Réttur


Réttur - 01.05.1953, Side 2

Réttur - 01.05.1953, Side 2
90 RETTUR nú öll þessi ótíðindi gerzt, og er það nýjast, að tveir ráðherr- ar hafa gerzt opinberir málsvarar þess, að komið verði upp íslenzkum her. í nýársboðskap sínum víkur utanríkisráðherrann, Bjarni Benediktsson, að þessu og kemst m. a. svo að orði: „ ... Hitt er annað mál, að fleiri og fleiri eru að komast á þá skoðun, að okkur sæmi ekki að treysta eingöngu á aðra um vamir landsins, ef við viljum í raun og sannleika vera sjálfstæð þjóð ...“ (Morgunbl. 31. des. 1952). Sem sé, það verður að stofna íslenzkt herlið, og auðvitað lætur utanríkisráðherrann liggja að því, að þessum her sé einkum ætlað að berjast gegn Rússum. Hermann Jónasson, landbúnaðarráðherra, er öllu ómyrk- ari í máli, enda var hann bólginn af heift vegna desember- verkfallanna, er þá voru nýafstaðin. Honum farast m. a. svo orð í Tímanum 31. des. 1952: „Vald þjóðarinnar þarf að tryggja gegn ofbeldismönnum með sérstöku þjóðvarnarliði. Hvemig þessu liði verður hátt- að er enn athugunarefni. En sennilega væri hagkvæmast að iláta það einnig taka í sínar hendur þá varðgæzlu að mestu, sem erlent lið annast nú hér á landi...“ Hlutverk hersins á þannig að vera tvíþætt, hann á að berja á íslenzkri alþýðu, ef hún dirfist að fara fram á bætt kjör, og svo á hann að sjálfsögðu að stríða gegn Rússum. Hvað hefur gerzt, að foringjar lýðskrumsflokkanna skuli slá á slíkan streng — svona rétt fyrir kosningar ? Þeir eru þó vanastir hinu, að vinna óhappaverkin formálalaust og máttu vel vita, að hugmyndin um íslenzkan her er ekki ýkja vinsæl. En það er eins og þeir skeyti því engu, og þeir eru svo ákafir og einfaldir í þjónkun sinni, að þeir láta sér ekki fyrir brjósti brenna að gera sig að athlægi frammi fyrir alþjóð. Sjálfir hafa þeir málað með ægihtum gegndarlausan hernaðarmátt og árásarhug Rússans, og lýst því yfir, að gegn þeirri hættu dygði ekkert nema sterkur her og hin „öflugustu drápstæki". Og nú þarf ekki annað en fámennt og vanmáttugt þjóðvarnarlið íslenzkt til að stugga við

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.