Réttur


Réttur - 01.05.1953, Síða 7

Réttur - 01.05.1953, Síða 7
RÉTTUR 95 völur, er valdhafarnir geti stuðzt við í beiningaferðum sínum til Washington. „Gætum við ekki fengið styrk út á herinn okkar?“ Og hvað ætlast svo herrarnir bandarísku fyrir með slíkan her? Hvert hlutverk skyldi honum vera búið? Engum heil- vita manni dettur í hug, að þeir ætli honum að taka við ,,vörnum“ landsins eða að stjórna kjamorkusprengjuatlögu gegn Rússum. Þess konar röksemdir hæfa íslenzkum lepp- stjórnarráðhernim einum. Innlenda hernum er ætlað annað hlutverk, hann á að verða einn þátturinn í að afsiða þjóð- ina. Hann á að koma til liðs við lausungina og smyglið á vellinum, glæpakvikmyndirnar og „kokkteilþartíin“ — og gera sem flesta íslendinga samdauna spillingunni. Verið getur, að honum yrðu fengin einhver undirtyllustörf við landvarnirnar svonefndu — en aðalverkefnið verður ann- ars kyns. Bandaríkin em þegar orðin stærsti atvinnurek- andi á Islandi — og kváðu ætla að hafa enn meira um sig, er fram í sækir. Herraþjóðin gerir því ráð fyrir, að allar meiriháttar vinnudeilur muni taka til fyrirtækja hennar. Og þá er það ekki ónýtt að geta sjálfir setið í náðum, japl- andi á frelsi og togleðri með hlutleysisgrímyna í iéttum skorðum, meðan „íslenzki“ herinn jafnar um verkamenn- ina. Og ef einhver ótíðindi skyldu gerast í þess háttar átök- um, bera íslendingar einir ábyrgðina. Herraþjóðin getur þá tekið sér í munn tilsvarið forna: „Hvað kemur það við oss. Sjá þú þar fyrir.“ Það er ekki óþægilegt að geta att sonum gegn feðrum sínum, frændum móti frændum, vin gegn vin. Slíkt er vel þess virði að greiða fyrir það í dollurum, a. m. k.. meðan verið er að koma fyrirtækinu á laggirnar. Og hver skyldi eiga að þjálfa herinn og innræta honum „westrænar“ dyggðir og hugsunarhátt ? Hver nema „vernd- ararnir” sjálfir. Og ekki er það atriðið minna virði. Her- mennirnir flyttu svo „hugsjónimar“ með sér um borg og byggð. Þetta yrði stærsti „skóli“ landsins — og mun ekki

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.