húsmóðir, Reykjavík, sem hlaut ridd- arakross fyrir störf að félagsmálum, Vigdís Magn- úsdóttir, frv. forstjóri Landspítalans, Hafnarfirði, sem hlaut riddarakross fyrir hjúkrunarstörf, Þóra Kristjáns- dóttir listfræðingur, Reykjavík, sem hlaut riddarakross fyrir framlag til varðveislu íslenskrar menningar- arfleifðar, og Þráinn Eggertsson hagfræðingur, Reykja- vík, sem hlaut riddarakross fyrir vísinda- og kennslu- störf. Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon Tólf Íslendingar sæmdir fálkaorðu SJÓSUNDFÉLAG Íslands og Sjó- sundfélag lögreglunnar efndu til sameiginlegs nýárssunds í Naut- hólsvík í gær. Nýjárssundið er ár- viss viðburður þar sem syntur er stuttur spölur í köldum sjónum til að fagna nýju ári á hressandi hátt. Þeir sem tóku þátt voru: Benedikt LaFleur, Eiríkur Jónsson, Magnús Jónasson, Eyjólfur Jónsson yngri, Stefán Ingi Hermannsson, Árni Ás- kelsson, Stefán Máni, Bragi Bald- ursson, Gísli Héðinsson, Axel Valur Birgisson, Kristinn Einarsson og Benedikt Kjartansson. Morgunblaðið/Ómar Sundgarpar heilsa nýju ári KENNSLA í diplómanámi í alþjóða- samskiptum og opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands hefst 17. janúar nk. og lýkur innritun 8. janúar. Um er að ræða 15 eininga nám á meistara- stigi. Meistara- og diplómanámið í al- þjóðasamskiptum hófst sl. haust og stunda það tæplega 50 manns, en meistaranámið í opinberri stjórn- sýslu á sér lengri sögu og stunda það 150 manns, auk 30 nemenda í fjar- námi. Reynt er að haga kennslutím- um þannig að auðvelt sé að stunda námið samhliða starfi. Markmið alþjóðasamskiptanáms- ins er m.a. að mæta vaxandi þörf í samfélaginu fyrir menntað starfsfólk með þekkingu á alþjóðasamskiptum. Að loknum skyldunámskeiðum sem fjalla m.a. um utanríkismál Íslands, hlutverk alþjóðastofnana, stjórnun, skipulag og samningatækni í alþjóða- samskiptum, er viss sérhæfing mögu- leg, á sviði fjölmenningar, um áhrif menningar og trúarbragða í alþjóða- samskiptum, í Evrópufræðum, í smá- ríkjafræðum og opinberri stjórn- sýslu. Býr fólk undir störf á vettvangi hins opinbera Meistaranám í opinberri stjórn- sýslu býr fólk undir fjölbreytt störf á vettvangi ríkis, sveitarfélaga, sjálfs- eignarstofnana sem sinna verkefnum fyrir hið opinbera, félagasamtaka, ráðgjafarfyrirtækja og einkafyrir- tækja sem starfa náið með opinber- um aðilum. Í kjarnagreinum námsins er farið í grundvallaratriði við stjórn- un hins opinbera og opinbera stjórn- sýslu á Íslandi. Nemendur læra hver er sérstaða opinbera geirans, hvernig lagaumhverfi sé háttað og hvað ná- lægð við hið pólitíska vald þýðir. Fjallað er annars vegar um almenn atriði stjórnunar og rekstrar en hins vegar sérstaklega um þær rekstrar- og stjórnunaraðferðir sem opinberi geirinn notar. Nemendur geta sér- hæft sig nokkuð með valnámskeiðum og geta t.d. tekið námskeið sem lúta að alþjóðasamskiptum og alþjóðlegri samvinnu, menningu og menningar- stjórnun, stjórnun á sviði heilbrigðis- og félagsmála, stjórnun sveitarfélaga, sjálfboðasamtaka og fleira. Hægt er að fá nánari upplýsingar á heimasíðu félagsvísindadeildar www.felags.hi.is. Kennsla í alþjóðasamskipt- um og stjórnsýslu að hefjast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.