Réttur


Réttur - 01.01.1969, Qupperneq 27

Réttur - 01.01.1969, Qupperneq 27
 w-.... Staða Marx um þessar mundir er því alger undantekning. Hann er ekki aðeins þáttur í lifandi veruleik menntamanna. Fyrir tilstilli stjórnmálahreyfinga og ríkisstjórna sem tigna hugmyndir hans, jafnt og hinna sem trúa á skaðleg áhrif þeirra, er hann einnig kunnur stórum hluta af íbúum jarðarinnar, þó að þeir hafi naumast heyrt minnzt á nokkurn annan heimspeking eða félagsvísindamann. Frægð hans er nú alþjóðleg í réttum skiln- ingi orðsins. Þó leitað sé allt frá Senegal til Nýja-Sjálands, frá Argentínu til Kanada, finnst varla það land að þar sé ekki verið að rökræða „marxískar” hugmyndir. Mikilhæfni anda hans er viðurkennd, af hrifningu eða tregðu — sjaldan af skeytingarleysi — alls- staðar þar sem menn kunná að lesa bækur. Hann er einn af þeim fáu hugsuðum nítjándu aldarinnar sem heyra til nútíðinni en ekki for- tíðinni. Ef til vill er hann hinn eini þeirra sem það verði sagt um — ásamt Charles Darwin, sem hann líkti sjálfum sér við. Væntanlega hefur afmælið í för með sér viðurkenningu og endurmat á fræðikenning- um Marx, fordæmingu og deilur. En það er einnig hentugt tilefni til að líta með sann- girni og fordómalaust á aðra hlið varðandi það sem eftir hann liggur, þ.e. útgáfur á rit- um hans. Þar horfir einkennilega og ekki sérlega viðunandi. Fram að 1950 voru útgáf- ur af ritum hans og Engels, sem að jafnaði fór saman, nánast hugmyndafræðilegt fjöl- skyldumál. Fyrir rússnesku byltinguna var málið í höndum þýzka sósíaldemókrata- flokksins. Hann hafði eignazt meginið af eft- irlátnum skrifum hans — Nachlass — en gerði enga tilraun til að koma þeim á prent. Síðar varð þetta einnig komið undir Komm- únistaflokki Sovétríkjanna, og af mikilli holl- ustu hóf Marx-Engels stofnunin í Moskvu útgáfu þeirra. Til allrar ógæfu var hin af- bragðs góða heildarútgáfa Rjazanovs — Gesamtausgabe — ásamt Marx-Engels-Ar- chiv stöðvuð í miðjum klíðum. Sú útgáfa sem fer næst því að vera heild- arútgáfa á frummálinu er Marx-Engels Werke í 40 bindum. Byrjaði hún að koma út í Berlín 1956 og kom síðasta bindið í þess- ari viku. Þetta er hvorki heildarútgáfa né heldur fullnægir hún ströngum vísindaleg- um kröfum. Það skiptir ekki miklu máli að nokkur rit sem lengi hefur verið innbyrðis ágreiningur um meðal marxista er ekki í safninu, nefnilega nokkur þau elztu. Auk þess eru þau komin í sérstökum bindum í sama broti. Hitt er alvarlegra að hvergi er skrá yfir þau rit sem undan eru skilin. Ekki er ástæða til að ætla að þau séu skilin eftir af hugmyndafræðilegum ástæðum, en vöntun á glöggri greinargerð rýrir tilfinnanlega gildi útgáfunnar fyrir fræðimenn. Ur þessu er auðvelt að bæta með því að gefa út skrá yfir það sem vantar með stuttorðum lýsing- um á efni, hvar aðgengilegt til afnota og prentanir ef til eru. Vonandi eiga Marx- Lenin stofnanirnar í Berlín og Moskvu eftir að auka við þá þakkarskuld sem við stöndum í við þær með útgáfu slíks viðauka. Þá er það og tilfinnanlegur galli á þessari útgáfu að hún virðist ófullkomin í jafn mik- ilvægu tilliti og því að birta öll tilbrigði af ritum Marx, en það er afar áríðandi af því að hugmyndir hans voru í stöðugri þróun meðan hann samdi rit sín. Svo tekið sé aug- ljóst dæmi: Auðmagnid 1. bindi er prentað eins og venja er eftir 4. útgáfunni (1890) sem geymir síðari skoðanir Marx og Engels bjó til prentunar. I nokkrum tilvikum þýðir þetta algera endursamningu frá 1. útgáfunni (1867), þ.e.a.s. algera endurorðun hugtaka í fyrsta og grundvallarkafla bindisins. Þar til á s.l. ári var þessi texti hvergi til nema í frumútgáfunni og japanskri ljósprentun, næstum jafn fágætri. Nú er hægt að fá sam- 27

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.