Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 21
ÁRAMÓT
Hátúni 10c • S: 562-8500 • Fax: 552-8819 • www.mulalundur.is
Mikið úrval
Dagbóka
Tilboðs
möppur
TILBO
Ð!
Bic Atlantispennar
1.080kr. pk.
Skrifborðs
Mottur
634.-kr 339kr. pr.stk.
Lausblaðabækur úr plasti
eða sérprentaðar
DAGAT
ALI!Með
„NÝÁRSDAGUR 2006 Sálm.
90.1,12.
„Drottinn, þú hefur verið oss at-
hvarf frá kyni til kyns … Kenn oss
að telja daga vora, að vér megum
öðlast viturt hjarta.“ Í Jesú nafni.
Amen.
Náð sé með yður og friður frá
honum sem er og var og kemur,
hinum alvalda. Hann gefi oss öll-
um gleðilegt nýtt ár!
Ég þakka liðið ár. Ég þakka
helgar stundir í kirkjum landsins,
umfram allt og ekki síst hér í Dóm-
kirkjunni. Trúa þjónustu þeirra
sem hér halda uppi helgri iðkun,
elskulegt samstarf við sókn-
arnefnd og starfsfólk kirkjunnar,
Dómkór og dómorganista og presta. Guð launi
það og blessi allt.
Bænarorðin sem ég fór með hljómuðu hér
frá altari áðan, og eru úr nítugasta Davíðs-
sálmi, sálminum sem þjóðsöngur Íslendinga er
ortur út af, og var fyrst sunginn hér í Dóm-
kirkjunni á þjóðhátíðinni 1874. Í þeirri bæn
horfum við um öxl yfir farinn veg í þökk og
fram á við í von á morgni ársins nýja. Við finn-
um tímans þunga nið með sérstökum hætti.
Enginn veit hvað bíður, hvort dagarnir verða
margir eða fáir sem fram undan eru. Við teljum
okkur hafa svo margt á okkar valdi, og í vil. En
er það nú víst?
„Kenn oss að telja daga vora …“ segir bæn-
in. Við þykjumst nú kunna það. Umkringd
tímamælum af öllu tagi, allar stundir upptekin
af því að mæla tíma, spara tíma og drepa tíma.
Hver veit ekki hvað tímanum líður? Þó er ekki
eins víst að öllum sé jafnljóst hvað klukkan
slær eða hverjum hún glymur. „Á snöggu
augabragði“ geta öll okkar áform, allar okkar
ráðstafanir kollvarpast. „Oss sjálfum gafst ein
stund, sú stund sem er.“ Sagði skáldið, Tómas
Guðmundsson. Ekkert annað höfum við í hendi
en þá andrá sem er.
Hún er umhugsunarverð frásögnin af auð-
ugum amerískum gyðingi, sem snemma á síð-
ustu öld fór til Póllands til að heimsækja öld-
ung nokkurn, trúarleiðtoga, sem þar bjó.
Þegar hann kom heim til öldungsins, undraðist
hann fátækleg híbýli hans. Þar var aðeins rúm-
fleti, lítið borð og stólgarmur. „Hvar er búslóð-
in þín, húsgögnin þín, bækurnar þínar?“ spurði
hann, gáttaður. „Nú?“ spurði hinn á móti,
„hvar er búslóðin þín? Hvar eru bækurnar þín-
ar?“ „Mínar? En ég er á ferðalagi!“ „Já, ein-
mitt,“ sagði þá öldungurinn, hugsi, „ég líka.“
Líf manns er ferð. Ár og dagar, ævileið, frá
móðurskauti og til moldar. Hvernig svo sem
leiðin er lögð og fararsniðið, farteskið og ferða-
tryggingarnar, þar kemur að dagarnir eru
taldir. Og hvað þá? Og til hvers er lifað og strit-
að? Til hvers?
„Kenn oss að telja daga vora, að vér megum
öðlast viturt hjarta.“
Við kunnum að telja dagana, eins og yfirleitt
allt. Allt er talið, skilgreint, vegið og metið. En
við hvaða mælikvarða?
Sú saga var sögð á þeim árum þegar Walter
Ulbricht, leiðtogi kommúnista í Austur Þýska-
landi, réð þar lögum og lofum, að þeir hittust
hann og guðfræðingurinn Karl Barth. Ulbricht
lýsti fjálglega hinu nýja, framsækna samfélagi
sem í uppbyggingu væri í alþýðulýðveldinu.
