Morgunblaðið - 02.01.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 9
FRÉTTIR
Mánudagur 2 jan.
Spínatlasagna
Þriðjudagur 3. jan.
Sítrónukarrý og spínatbuff
Miðvikudagur 4. jan.
Ofnbakað eðalbuff m. sætri
kartöflu
Fimmtudagur 5. jan.
Marakkóskur pottur og buff
Föstudagur 6. jan.
Litlar samósur og ofnbakað
grænmeti
Helgin 7.-8. jan.
Orkuhleifur m. rótargrænmetismús
Glæsileg
útsala
hefst
kl. 11
á morgun
S M Á R A L I N D • S í m i 5 1 7 7 0 0 7
Kringlunni – sími 581 2300
ÚTSALAN HEFST Á MORGUN!
ÚTSALA
hefst á morgun Laugavegi 25, sími 533 5500.
PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna í
Kópavogi, vegna framboðslista
flokksins við bæjarstjórnarkosning-
ar á komandi vori, verður haldið 21.
janúar nk. Fimmtán manns gefa
kost á sér í prófkjörinu.
Frambjóðendur eru eftirtalin: Ár-
mann Kr. Ólafsson aðstoðarmaður
fjármálaráðherra og forseti bæjar-
stjórnar, Ásthildur Helgadóttir
verkfræðingur og knattspyrnumað-
ur, Bragi Michaelsson ráðgjafi og
varabæjarfulltrúi, Gróa Ásgeirs-
dóttir verkefnastjóri hjá Flugfélagi
Íslands, Gunnar Ingi Birgisson
verkfræðingur og bæjarstjóri Kópa-
vogs, Gísli Rúnar Gíslason lögfr. hjá
Fiskistofu og form. Sjálfstæðis-
félags Kópavogs, Gunnsteinn Sig-
urðsson skólastjóri og bæjarfulltrúi,
Hallgrímur Viðar Arnarson sölu-
maður og múrari, Ingimundur
Kristinn Guðmundsson kerfisfræð-
ingur, Jóhanna Thorsteinson leik-
skólastjóri í Álfatúni, Lovísa Ólafs-
dóttir iðjuþjálfi hjá Liðsinni,
Margrét Björnsdóttir varabæjar-
fulltrúi og form. umhverfisráðs, Pét-
ur Magnús Birgisson tæknistjóri
sundlauga Kópavogs, Ragnheiður
Kr. Guðmundsdóttir stjórnmála-
fræðingur og markaðsstjóri hjá
Stika ehf. og Sigurrós Þorgríms-
dóttir alþingismaður og bæjar-
fulltrúi.
Kosið verður utan kjörstaðar í
prófkjörinu. Kjörið fer fram alla
virka daga frá 5. til 20. janúar í höf-
uðstöðvum Sjálfstæðisflokksins,
Valhöll, Háaleitisbraut 1. Prófkjörið
sjálft fer fram 21. janúar nk. en
kjörstaðir verða tilkynntir síðar.
Þátttakendur í prófkjörinu skulu
vera fullgildir félagar í einhverju
sjálfstæðisfélaga Kópavogs og bú-
settir í Kópavogi. Þátttaka er heimil
16 ára og eldri. Ennfremur er þátt-
taka í prófkjörinu heimil þeim
stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins, sem eiga munu kosninga-
rétt í kjördæminu við kosningarnar
í maí og undirritað hafa inntöku-
beiðni í sjálfstæðisfélag í bænum
fyrir lok kjörfundar.
Fimmtán gefa kost á sér
í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Kópavogi
NOKKUR aðildarfélög Bandalags
háskólamanna hafa undirritað nýja
kjarasamninga við Reykjavíkur-
borg. Félögin eru Kjarafélag við-
skiptafræðinga og hagfræðinga,
Stéttarfélag lögfræðinga, Útgarð-
ur, Stéttarfélag bókasafns- og
upplýsingafræðinga og Félag ís-
lenskra fræða. Samningarnir gilda
frá 1. desember síðastliðnum, sem
þýðir að gildistími þeirra nær sam-
an við samningana sem runnu út
30. nóvember sl.
Samið var um launahækkanir
sem eru samsvarandi þeim sem
voru í samningum félaganna við
ríkið síðastliðið vor. Jafnframt var
samið um sömu eingreiðslu, krón-
ur 26.000, sem starfsmenn ríkisins
fengu í desemberbyrjun.
Í samningum Stéttarfélags
bókasafns- og upplýsingafræðinga
og Félags íslenskra fræða er kveð-
ið á um að félagsmenn í þessum
tveimur félögum gangi inn í starfs-
matskerfi borgarinnar, en með því
náist mikilvægar áfangaleiðrétt-
ingar á kjörum þeirra sem lægst
hafa laun.
Í yfirlýsingu frá Stéttarfélagi
bókasafns- og upplýsingafræðinga
vegna samninganna segir: „Stétt-
arfélagið lítur á þátttöku í launa-
myndunarkerfinu öllu, sem til-
raunaverkefni þennan samnings-
tíma og áskilur sér allan rétt til að
endurskoða þátttöku sína í kerfinu
að samningstíma loknum.“
Félagið lýsir áhyggjum af vilja-
leysi Reykjavíkurborgar til að
meta viðbótarmenntun og fag-
reynslu félagsmanna stéttarfélags-
ins og þeim áhrifum sem það kann
að hafa á möguleika stofnana
borgarinnar til að ráða til sín vel
menntað og reynslumikið starfs-
fólk.
BHM-félög
semja við
borgina
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.