Morgunblaðið - 02.01.2006, Síða 14

Morgunblaðið - 02.01.2006, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Kvöldskóli BHS vorönn 2006 Innritun í málmiðndeild kvöldskóla Borgarholtsskóla verður eftirfarandi daga: miðvikudag 4. janúar kl. 17 - 19 fimmtudag 5. janúar kl. 17 - 19 föstudag 6. janúar kl. 17 - 19 laugardag 7. janúar kl. 11 - 14 Kennsla hefst mánudaginn 9. janúar Ath: Áfangar geta fallið niður ef ekki næst nægur fjöldi í hópa Innritunargjald er kr. 14.000. Verð á bóklega einingu er kr. 1.500 og verklega einingu kr. 3.000. Sími: 535 1716 í málmdeild • Heimasíða: www.bhs.is Bóklegt Fagbóklegt Teikningar Verklegiráfangar Suður Rennismíði DAN-102 EFM-102 CAD-103 AVV-203 Vélfræði HSU-102 REN-103 EÐL-102 IRB-253 ITB-254 AVV-103 Vélfræði HSU-202 REN-203 ENS-102 RAF-113 ITB-134 HVM-103 Handavinna LSU-102 REN-304 ENS-202 VFR-102 ITB-154 HVM-203 Handavinna LSU-202 REN-404 ENS-212 VFR-212 ITB-234 PLV-102 Plötuvinna RLS-102 REN-313 FÉL-102 VHM-102 ITM-114 PLV-202 Plötuvinna RSU-102 REN-413 ÍSL-102 VT-152 ITM-213 VVR-112 Verklegar loftstýringar RSU-202 VVR-123 ÍSL-202 VVR-103 GRT-103 VVR-122 Smíðar STÆ-102 VVR-123 GRT-203 VVR-123 Verkleg kælitækni STÆ-122 ÖRF-101 TTÖ-102 VVR-214 Dísel vél Eftirtaldir áfangar verða í boði fyrir almennt bóknám og allar málmiðngreinar. Tilvalið fyrir þá sem eru að fara í sveinspróf í málmiðngreinum. Einnig eru kenndar allar suðugreinar, s.s. MIG/MAG, TIG, logsuða og rafsuða. Þá eru í boði allir áfangar í rennismíði, handa- og plötuvinnu, ásamt aflvélavirkjun og áfangar fyrir pípulagnir o.fl. ÞAÐ reyndist ekki heiglum hent að ná tali af Kristjáni Rafni Sig- urðssyni, framkvæmdarstjóra Eðalfisks, enda er þetta sá árs- tími sem mest er að gera í fyr- irtækinu. Um 70% framleiðslunn- ar fer fram í nóvember og desember og eru miklar vinnu- tarnir að baki hjá fyrirtækinu. Eflaust hafa margir gætt sér á reyktum laxi, gröfnum laxi eða piparlaxi yfir hátíðarnar, án þess að hafa sérstaklega leitt hugann að vinnslu eða uppruna laxins. Eðalfiskur ehf. í Borgarnesi er í eigu þriggja hluthafa; Dagnýjar Hjálmarsdóttur, Péturs Más Jónssonar og Birgis Benedikts- sonar, sem er stjórnarformaður fyrirtækisins. Dagný og Kristján Rafn eru hjón þannig að beinast lá við að hitta þau bæði til að for- vitnast um Eðalfisk og tókst það í árslok. Sagði strax þvert nei Þau hjónin eru bæði aðflutt í Borgarnes, Kristján úr Reykjavík en Dagný er að austan. Þau fluttu árið 1998 þegar Kristján tók við svæðisstjórastöðu hjá VÍS og Dagný, sem er hjúkrunarfræð- ingur, fór að vinna á heilsugæslu- stöðinni. Í október 2003 missti Kristján starfið hjá VÍS, fann ekkert starf við hæfi og þau íhug- uðu að flytja burt. „Ég vildi fara austur á Egils- staði, á mínar heimaslóðir,“ segir Dagný, „og var í því að finna störf fyrir Kristján, en hann lét ekki segjast.“ Kristján segist hafa skoðað marga möguleika á þessum tíma en ekki hafa verið tilbúinn að fara úr Borgarnesi. „Ég var búinn að kynnast svo mörgum hérna og líkaði vel, ég hafði myndað tengsl sem ég var ekki tilbúinn að rjúfa.“ Það varð úr að Kristján tók yfir rekstur Eðalfisks þann 1. mars 2004 og hefur rekið fyrirtækið síðan. „Það var Gísli Kjartansson sem fyrst orðaði þennan mögu- leika við mig og ég sagði strax þvert nei,“ segir Kristján. „Ég vissi að þetta var mjög harður slagur, erfitt til útflutnings vegna sígandi gengis og ég sá bara ekk- ert jákvætt.“ Hugmyndir Kristjáns, sem er menntaður fisktæknir og iðn- rekstrarfræðingur, breyttust þegar hann skoðaði betur innviði fyrirtækisins og sá ákveðna möguleika. „Ég ræddi við Dag- nýju og þá Birgi og Pétur og við létum svo slag standa og keypt- um fyrirtækið.