Réttur


Réttur - 01.01.1969, Page 9

Réttur - 01.01.1969, Page 9
víkurflugvöllur gegnir nú ekki lengur hlut- verki sem millilendingarstaður fyrir hernað- arflugvélar á leið yfir Atlanzhaf. Á sama tíma hafa fornar hugmyndir um herstöðvar og gildi þeirra gerbreytzt með til- komu eldflauga og kjarnorkuvopna. Her- stöðvar eru nú fyrst og fremst hagnýttar til þess að hafa áhrif á umhverfi sitt. Augljóst er að herstöðin á Islandi er nú orðin fjarskalega veigalítill þáttur í herstjórnarkerfi Banda- ríkjanna — aðalverkefni herstöðvarinnar hér er að hafa eftirlit með kafbátaferðum á Norð- ur-Atlanzhafi, og því eftirliti væri hægt að stjórna á jafn hagkvæman hátt frá mörgum öðrum stöðum, m.a. frá Nýfundnalandi þar sem þessar eftirlitsstöðvar voru áður en þær voru fluttar hingað. Breytingar þær sem orðið hafa á undan- förnum árum á hernaðartækni, á mati á þró- un alþjóðamála og á sambúð stórveldanna hafa leitt til breytinga á herstöðvunum á Is- landi án þess þó að Islendingar hafi haft frumkvæði að þeim. Þegar bandaríski herinn kom hingað 1951 var þar m.a. um að ræða raunverulegt varnarlið, landher með skrið- dreka og annan tækjakost sem ekki gat haft annan tilgang en að snúast til varnar ef gerð væri innrás í landið; einnig kom hingað flug- her sem átti að vinna með landhernum að þessum verkefnum. Báðar þessar deildir her- námsliðsins eru farnar frá Islandi fyrir mörg- um árum; hér hefur um langt skeið ekki verið neitt varnarlið •— en með þeim umskiptum hefur bandaríska herstjórnin að sjálfsögðu staðfest í verki það mat sitt að hernaðarleg árás á Island sé óhugsandi eins og nú standa sakir. Herinn á Miðnesheiði er aðeins örlítill hlekkur í eftirlitskerfi Atlanzhafsbandalagsins og Bandaríkjanna, en á engan hátt varnarlið fyrir okkur. Það er vafalaust alveg rétt sem lesa mátti í grein í Morgunblaðinu fyrir nolckru að þessari herstöð sé valinn ákaflega hæpinn staður frá varnarsjónarmiði og að hægt væri að granda henni á nokkrum mín- útum með eldflaugum frá kafbátum sem þyrftu ekki einu sinni að koma upp á yfir- borðið. I sömu grein var lögð áherzla á það að ef hér ættu að vera raunverulegar banda- rískar hervarnir, þá þyrfti að koma fyrir mikl- um bandarískum her miðsvæðis á íslandi, en leggja fullkomna hervegi frá þessum stöðvum umhverfis allt land, svo að hægt væri að sendá lið á sem skemmstum tíma til hvers þess staðar þar sem hættu kynni að bera að höndum. Fróðlegt væri að vita hversu margir Islendingar myndu kæra sig um hernám af þessu tagi, en á það reynir ekki sem betur fer, því Bandaríkjamenn hafa ekki talið það í samræmi við hagsmuni sína og mat sitt á aðstæðum að hafa nokkurt varnarlið á Is- landi árum saman og ekkert bendir til þess að hernaðarhagsmunir þeirra stuðli að slíkri ráðabreytni. Eg lít svo á, að það hljóti að vera megin- atriði í mati okkar á Atlanzhafsbandalaginu að gera okkur grein fyrir þeirri undirstöðu- staðreynd, að aðild að því bandalagi og her- námið eru eitt og saman vandamálið. Ef her- stöðvarnar hefðu ekki komið til hefði ekkert ríki haft nokkurn minnsta áhuga á aðild okkar að bandalaginu og fremur vilja forðast jafn gagnslausan bandamann. Það er einnig ákaflega mikilvæg staðreynd í þessu sam- bandi, að gildi herstöðvanna fyrir Bandaríkin hefur farið ört minnkandi á síðustu tveimur áratugum. Ef Islendingar ákvæðu nú að losa sig við herstöðvarnar yrði andstaða stórveld- isins þeim mun minni sem gildi stöðvanna er orðið rýrara. Utanríkisstefna Islandinga getur að sjálf- sögðu ekki mótazt einvörðungu af því sem við viljum, heldur verður einnig að meta hana í samræmi við það sem við getum. Við verð- um að gera okkur raunsæja grein fyrir því, að 9

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.