Réttur


Réttur - 01.05.1953, Page 34

Réttur - 01.05.1953, Page 34
122 R É T T U R VII. Fyrir örfáum árum var hér stolt þjóð og bjartsýn, þjóð sem hafði öðlazt sjálfstæði eftir alda baráttu og trúði á mátt sinn og megin, hér var efnuð þjóð, sem var í þann veginn að stórauka framleiðslugetu sína og sem tryggði hverjum vinnufærum manni atvinnu. 1 dag er hér hnípin þjóð, þjóð sem uggir um framtíð sína, hernumin þjóð sem að veruiegu leyti og í sívaxandi mæli byggir efnahagslega tilveru sína á molum, er framandi herveldi lætur af hendi. Hvað hefur valdið þessum miklu umskiptum? Svarið er ofureinfalt, þegar málið er krufið til mergjar. Umskiptin verða vegna þess, að ríkisstjórnir þær er farið hafa með völd frá byrjun ársins 1947 hafa ánetjast hinu bandaríska auðvaldi. Samkvæmt fyrirmælum þess hefur núverandi ástand verið skapað. Með hinni þaulhugsuðu svikastarfsemi, sem kennd er við Marshall, hefur Banda- ríkjunum tekizt að ná föstum og öruggum tökum á efna- hagslífi Islendinga. En af hverju hafa Bandaríkin seilzt eftir efnahagslegum tökum á íslenzku þjóðinni? Svarið við þeirri spurningu er einnig ofureinfalt. Bandaríkin vildu fá herstöðvar hér á Islandi. Þau fóru þess beinlínis og opinberlega á leit árið 1945. Fyrir atbeina sósíalista var þeirri málaleitan synjað. Hinir bandarísku valdhafar sáu, að þeir þurftu að grípa til annarra ráða til að koma máli sínu fram. Þeir gripu til þess gamalkunna ráðs að gera þjóðina efnahagslega ósjálf- stæða. Með hjálp íslenzkra valdamanna hefur þetta tekizt. Sjálf- stæði landsins hefur verið látið af hendi — skref af skrefi. Keflavíkursamningurinn 1946, Marshallsamningurinn 1948, Atlantshafssamningurinn 1949 og loks þjóðsvikin miklu, herstöðvasamningurinn 1951.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.