Hann hreykti sér af því við guðfræðinginn að
kommúnistar myndu kenna boðorðin tíu í öll-
um skólum landsins, og að fyrirmæli boðorð-
anna mynduðu siðagrundvöll hins nýja sam-
félags. Guðfræðingurinn hlustaði af athygli, en
sagði svo: „Mig langar bara að spyrja einnar
spurningar, ráðherra, munuð þið líka kenna
fyrsta boðorðið?“
Tilraunir Ulbrichts og annarra harðstjóra
fyrr og síðar í Evrópu til að móta hið guðlausa
samfélag, enduðu allar í ógöngum. Þeirra er
meðal annars minnst fyrir skelfi-
lega mannfyrirlitningu. Um leið
og Guð er settur af þá tekur tor-
tryggnin, óttinn, ófrelsið og ein-
angrunin við og læsa helgreipum
allt. Sú reynsla, þau spor hræða.
Fyrsta boðorðið, „Ég er
Drottinn Guð þinn. Þú skalt ekki
aðra guði hafa,“ er nefnilega
ekki bara forn og virðulegur
texti til að kenna í sunnudaga-
skólum og fermingarbörnum.
Heldur grundvöllur og mæli-
kvarði trúar, og líka siðar og
samfélags. Undir því er heill og
hamingja manns og heims kom-
in, að það boð og vilji sé virt.
„Kenn oss að telja daga vora
að vér megum öðlast viturt hjarta.“
Skáldið, Matthías Johannessen, horfir yfir
samtíðina og vísar í söguna fornu af Mídasi
konungi, og segir:
„Hver man ekki þegar Bakkus veitti
Mídasi konungi eina ósk og hann
bað um að allt sem hann snerti breyttist
í gull, en óskaði þess svo að fenginni reynslu
að guðinn
léti af örlæti sínu, því allt sem
konungur snerti varð að sólrauðum málmi,
steinn, gras,
korn,
brauð, vatn og vínið að fljótandi gulli
við varir hans, allt varð að málmgylltri
snertingu
meðan eyru asnans uxu úr höfði
konungs,
þannig horfum við á asnans eyru
vaxa af hlustum þeirrar nýju samtíðar
sem hefur beðið guðina um sömu ósk og
Mídas.“
Við virðumst í auknum mæli vera að móta
samfélag og menningu þar sem flest snýst um
afköst og ágóða, og það góða líf sem felst í því
að hafa það gott hvað sem það kostar. Ölvuð af
óskinni einu um gullið, um auðinn, um fullnæg-
ing langana okkar og hneigða á kostnað alls
sem raunverulega skiptir máli. Við Íslendingar
keppum eftir því að iðnvæðast, og alþjóðavæð-
ast, og sækjum út til stórra sigra. Við höfum lif-
að mikið vaxtarskeið og gróskutíma á Íslandi,
og notið ótrúlegrar velgengni. Við höfum
margt að þakka. Þó megum við ekki gleyma að
það er ekki fjármagn, tæki, land, sem úrslitum
ræður um velferð og hagsæld og lífsgæði, held-
ur andlegu verðmætin, hugvit, menntun,
mannauðurinn. Oft finnst manni óneitanlega
vanta í mælikvarða hagvaxtarins þætti eins og
andlega heilbrigði, styrk samfélags, áhrif á um-
hverfið.
Menning hverrar þjóðar verður að byggja á
traustum siðagildum og viðmiðum sem miðla af
reynslu kynslóðanna en horfa jafnframt fram
veginn og lengra en til eins dags. Menntun er
einn mikilvægasti þáttur menningarinnar og
skiptir sköpum fyrir velfarnað þjóðarinnar.
Menntun sem er meir en miðlun upplýsinga,
heldur það sem snýst um: „hvassan skilning,
haga hönd og hjartað sanna, góða“. Það er
óviðunandi tap ef ungmenni sekkur í for-
heimskun alþjóðlegrar mötunar og inn á öng-
stræti flóttaleiðanna sem alls staðar eru fal-
boðnar, með sífellt lævísari hætti. Það hlýtur
að vera á ábyrgð okkar allra að sjá til þess að
enginn falli í sollinn, eða velji alltaf verstu kost-
ina. Leggja þarf áherslu á það uppeldi og skap-
hafnarmótun þar sem menntun og manngæska
helst í hendur, og þar sem athygli er beint að
því í hverju sönn lífsgæði eru fólgin.
„Kenn oss að telja daga vora, að vér megum
öðlast viturt hjarta.“
„Kynslóðir koma,
kynslóðir fara,
allar sömu ævigöng.
Gleymist þó aldrei
eilífa lagið
við pílagrímsins gleðisöng.
Fjárhirðum fluttu
fyrst þann söng Guðs englar,
unaðssöng, er aldrei þver:
Friður á foldu,
fagna þú, maður,
frelsari heimsins fæddur er.“ sungum við
hér áðan.
