Réttur


Réttur - 15.07.1935, Blaðsíða 6

Réttur - 15.07.1935, Blaðsíða 6
og það sjálft er við stríð, að eiga það á hættu að koma styrjöld af stað út af eins smáu atriði og ísland samt er fyrir það á heimsmælikvarða séð. Verði því íslenzlca verkalýðsstéttin með bandamönn- um sínum innanlands, smáútvegsmönnum og fátækum bændum og öðrum millistéttum, nógu sterk til að slá niður burgeisastéttina og mótspyrnu hennar nógu fljótt og friða landið á örskömmum tíma — þá eru líka öll lík- indi til þess að hin frjálsa íslenzka alþýða fengi að vera í friði fyrir erlendu auðvaldi með hið nýfengna frelsi sitt. Það ríður því á, að íslenzka alþýðan herði baráttuna fyrir valdatökunni innanlands, en hindri jafnframt að brezka auðvaldið öðlist hér á meðan nokkur lagaleg réttindi, sem gæti einnig gagnvart öðrum aðiljum gefið því „rétt“ til að skipta sér opinberlega af innanlands- málum Islands. Hættan á að enski imperialisminn taki landið vofir NÚ yfir. Sem stendur hríðversnar fjármálaafstaðan svo út á við, að viðbúið er, að enska auðvaldið geri fyrr en varir kröfur um opinbert fjármálaeftirlit, þ. e. a. s. um laga- legan rétt brezku ríkisstjórnarinnar til að hafa hér opinberan fulltrúa, sem tekjur íslenzka ríkisins, t. d. tolltekjurnar, rynnu fyrst til, unz skuldbindingum ríkis- ins við Bretland væri fullnægt. Um leið og íslenzku vald- hafarnir gengju inn á slíkt, væri hið lagalega sjálf- stæði landsins stórum skert og afstaða verkalýðsins til að taka völdin, án þess að þurfa að lenda í bardaga við brezkt hervald, gerð margfalt erfiðari en nú er. íslenzku burgeisastéttinni og núverandi foringjum þingflokkanna er fullkomlega trúandi til að ganga að svona landráðaskilmálum, jafnvel á leynifundi á Al- þingi. Þessir herrar hafa þegar skattlagt íslenzku alþýðuna með „fisktollinum" um 1 14 milljón króna, til að greiða 126

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.