Réttur


Réttur - 01.01.1969, Blaðsíða 31

Réttur - 01.01.1969, Blaðsíða 31
Togliatti Erlander Bresjneff Einkum mættu voldugustu leiStogar stærstu valdaflokkanna nokkuð læra af boðskap eining- arinnar frá 7. heimsþinginu. En því miður virð- ist tilhneigingin vera sú, þegar ríkisvaldið hefur verið 10—15 ár í höndum sósíalistískra valda- flokka að það taki að móta fræðikenningu marx- ismans eftir hagsmunum sínum og aðstæðum og hún stirðni þar, af því hún verði ekki þróuð á réttan hátt í því umhverfi metnaðar og rétt- trúnaðar, sem ríkisvaldið oftast skapar, ef ei er staðið vel á verði.* Það er hart að því stærri og voldugri sem valdaflokkar sósíalismans eru, því erfiðara skuli ganga að framkvæma þeirra í milli þá kenningu um bræðralag hinna vinnandi stétta, sem Marx og Engels gerðu að höfuðatriði í boðskap sín- um: Oreigar allra landa sameinist! — Og að ekki skuli einu sinni sú víðfeðma samfylking- arstefna sem 7. heimsþing Komintern markaði, framkvæmd á milli kommúnistaflokka heims innbyrðis. ★ í dag er lagður efnahagslegur grundvöllur að sósíalisma hjá þriðjungi mannkyns og í ríkis- stjórnum hálfs heimsins sitja kommúnistar og sósíaldemókratar. í ár eru liðin 105 ár frá stofnun I. Alþjóða- * £>að er eftirtektarvert tímanna tákn, að sá sami Mao Tse-tung, — sem beitti sér fyrir því 1935, er ,,vinstri“- forustan var sett frá völdum í Kommúnistaflokki Kína eftir allar sínar einangrunarvillur, að Wan Míng og Lí-lí-san, foringjar hennar, væru áfram í miðstjórn flokksins, — skuli nú láta beita Líú Sjao-sí álíka með- ferð og Trotsky eftir 1926. Eða hitt að Kommúnistaflokk- Ur Sovétríkjanna skuli enn ekki hafa skipað Bucharin, Trotsky og aðra í þann sögulega sess, er þeim ber, þótt hann hafi sjálfur brennimerkt réttarhöldin, er gerðu þá glæpamönnum, sem óhæfu. Lenín gat þó fyrirgefið þessum mönnum ranga afstöðu í Brest-Litovsk- málinu, gagnvart ,,vinstri-kommúnismanum“ o. s. frv. og látið kjósa þá á ný í framkvæmdanefnd flokksins. — Það var ekki að ófyrirsynju að Dimitroff deildi á ofstæki og einangrunarstefnu 1935. Okkar fornu íslenzku sagnaritarar skrifuðu að vísu sumir sem sigraðir menn, en sýndu í sagnaritun sinni sigurvegurunum eftirtektarverða óhlutdrægni. Sigur- vegarar 1 innanflokksátökum sósíalista mættu einnig læra að skrifa sögu svo að þeir „sigruðu“ þar nytu og réttar síns. 31

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.