Réttur


Réttur - 01.05.1953, Side 31

Réttur - 01.05.1953, Side 31
RÉTTUR 119 1 lögunum um gengislækkunina 1950 hafði verið gert ráð fyrir óverulegum bótum launþegum til handa. Nú nam ríkisstjórnin úr gildi þessar hreyfanlegu vísitöluuppbætur, festi vísitöluna. Með þessari ráðstöfun uppfyllti ríkisstjórnin það skilyrði Bandaríkjastjórnar fyrir 100 millj. kr. aukaframlagi frá Marshallstofnuninni, sem íslenzku ríkisstjórninni var veitt í sambandi við „viðreisn“ vélbátaflotans, að engar kaup- hækkanir næðu fram að ganga. Mörg verkalýðsfélög vildu snúast til varnar, en áttu þó mjög erfitt um vik, einkum vegna þess að samstjórn krata, íhaldsins og framsóknar í Alþýðusambandinu gerði allt sem hún mátti til að tvístra röðum verkalýðsins. Fyrir atbeina sósíalista og annarra einingarmanna tókst þó að samfylkja allmörgum verkalýðsfélögum til verkfalls, sem hófst 18. maí 1951. Var þetta víðtækasta verkfall, sem til þessa hafði verið háð hér á landi. Stóð verkfallið í 4 daga og vannst sá sigur, að frá 1. júní skyldi greiða verð- lagsuppbót á vinnulaun, þannig, að kaupgjald breyttist á ársfjórðungsfresti samkvæmt kaupgjaldsvísitölu. Með þessum útslitum vannst mikill pólitískur sigur, Mar- shallflokkarnir þrír urðu að láta undan síga. Vígstaða verkalýðssamtakanna varð öll önnur og betri en áður. En ríkisvaldið hélt uppteknum hætti og vann að því að gera hinar nýfengnu kjarabætur að engu. 1 byrjun ársins 1952 var atvinnuleysið orðið svipað því sem verst var fyrir síðustu styrjöld. Sjávaraflinn var seldur óverkaður úr landi, meðan vinnslutæki landsmanna stóðu lítt notuð eða ónotuð. Mikill hluti iðnaðarins var stöðvaður með öllu. Húsbyggingar voru að heita má engar.. Hinn 24. apríl 1952 boðaði Alþýðusambandsstjómin til ráðstefnu til þess að taka ákvörðun um uppsögn samninga verkalýðsfélaganna, en uppsagnarfrestur flestra rann út um mánaðamótin apríl—maí. Sakir þess hve seint ráðstefn- an var kölluð saman reyndist ókleift að undirbúa almenna

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.