Réttur - 01.01.1969, Blaðsíða 28
anburð á textum með hjálp fjögra binda
vesmrþýzkrar útgáfu frá Fischer Verlag. I
heildarútgáfu á vitanlega að vera fyrsta gerð
textans, a. m. k. í viðauka, og svo var ráð
fyrir gert í heildarútgáfu Rjazanovs.
Vafalaust mun fullkomnari rússnesk-þýzk
útgáfa sem nú er í undirbúningi og önnur
samkeppnisútgáfa sem er líklegur árangur af
rannsóknum á Nachlass (nú varðveitt í In-
ternational Institute of Social History, Ams-
terdam) eiga þess kost að bæta úr framan-
greindum göllum. Unz svo hefur verið gert
vantar okkur fullkomna og vísindalega heild-
arútgáfu sem sanngjarnt er að biðja um
hálfri annarri öld eftir fæðingu Marx og
áttatíu og fimm árum eftir dauða hans.
Það er líklega til of mikils mælst að slík
heildarútgáfa, og þó ekki væri nema jafn
virðuleg útgáfa og margrabinda ritsafnið
Werke, verði fáanlegt á ensku sem er helzta
alþjóðlega samskiptamálið. Slík útgáfa er lík-
lega ekki góð fjárfesting og vafasamt að
nokkrir styrktarsjóðir eða stofnanir vilji
leggja fram nægilegt fé. En því miður eru
þau ritsöfn sem til eru á okkar máli eftír
Marx aðeins úrtök, stundum handahófskennd,
önnur oft úrelt...
Slíkar útgáfur undanfarið eru næstum ein-
göngu að þakka störfum og fjárframlögum
sovézkra stofnana, og án þeirra mundum við
ekki eiga jafn mikilsverð rit og 2. og 3-
bindi Auðmagnsins í viðunandi þýðingu og
sérstaklega ódýr ... Enda þótt við hljótum
nú að eiga Kommúnistaávarpið í tíu til tutt-
ugu útgáfum og margar eins bindis útgáfur
af úrvali úr ritum Marx, nokkrar ágætar, er
ekki hægt að segja með sanni að sá sem
vill kynna sér Marx af fullri alvöru hafi við-
unandi kost á þýðingum, hvorki frá Rússum
eða cðrum útgefendum.
Þetta ber að harma. Líklega er meira
skrifað um marxisma nú en nokkru sinni
fyrr, og ábyggilega meira en um nokkuð ann-
að fræðikerfi sem séð hefur dagsins Ijós síð-
an 1818. Það er ekki til of mikils mælst að
enskur lesandi ólæs á aðrar tungur eigi þess
kost að sniðganga túlkendur og útskýrendur
og leita til eigin rita Marx.
Times Literary Snpplement, 9. maí 1968.
28