Réttur


Réttur - 01.01.1969, Page 35

Réttur - 01.01.1969, Page 35
mannaflokksins voru með samþykktum á flokks- þingi gerðir flokksrækir, þeirra á meðal Finn Gust- avsen og Knut Löfsnes. Þessi andstöðuhópur hafði allt frá 1953 gefið út vikublaðið ,,Orientering", sem haldið hafði uppi harðri gagnrýni á norska utan- ríkisstefnu og einkum þá aðild Noregs að Atlanz- hafsbandalaginu. Árin næstu fyrir 1961 hafði blaðið einnig í mörgum innanlandsmálum gagnrýnt stjórn- arstefnuna harðlega og krafizt sósíalistiskra úr- ræða i efnahags- og atvinnumálum. Sósíalismi Verkamannaflokksstjórnarinnar var orðinn harla út- vatnaður og samvistirnar við forysturíki hins frjálsa heims í Atlanzhafsbandalaginu höfðu ekki haft sið- bætandi áhrif á flokksforystuna. I kosningunum til Stórþingsins haustið 1961 bauð SF-flokkurinn fram í 6 kjördæmum, hlaut 43 þús. atkv. og 2 þingmenn kjörna. Komu þessi úrslit flestum á óvart, ekki hvað sízt forystu Verkamanna- flokksins. SF fékk lykilaðstöðu á þingi, því að stjórnar- flokkurinn missti meirihluta sinn og hafði nú aðeins 74 þingsæti af 150, en borgaralegu flokkarnir fjórir fengu samtals 74. i kosningunum til Stórþingsins haustið 1965 bauð SF fram i öllum kjördæmum og fékk nú nær 125 þús. atkvæði (6%) en aðeins 2 þingmenn eins og áður. Hins vegar vantaði bara herzlumuninn á að flokkurinn fengi menn kjörna i ýmsum kjördæmum. Uppbótarþingsæti eru engin í Noregi. Hvers konar flokkur var SF í upphafi? Hann skilgreindi sig frá stofnun sem sósíaliskan flokk. Hins vegar voru ekki margir marxistar innan hans og munu skoðanir hafa verið skiptar um inn- tak hinnar sósíalisku stefnu flokksins. Flestir af forystumönnunum komu úr Verkamannaflokknum, en kjósendurnir komu víða að, einkum þó frá kommúnistum, Verkamannaflokknum og á Oslóar- svæðinu frá róttækum vinstrimönnum, einkum úr hópi menntamanna. Fylgi flokksins var því frá upphafi nokkuð sund- urleitt. Þar voru saman komnir sósialistar, sem hrakizt höfðu úr norska kommúnistaflokknum vegna hreinsana i honum, og aðrir, sem horfið höfðu úr Verkamannaflokknum vegna hentistefnu flokksfor- ystunnar, EBE og NATO andstæðingar, og róttækir menntamenn, sem margir hverjir höfðu ekki verið flokksbundnir. Það þarf því engan að undra, þótt ekki hafi allt gengið snuðrulaust innan flokksins þau 8 ár, sem hann hefur starfað. Umræður þær og deilur, sem átt hafa sér stað innan flokksins, hafa þó verið frjóar að þvi leyti, að þær hafa leitt til skýrari stefnumörkunar og ákveðnari viðhorfa á flestum sviðum. Flokkurinn hefur þróazt til vinstri í átt til aukinnar róttækni og skýrari sósíalistiskra viðhorfa. Hefur þetta komið greinilega fram í stefnu flokksins á þingi og í skrif- um í hinu óopinbera málgagni hans „Orientering". Eitt er það mál, sem jafnan hefur verið til um- ræðu innan flokksins og sem skoðanir hafa verið mjög skiptar um, en það er afstaðan til Verka- mannaflokksins og hugsanlegs samstarfs við hann. Alger samstaða mun hafa verið um það, að stjórn- arsamstarf kæmi ekki til qreina né heldur samstarf af því tagi sem Axel Larsen kom á í Danmörku. Hins vegar hefur ákveðinn hópur innan flokksins verið hlynntur bindandi samstarfi um ákveðin mál. Mun formaðurinn, Knut Löfsnes, hafa verið fremsti talsmaður slíkrar stefnu. Finn Gustavsen, aðaltals- maður flokksins á þingi hefur viljað setja mun strangari skilyrði fyrir slíku samstarfi og sú hefur afstaða meirihlutans verið. Sl. 2 ár hefur þróunin á vinstra væng norskra stjórnmála verið mjög ör, og ný viðhorf komið i forgrunninn hjá mörgum. Á þetta ekki hvað sízt við um SF, þótt einnig megi sjá merki um hið sama I öðrum flokkum. Mestar hafa þó breytingarnar orðið innan SUF. SUF var stofnað 1963 og mun stefnuskrá samtakanna í fyrstu hafa verið áþekk stefnu flokksins, en einkum var lögð áherzla á ut- anríkismál, hlutleysisstefnu og þróunarhjálp og voru pasifistar alláhrifaríkir í samtökunum. Pólitiskur áhugi meðal æskufólks var á þessum árum fremur takmarkaður, en þetta hefur breytzt i Noregi ekki síður en í öðrum löndum. Á styrjöldin í Vietnam og barátta stúdenta fyrir raunverulegu námslýðræði, gegn heimsvaldastefnu og arðráni hinna iðnvæddu landa á vanþróuðum þjóðum mest- an þátt í því. Hafa því stjórnmálasamtök ungs fólks í Noregi eflst mjög hin síðari ár og aukið starfsemi sína.1) Hefur mátt sjá þessa Ijós merki, ekki hvað sizt meðal háskólastúdenta og í starfi Vietnamhreyfing- arinnar í Noregi. En því miður hefur það ásannazt enn einu sinni, að aðvörunarorð Leníns um „róttæknina sem barna- sjúkdóm kommúnismans" eru enn i fullu gildi. Þau öfl, sem náð hafa undirtökunum í SUF og einnig 1) Hefur SUF engra eftirbátur verið í því efni. 35

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.