Réttur - 01.05.1953, Blaðsíða 20
108
RETTUR
félaginu. StyrkleikahlutföIIin á milli höfuðstétta þjóðfé-
lagsins höfðu breytzt henni í viL Hinn framsækni hluti
verkalýðsins hafði náð meirihluta-aðstöðu í Alþýðusam-
bandinu og í mörgum stærstu verkalýðsfélögum landsins.
Árásunum á lífskjör alþýðunnar var hrundið. Og síðast
en ekki sízt: Sósíalistaflokkurinn hafði unnið tvo glæsilega
kosningasigra.
ra.
Eftir haustkosningarnar 1942 voru tilraunir gerðar um
myndun samsteypustjórnar. Þær tilraunir báru ekki ár-
angur og í desember var utanþingsstjórn Björns Þórðar-
sonar mynduð. Aðalmennirnir í þeirri stjórn voru þeir
Vilhjálmur Þór og Björn Ólafsson.
Ríkisstjórnin lagði fyrir Alþingi í frumvarpsformi aðal-
tillögur sínar í dýrtíðarmálunum. Aðaltilgangur frumvarps-
ins var að lögbjóða almenna kauplækkun verkamanna.
Skyldi þannig lækka verðlagsuppbót allra launamanna í
landinu um 20 af hundraði, en það jafngilti 12—13% kaup-
lækkun. Af grunnlaumnn, sem fóru fram 'úr 650 kr. á
mánuði, skyldi enga verðlagsuppbót greiða.
Vegna styrkleika verkalýðssamtakanna og Sósíalista-
flokksins var frumvarpinu gjörsamlega umturnað. Lögin,
sem samþykkt voru, urðu beinlínis andstæða frumvarpsins
um það, sem mestu máli skipti. Þó voru lögin engin lausn
á vandamálum dýrtíðarinnar, heldur aðeins tilraun til að
leysa vandamálið.
Um sinn varð nú kyrrt á yfirborðinu í stéttaátökunum.
Atvinnurekendavaldið hafði komizt að raun um, að ekki
var hægt að koma beinum launalækkunum fram, heldur
var nú reynt að ná sama marki eftir öðnun leiðum, m. a.
með vísitöluútreikningnum. Verkalýðsfélögin ákváðu því í
júlí 1943 að kref jast endurskoðunar á vísitölunni, en segja
ekki upp samningum.