Nýtt ár er gengið í garð. Árið 2006 eftir
Krist, segjum við. Ár okkar eru talin út frá
fæðingu frelsarans. „… frelsari heimsins fædd-
ur er.“ Fæðing frelsarans veldur vatnaskilum í
veröldinni. Þótt manneskjan virðist söm við sig
þá höfum við öðlast nýtt viðmið um það hvað
mennska er, hvað réttlæti er, hvað lífið er, og
hvað sigra mun um síðir. Barnið í Betlehem,
frelsarinn Kristur, hefur helgað sig örlögum
jarðarbarna. Af lífi hans, orðum og verkum vit-
um við að líf sérhverrar manneskju er eilífs
gildis. Hann sagði söguna af miskunnsama
Samverjanum og tók málstað barnsins, kon-
unnar, útlendingsins, og hins sjúka og fatlaða.
Andi hans er að verki að bæta, lækna lífið. Við
vitum, eða eigum að vita, að við göngum ekki
gegn hans lögum án stórtjóns, ekki aðeins fyrir
sál okkar og eilífa velferð, heldur heiminn.
Okkur ber að leggja áherslu á mannhelgina, á
virðingu fyrir manngildinu, sem er óháð heilsu,
þreki, aldri, andlegum og líkamlegum kröftum.
Sérhvert mannsbarn er lifandi sál, Guðs gjöf,
einstæð og dýrmæt. Þetta viðhorf er eitt hið
mikilvægasta sem kristin trú hefur lagt menn-
ingu heimsbyggðarinnar til. Og það þarf alltaf
að berjast fyrir því!
Það er brýn þörf samstillingar kraftanna til
að koma á þjóðarsátt um málefni barna, að heill
þeirra og velferð sé sett í forgang. Margt hefur
vissulega áunnist. Saman þurfa að fara póli-
tískar aðgerðir ríkis og sveitarfélaga, og al-
menn viðhorfsbreyting þar sem þarfir barnsins
og þeirra sem það annast, eru settar í forgang.
Ég þakka þeim mörgu sem tekið hafa hönd-
um saman um átakið „Verndum bernskuna!“
Og þeim mörgu sem fylgt hafa því eftir og
þeirri mikilvægu umræðu sem þar er efnt til.
Hvað er að gerast í einni siðmenningu þegar
keppikeflið er eitthvað allt annað en að geta af
sér börn, og harla lítið rými virðist vera fyrir
börnin? Hvað er að gerast í siðmenningu þjóða
þegar þær, auðugri, hraustari en nokkru sinni,
hafna því að auka kyn sitt og bera nýja kynslóð
fram? Það sjáum við í Evrópu. Þjóðum Evrópu
fækkar örar nú en nokkru sinni síðan í svarta
dauða. Evrópu hefur verið lýst sem „álfan með
tómu vöggurnar“. Við Íslendingar skerum okk-
ur úr að þessu leyti, og er það vel. Þjóðin mun
ná þrjúhundruðþúsund íbúa markinu á næst-
unni. Við skulum fagna hverju barni sem hér
kemur í heiminn, öll börn ættu að vera óska-
börn! Ekki af því að þau uppfylli þarfir foreldra
sinna, heldur af því að þau eru ástgjafir Guðs,
og englar hans, boðberar umhyggju Guðs og
náðar. Sérhvert barn ber þau skilaboð að lífið
eigi sér tilgang og framtíð. Hvað bíður barns-
ins sem skærum augum skimar upp, upp í ljós-
ið og daginn? Öfl og áhrif hins illa, upplausn og
eyðing, fara ekki fram hjá neinum. En Guð er
að verki í heiminum! Afl og áhrif lífsins er að
verki, afl og áhrif fyrirgefningar, miskunnsemi,
friðar og frelsis, er að verki, og er að ryðja sér
braut. Okkur ber að greiða því veg. Guð er að
verki, hinn eini, sanni Guð skaparinn, lausn-
arinn, andinn helgi, sem vill vera Drottinn, Guð
þinn. Guð gefi að íslenskum börnum verði
ávallt kennt að virða hann, elska hann og biðja.
„Kenn oss að telja daga vora að vér megum
öðlast viturt hjarta.“
Biblían gengur út frá því að við lifum í merk-
ingarsamhengi, sem ekki má rjúfa. Þar kemur
fram á margvíslega vegu að tilgangur lífsins sé
ekki að raunhæfa sjálfan sig og fá sem mest út
úr lífinu fyrir sjálfan sig, heldur að við hljótum
innsýn í að líf okkar er hluti æðra samhengis.
Það er viskan. Viturt hjarta veit sig vera ann-
ars eign, og bera ábyrgð gagnvart öðrum,
náunganum, lífinu og höfundi þess, og framtíð-
inni. Við þiggjum lífið að láni.