“ Dagný segir að hún hafi gert sér grein fyrir því hversu bindandi þetta yrði, þar sem hún hafði sjálf upplifað að eiga foreldra sem ráku eigið fyr- irtæki. Unnið frá klukkan sex Eðalfiskur ehf. var upphaflega stofnaður árið 1985 og hefur síð- ustu árin verið rekinn sem eining undir Borgarnes kjötvörum. Upp- haflega hugmyndin var sú að eðli- legt væri að hafa laxvinnslu í þessu mikla laxveiðihéraði sem Borgarfjörðurinn var, enda var villtur lax þá hluti af vinnslunni. Vinnslan var áður í húsnæði Borgarplasts á Sólbakka en Kristján réðst í byggingu á nýju húsi sem var tekið í notkun í októberbyrjun 2005. „Það er ótrúlegur kostur að hafa húsnæði sem er hannað fyrir þessa vinnslu og kostnaðurinn var litlu minni en hefði verið ráðist í að breyta eldra húsnæði.“ Nýja húsið er 540 fermetrar að grunnfleti eða 640 fm brúttó. Fyrirtækið framleiddi úr um 150 tonnum af laxi á árinu 2005 og mun auka það í um 220 tonn, enda er stefnt að tvöföldun á veltu á næsta ári. Starfsmenn Eðalfisks eru um tólf á ársgrundvelli en fóru upp í tuttugu nú fyrir jólin. Unnið var frá klukkan sex á morgnana alla daga nema sunnudaga til að anna eftirspurn, en lax frá Eðalfiski var sendur til Norðurlandanna, Spánar, Belgíu, Sviss, S-Afríku og til Bandaríkjanna fyrir jólin. „Álagið var gríðarlegt,“ segir Dagný „og ég var farin að vinna í Eðalfiski um helgar.“ Kristján tekur undir það og segir að dætur þeirra þrjár, sem eru á aldrinum átta, fjögurra og tveggja ára, komi hlaupandi með fagnaðarlát- um þegar hann loksins komi heim á kvöldin. „Ég er bjartsýnn á framhaldið, öll framleiðsla verður aukin, vinn- an gerð einfaldari og hagkvæm- ari. Við höfum gert samninga við fisksölufyrirtæki erlendis sem lofa góðu, um 300% aukning hef- ur verið á sölu graflaxsósu og við stefnum að ýmsum nýjungum á því sviði í framtíðinni. Hér starfar góður kjarni af fólki og Dagnýju er hætt að langa austur,“ segir Kristján. Og Dagný samsinnir því, „að minnsta kosti í bili.“ Annir hjá Eðalfiski og bjartsýni á framhaldið Morgunblaðið/Guðrún Vala Brynja Þorsteinsdóttir og Karl Ingi Torfason krydda graflaxinn. Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur Kristján Rafn með „eðallax“. Vildi ekki yfirgefa Borgarfjörðinn VESTURLAND Hellissandur | Guðmundur Jóhannesson, bílstjóri á sérleyfisrútu Sæmundar, fór 30. desember sl. í sína síðustu ferð frá Hellissandi á sérleyfinu Snæfellsnes – Reykjavík. Sæmundur Sigmundsson í Borgarnesi hefur annast rútuferðirnar á Snæfells- nes síðustu fimm árin en þar áður voru það Helgi Pétursson og synir hans sem sáu um þessa þjónustu við Snæfellinga. Nýir aðilar tóku við sérleyfinu fyrsta janúar. Bílstjórinn sem fór sína lokaferð, Guð- mundur Jóhannesson, hefur verið bíl- stjóri á leiðinni síðustu árin, vel látinn og öruggur ökumaður. Hann bað um að komið yrði til skila kveðjum og þökkum til viðskiptafólks og áreiðanlega fylgja honum líka góðar óskir héðan frá Snæ- fellsnesi. Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir Guðmundur kveður stúlkurnar í Hraðbúð Esso, Rut Ragnarsdóttur og Drífu Skúla- dóttur, með því að vefja þær örmum. Hættir þjónustu við Snæfellinga Ólafsvík | Að venju lögðu margir leið sína á áramótabrennuna í Snæ- fellsbæ. Veður var með besta móti og brennan að þessu sinni óvenju- stór, þar sem meðal annars var gamall trébátur sem settur var á bálköstinn og setti báturinn mikinn svip á brennuna. Brennustjóri í ár eins og undanfarin ár var Hjálmar Kristjánsson, en þetta var í síðasta skiptið sem hann gegnir þessu emb- ætti. Björgunarsveitirnar á Hellis- sandi og í Ólafsvík héldu flug- eldasýningu sem var stórglæsileg að vanda og ekki spillti að norður- ljósin skörtuðu sínu fegursta. Það var tilkomumikil sjón fyrir gesti að sjá stórglæsilega flugeldasýningu í bland við norðurljósin. Morgunblaðið/Alfons Leikur flugelda og norðurljósa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.