Réttur


Réttur - 01.05.1953, Side 10

Réttur - 01.05.1953, Side 10
98 RETTUR glæpastarfsemi eða brölti ábyrgðarlausra upphlaupsmanna. Ágeng stórveldisstefna er kölluð alþjóðasamhjálp — og gróðabrögð og ásælni auðhringa dubbuð upp sem góðgerð- arstarfsemi. Það er sem sé verið að innræta okkur hugsun- arhátt erlendra auðstétta, viðhorf herraþjóðarinnar á Suð- urnesjum. Þær hugsjónir, sem dugðu okkur bezt í þjóðfrels- isbaráttunni eru kallaðar úreltar og hættulegar. Það á að af- vopna okkur andlega, svo að við getum ekki risið upp gegn þeim óþurftarverkum, sem þegar hafa verið unnin, né hin- um, sem ráðgerð eru. En þetta má ekki takast. Okkur heppnaðist að humrna fram af okkur herútboð erlendra konunga, sem fóru hér með drottinvald áður fyrr — og okkur tókst að heimta frelsið aftur úr höndum þeirra. Okkur ætti að takast að koma í veg fyrir, að herraþjóðin fái ís- lenzkan her til umráða, okkur ætti að takast að reisa við fullveldi íslands og vísa framandi stríðsmönnum úr landi. Þetta er verkefnið, sem nú er brýnast, málið sem mestu varðar. Það er ekki sérmál neins stjórnmálaflokks, nýs eða gamals, lítils eða stórs. Það er málefni allrar þjóð- arinnar, hvers Islendings. Það á liðsmenn í öllum flokkum. Og hér ríður mest á því að fylkja sér saman — og þora að fylgja því, sem rétt er. Við skulum ekki láta okkur vaxa í augum vopnavaldið. Ef meginþorri Islendinga er einarður og samtaka í þessu máli, mun bandaríski herinn verða að þoka fyrir vopnlausum fylkingum þeirra. Úrslitin eru á okkar valdi, við þurfum aðeins að vilja og þora. Samhuga þjóð verður aldrei kúguð til lengdar.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.