Morgunblaðið - 02.01.2006, Síða 37

Morgunblaðið - 02.01.2006, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 37 MENNING                                                                   !" ## # #$%&#' ()'* #+,-&#.# / #'#0 #1 . &# #2  (&  #,!&# .3* &#-)#4#/ &#$#5/  4&##!"#4#56(                            2    3     7'#!34#84 ,*#2" 4 2)/ 99#4#5 7 ':#7#4# ' -: #;"#1/ <3' #7* =/  5// 9#-  1)#3 #>" #/. 1 #<" ? ) 4 1 /#4 ##4@ >"  94 $)#<"  A 2#,* 4 , BB ,C #5#$ >/ #,  <4BB#D/ E #$F  4 2  =/  =/  ,  -  4 +#4 7'#!34#84 G#4#* 2)/ >"# #'# 4/ H# //#/F 2"'##" I #3#< $4JF# 8 #8K#!3#2 $C#B#(C L#J. /#)3 / ! ? ) 7"'#3  2(4A >"  1#4 #4#3#43#  83 / # 4 M #5   G #.# 6#  # N'#,O% -4 #,  ,C #4#B/ + #8 ;:#)#/# - * >"   >" ' 1(/B P#!( IC4               $#, ?  #" 7/  #" 1 1  #" 1 L  /C4 1 1/   1 $#, 14 1 5-+ 1 1 1 L  D 5-+ 1 ##8 #C4 1Q$#, ##8 #C4 -: . #3  #!" 14Q,-7    Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Eftir Steinunni Sigurðardóttur S æll er sá sem fær að rifja upp kynni af New York, sem sumir kalla höfuð- borg heimsins, um ára- mót í góðu veðri, þegar hjarta borgarinnar slær sem hrað- ast. Þá er engu líkara en að hálfur heimurinn sé kominn til að fagna nýju ári á Times Square og þrammi um stræti söfn og útsölur á allra síðustu dögum og klukku- stundum ársins sem er um það bil að verða gamla árið. Og í þeim at- gangi er ekki sjálfgefið að fá fyr- irvaralaust bíómiða á fyrirheitna mynd. Upptakturinn að bíókvöldi var matur á Pastis, glaðlegum gæða- stað í Meat Packing District, hverf- inu sem allir nýfínir og nýfrægir vilja nú eiga heima í, í umbreyttum skemmum, hvað sem þær kosta. Með þessu fólki borðuðu bíófélagar grillað grænmetissalat (eggaldin, kúrbít) og það sló í gegn ásamt Vouvray-hvítvíni, uppáhaldstegund franska skáldjöfursins Balzac. Eft- ir þennan létta málsverð er óhætt að mæla með göngutúr í nærliggj- andi Chelsea-innimarkaðnum. Hann er nýtilkominn, hrár og frumlegur, með himneskum fiski og besta bakaríi í bænum. En það er svo merkilegt við New York að þar er skortur á daglegu brauði (þótt nógar séu beyglur og klein- ur), að minnsta kosti fyrir þann sem elur manninn til skiptis í Frakklandi og á Íslandi, eins og bíófélagar gera. Leikurinn barst nokkuð víða þennan dásamlega bíódag í New York, en myndin sem átti að sjá var Brokeback Mountain í bíói við Lincoln Center. Nú var í fyrsta sinn í sögu þessara pistla uppselt, og það þótt komið væri með meira en klukkutíma fyr- irvara. Ég mun þó ekki sleppa hendinni af kúrekunum tveimur sem fella hugi saman, enda er efnið forvitnilegt og myndin hefur fengið frábærar viðtökur. Nú var ekki annað að gera en að leika af fingrum fram, í bíó skyld- um við, og þá var einfaldlega tekin fyrsta mynd sem fyrir varð, í næsta bíói, Lincoln Plaza. Myndin sem við sáum heitir Ushpizin, sem þýðir gestir, og gerist meðal rétttrúaðra gyðinga í Jerúsalem. Hún gefur innlit í menningarheim þeirra, trúarbrögð og hjátrú, og er skemmtilega sveitaleg, að ég segi ekki hálfíslensk. Og endurspeglar þessi bíóferð kosti og galla þess að spila af fingrum fram. Við vorum staðráðin í aðljúka bíókvöldinu á jap-önsku veitingahúsi semvið höfðum fengið veður af og þeystum í gula leigubílnum niður á 157 East 28th Street, á Yakiniku Jú Jú. Á þessum pínulitla dásemdarstað eldar maður matinn sinn sjálfur, úr fínasta hráefni. Bíó- félagar steiktu sjávarmeti, sem var fyrsta flokks. Liðsauki bíófélag- anna sauð kjöt og grænmeti, sem var líka mjög vel heppnað. Mat- urinn er vel útilátinn á góðu verði og fær staðurinn okkar bestu með- mæli. Það verður ekki of vel fyrir New York-gestum brýnt að velja sér veitingastaði eftir ábendingum og ganga frekar nokkrar hús- lengdir eða drífa sig í einum gulum milli bæjarenda á tiltekinn stað heldur en að hrynja bara inn á ótil- tekinn stað. Af því síðarnefnda er ekki góð reynsla en ástæðulaust er að spilla áramótagleðinni með því að útlista hana. B í ó k v ö l d í N e w Y o r k Ekki sjálfgefið að fá fyrirvaralaust miða Atriði úr kvikmyndinni Ushpizin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.