Jesús Kristur er ómyrkur í máli um skyldur
okkar við lífið, og að virða og elska sérhverja
manneskju, og eins að standa vörð um lífsins
lög. Hann vitnar ítrekað í vilja skaparans sem
lesa má í ritningunni: „Hafið þér eigi lesið …“
segir hann, enn og aftur. Nú þykjast menn vita
betur. Nú þarf ekkert að lesa, maðurinn og til-
finningar hans og hvatir eru álitnir mælikvarði
alls. „Nú þarf ekki Guð, ég gat!“ sagði kallinn í
ævintýrinu. Það fór ekki vel. Og fer aldrei vel.
Svo virðist sem viðmið hinnar nýju samtíðar sé
nær einvörðungu hvað borgar sig fyrir mig,
hvað hentar mér, hvernig get ég fylgt löng-
unum mínum og hvötum. Þar er lítið rúm fyrir
Guð og vitnisburð fornra texta.
Róttækar og hraðskreiðar breytingar eiga
sér stað í fjölskyldumálum. Þjóðkirkjan hefur
lengi staðið fyrir samtali um málefni samkyn-
hneigðra og fagnað réttarbótum þeim til
handa. Ég ítreka að Þjóðkirkjan stendur heils-
hugar með samkynhneigðum sem ein-
staklingum, og réttindum þeirra í samfélaginu.
Nú kalla ýmsir eftir nýrri skilgreining á hjú-
skap og hjónabandi, þar sem kyngreining skuli
afnumin. Er það stutt ýmsum öflugustu áhrifa-
völdum samfélags og menningar. Það er
ástæða að staldra við. Þjóðkirkjan hlýtur að
hika við gagnvart því að viðurkenndum grund-
vallarhugtökum og viðmiðum sé þannig breytt.
Engin kirkja hefur stigið slíkt skref. Um þetta
hefur verið deilt á vettvangi kirkjunnar hér
sem annars staðar. Augljóst er að kirkjan þarf
tíma til að ná niðurstöðu. Ferli ákvarðanatöku
hefur verið markað og er niðurstöðu að vænta
á árinu 2007.
Löggjafinn getur á hverjum tíma skilgreint
hvaða skilyrði séu fyrir hjúskap að lögum.
Engum blöðum er um það að fletta. Til þessa
hefur hjónaband talist vera sáttmáli eins karls
og einnar konu. Er það í samhljóm við grund-
vallarforsendu sem kristin trú og siður hefur
byggt á frá öndverðu, og er sameiginleg öllum
helstu trúarbrögðum heims. Enda í samhljómi
við lífsins lög. Þessari forsendu getur íslenska
ríkið breytt og komið til móts við margvíslegar
þarfir, hvatir og hneigðir, og afnumið alla
meinbugi. Ef það er framtíðin, já, ef það er
framtíðin, þá er eitthvað nýtt orðið til, ný við-
mið siðarins, án hliðstæðu í siðmenningunni.
Hin aldagamla stofnun sem hjónabandið er er
þá afnumin. Þjóðkirkjuprestar og for-
stöðumenn annarra trúfélaga hafa komið að
hjónavígslum vegna þess að hér hefur ríkt
samhljómur laga, trúar og siðar í þessum efn-
um. Ég treysti Alþingi Íslendinga og rík-
isstjórn að fara hér með gát, og leyfa hjóna-
bandinu að njóta vafans.
„Kenn oss að telja daga vora að vér megum
öðlast viturt hjarta.“
Að læra að telja daga sína áður en dagar
manns eru taldir, er það ekki ekki að læra að
þiggja hvern dag sem lán til ávöxtunar fyrir líf-
ið og höfund þess? Að lifa í lífsins þágu, lifa í
andránni, opinn fyrir öðru fólki og þörfum
þess, vitandi sig fyrir augliti Guðs? Viturt
hjarta skynjar Guð að verki á lífsferð sinni, og
finnur handleiðslu hans í gleði og sorg, gegnum
dauða til lífs og eilífrar gleði.
Að þessu sinni ber nýársdag upp á sunnu-
dag, upprisudag lausnarans. Fyrsti dagur
hverrar viku er áminning um sigur lífsins, kær-
leika og fyrirgefningar, sem upprisa hins
krossfesta Krists leiddi í ljós. Þar kemur að
dagur hans rennur, dýrðarbjartur yfir jörð.
Uns við fáum þann dýrðardag að sjá, megi sér-
hver dagrenning færa okkur blik af þeirri
björtu, glöðu von.
„Drottinn, þú hefur verið oss athvarf frá
kyni til kyns … Kenn oss að telja daga vora, að
vér megum öðlast viturt hjarta.“
Nýársprédikun biskups Íslands, Karls Sigurbjörnssonar
Treysti Alþingi og ríkisstjórn til að
leyfa hjónabandinu að njóta vafans
Karl Sigurbjörnsson