Réttur - 01.05.1953, Blaðsíða 22
110
RETTUR
stæði litla lýðveldisins okkar,' skapa grundvöll að stór-
kostlegum atvinnulegum framförum þjóðarinnar og sjá
um að fámennasta þjóð veraldarinnar geti lifað áfram
við beztu lífsafkomu, sem nokkur þjóð í Evrópu nú býr
við. Það verða þrjú höfuðsvið, þar sem reynir á oss . . .:
f fyrsta lagi: verndun sjálfstæðis þjóðarinnar ....
í öðru lagi: Vér þurfum að tryggja atvinnulega afstöðu
íslenzku þjóðarinnar í heiminum.
Þriðja höfuðsviðið, sem krefst samstarfs með höfuð-
öflum þjóðarinnar, er ef til vill allra veigamest. Það er:
Alger nýsköpun atvinnuveganna á Islandi með öflun full-
komnustu tækja, er við eiga, til atvinnurekstrarins.
fslenzka þjóðin á nú 500 milljónir króna í innstæðum
erlendis.
Ef við notum þetta fé, getum við með því gerbreytt at-
vinnuvegum vorum og lagt öruggan grundvöll að blóm-
legasta atvinnulífi, sem hér hefur þekkzt. Ef allt þetta fé
væri notað á næstu 4—5 árum til þess einvörðungu að
kaupa fyrir það framleiðslutæki og efni til varanlegra
bygginga og mannvirkja, allt samkvæmt fyrirfram gerðri
áætlun um þjóðarbúskap vorn, þá getum vér tryggt hverj-
um einasta íslendingi vinnu með tækjum, sem hann af-
kastar með margfalt meira en nokkru sinni fyrr og getur
því um leið tryggt sér miklu betri og öruggari lífsafkomu
en áður. .
Fyrir þessar 500 milljónir króna getum við keypt 20—30
nýja dieseltogara af beztu gerð, 200—300 nýtízku vélbáta,
— tvöfaldað fiskiskipaflota fslendinga með nýjum glæsi-
legum skipastól....
Fyrir þessar 500 millj. króna getum við á næstu 4—5
árum keypt hentug millilandaskip til flutninga á afurðum
okkar, þ. á m. næg kæliskip ....
Fyrir þessar 500 millj. kr. getum við komið upp 4—5
stórvirkum síldarverksmiðjum í viðbót við þær, sem nú
eru . .